Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 56
18 • LÍFIÐ 12. DESEMBER 2014
Ragnheiður
Guðmundsdóttir
blaðamaður
H
ildur Yeoman fatahönn-
uður og listamaður gaf
út nýja línu á dögunum
en línan er nú fáanleg í
versluninni Kiosk. Hún
fékk einnig nýlega hæsta styrk-
inn frá hönnunarsjóði Auroru til
áframhaldandi vöruþróunar. Lífið
forvitnaðist um nýju línuna henn-
ar Hildar og hvar hún fær innblást-
ur fyrir þessa fallegu hönnun. „Ég
nálgast hönnunina út frá teikning-
unum mínum og spinn sögur sem
skapa heilan heim af vörum. Í byrj-
un sköpunarferilsins þá vinn ég oft
með músu sem fyrirmynd í vinnu-
ferlinu. Músurnar eru allar þær
sterku konur sem ég hef í kring-
um mig en ég er svo lánsöm að
vera umkringd skapandi, sterk-
um og áhugaverðum karakterum.
Línan sem nú er komin í verslan-
ir er unnin út frá einni slíkri konu,
ömmu minni, henni Júlíu.“
Amma Hildar var húsmóðir sem
bjó í New Jersey en stakk af frá
fjölskyldu sinni til að ferðast um
Bandaríkin með mótorhjólagengi.
„Sterkar konur og persónur sem
brjótast út úr þeim borgaralegu
gildum sem samfélagið setur okkur
voru kveikjan að síðustu línu. Ég
hitti hana ekki oft þegar ég var lítil
enda bjó hún í Bandaríkjunum en
þegar ég hitti hana þá var ég alltaf
logandi hrædd við hana og fannst
hún alltaf vera hálfgerð norn. Mér
hefur seinna verið sagt að hún hafi
verið rammgöldrótt týpa með ung-
verskt sígaunablóð í æðum.“
Línan samanstendur af kven-
legum flíkum þar sem prentið spil-
ar stórt hlutverk en það er blanda
af ljósmyndum og teikningum eftir
Hildi. „Það er mikið af kristöllum
og náttúrusteinum í prentinu en
auk fatnaðarins er mikið af fallegu
skarti í línunni sem er bróderað
með steinum sem búa yfir heilandi
orku,“ segir Hildur að lokum.
FÆ INNBLÁSTUR
FRÁ ÖMMU JÚLÍU
Hönnuðurinn Hildur Yeoman hefur sent frá sér nýja fatalínu sem innblásin
er af sterkum konum sem hafa haft áhrif á líf hennar.
Hildur Yeoman sendi frá sér nýja fatalínu á dögunum
„Ég nálgast hönnunina út frá teikningum mínum
og spinn sögur sem skapa heilan heim af vörum.“
Ef það er einhvern tímann hægt að segja að súkkulaði sé hollt þá eru það
þessir molar sem bættir eru með bráðhollum hnetum, berjum og spirulina.
SPIRULINA
SÚKKULAÐIMOLAR
450 g dökkt súkkulaði
50 g trönuber
50 g pistasíuhnetur
50 g valhnetur, saxaðar
1 msk. spirulina-duft
Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði,
bætið spirulina-duftinu saman
við. Hellið matskeið af bráðna
súkkulaðinu á pappírsklædda
ofnplötu þannig að það myndi
eins konar þunnan hring. Strá-
ið söxuðu berjunum og hnetunum
yfir og kælið.