Fréttablaðið - 12.12.2014, Blaðsíða 66
Kaupangi Akureyri | Borgartún 37 | nyherji.is/jol | 569 7700
GRÆJAÐU JÓLIN
BOSE SOUNDLINK COLOUR
LENOVO YOGA 2 10”
CANON EOS1200D
Verð: 29.900 kr.
Tilboðsverð: 42.990 kr.
Tilboðsverð: 89.900 kr.
Lauflétt þráðlaust ferðahljómtæki.
Hljómar af krafti hvar sem er.
HD+ skjár og allt að 18 klst. rafhlaða. Ekta
græja fyrir sjónvarpsgláp og lestur.
M/ 18-55 IS linsu. Kennslubók, námskeið
og Camlink þrífótur fylgir með. Valin besta
DSLR byrjendavélin af EISA 2014-2015.
MENNING
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR
„Þetta er orðinn árlegur viðburður
og ég er eiginlega búinn að týna
tölunni á árunum, ætli þau séu
ekki orðin sautján,“ segir Sigur-
björn Jónsson myndlistarmaður
sem á morgun opnar vinnustofu-
sýningu á verkum sínum í Stangar-
hyl 1a. „Ég sýni verk sem ég hef
verið að mála síðustu mánuðina og
opna pleisið fyrir gestum og gang-
andi.“
Vinnustofa Sigurbjörns er á
heimili hans en hann segir að
fjöldi gesta valdi ekki vandræðum.
„Það koma yfirleitt svona tvö til
þrjú hundruð manns, getur orðið
svolítið þröngt en það bjargast nú
alltaf. Þetta byrjaði bara óvart og
átti að vera lítið jólapartí á vinnu-
stofunni en það komu svo margir
og var svo gaman að þetta festist
í sessi.“
Spurður hvort verkin sem hann
sýnir nú séu að einhverju leyti frá-
brugðin því sem hann hefur áður
sýnt segir Sigurbjörn svo vera.
„Þetta eru hálfabstrakt verk en
með andlitum í, það hef ég ekki
gert áður. En svo eru líka öðruvísi
verk.“ Hann vill ekki ræða það
frekar, verkin tala fyrir sig sjálf,
segir hann, og við snúum okkur
að því að ræða um opnun sýning-
arinnar sem stendur frá klukkan
17 til 20 á morgun. Þar verður að
venju boðið upp á djassmúsík en
skipulag þess hluta er í höndum
Ómars Einarssonar gítarleikara.
„Hann kemur alltaf með einhverja
spilara með sér og spilar við opn-
unina,“ útskýrir Sigurbjörn. „Ég
veit ekki betur en að í þetta sinn
verði Haukur Gröndal með honum,
en það er alveg í höndum Ómars,
ég hef aldrei skipt mér neitt af
því.“
Sýningin er, eins og áður sagði, í
vinnustofu Sigurbjörns í Stangar-
hyl 1a og hún verður opin milli
klukkan 17 og 19 alla daga til 18.
desember.
- fsb
Byrjaði sem vinnustofupartí
Árleg vinnustofusýning Sigurbjörns Jónssonar myndlistarmanns hefst á morgun.
SIGURBJÖRN JÓNSSON „Þetta eru hálfabstrakt verk en með andlitum í, það hef ég
ekki gert áður.“ FRÉTTABLAÐIÐ/
„Ef einhvers staðar á að lesa upp
úr þessari bók þá er það í Laug-
ardalnum,“ segir Kristín Steins-
dóttir um Vonarlandið sem hún
verður með í farteskinu í Café
Flóru á morgun klukkan 14. Þar
ætlar hún að lesa upp, spjalla við
gesti um líf og aðstæður þvotta-
kvennanna sem bókin fjallar um
og svara spurningum. Að dag-
skrá lokinni býður hún þeim
sem áhuga hafa að fylgja sér að
þvottalaugunum. „Það er náttúr-
lega lítið að sjá í snjónum en við
skoðum staðhætti eftir því sem
við verður komið,“ segir hún og
bætir við að oft hafi snjór verið í
dalnum þegar konurnar voru þar
við iðju sína.
„Laugarnar voru þvottastaður
Reykvíkinga áratugum eða öldum
saman. Þar var haldið áfram að
þvo alveg fram á 1970, þá var
komið hús sem konurnar gátu
hitað sér kaffisopa í og sest niður
og þar voru komnar þvottavélar á
vegum borgarinnar,“ lýsir Krist-
ín. Saga hennar, Vonarlandið, ger-
ist hins vegar löngu fyrr, áður en
Laugavegurinn var byggður upp
árið 1886. „Mínar konur löbb-
uðu ekki um hlaðinn Laugaveg
og höfðu hvorki hjólbörur, kerr-
ur né annað slíkt. Þær gengu um
misgreiðfæra stíga og báru allt á
bakinu. Héldu upp Bakarastíginn
sem nú er Bankastræti, fram hjá
vatnspóstunum, þar sem vatns-
berarnir voru teknir til starfa
eldsnemma á morgnana, beygðu
niður Skuggahverfið sem dreg-
ur nafn af bænum Skugga, fóru
alveg niður að sjó og meðfram
fjörunni yfir Rauðarárósinn.
Leiðin lá þar sem Borgartúnið
liggur og yfir Fúlalæk sem rann
þar sem Kringlumýrarbraut er
nú. Hann var viðsjárverður. Þar
lét kona lífið þegar hún féll niður
af snjóhengju.“
Við fylgjum konunum enn í
huganum skáhallt yfir Teigana
sem þá hét Kirkjumýri og var
stórhættuleg með mógröfum og
mýrarkeldum, að sögn Kristín-
ar. Eftir þriggja kílómetra göngu
voru þær komnar inn í laugar.
„Svo var þvegið allan daginn
hvernig sem viðraði og margt
bar á góma en ekkert hús höfðu
þær til að fara inn í með bitann
sinn. Á kvöldin gengu þær sömu
leið til baka með blautan þvottinn
á bakinu,“ segir Kristín. „Þetta
voru hvunndagshetjur og maður
spyr sig núna, hvernig var þetta
hægt?“
Byggingin sem er við þvotta-
laugarnar nú hýsti rafstöð að sögn
Kristínar. „Húsið sem þvottakon-
urnar höfðu til afnota hefur verið
rifið. Það var samkomustaður
kraftlyftingamanna undir lokin
og hét Jakaból. Eftir að konurnar
höfðu verið þar að lyfta bölum í
áratugi komu kraftlyftingamenn-
irnir og lyftu lóðum.“
gun@frettabladid.is
Hvunndagshetjur
sem báru bala
Kristín Steinsdóttir les úr nýrri bók sinni, Vonarlandinu, í Café Flóru í Laugardal á
morgun klukkan 14. Þar er hún á söguslóðum því bókin fj allar um þvottakonur.
KRISTÍN STEINSDÓTTIR „Svo var þvegið allan daginn hvernig sem viðraði.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA