Fréttablaðið - 12.12.2014, Side 80
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 50
Konur í skemmtanaiðnaði
voru heiðraðar af tímariti
Á fi mmtudag var haldinn morgunverðarfagnaður kvikmyndatímaritsins The Hollywood Reporter þar sem
konur í skemmtanaiðnaðinum voru heiðraðar. Sérstök heiðursverðlaun hlaut framleiðandinn Shonda
Rhymes, en hún er þekktust fyrir að vera höfundur og framleiðandi vinsælu sjónvarpsþáttanna Grey’s
Anatomy, Scandal og Private Practice. Leikarar úr þáttunum fj ölmenntu og heiðruðu Rhymes.
GLÆSILEG Step Up-leikkonan
Jenna Dewan Taytum.
DR. ADDISON Kate Walsh
sem þekktust er fyrir leik
sinn í Grey’s Anatomy.
FYRIR MÖMMU Dóttir sjón-
varpskonunnar Joan Rivers,
Melissa Rivers, mætti.
FLOTT Í DE LA RENTA Glee-
leikkonan Lea Michele.
LÁTA SIG ALDREI VANTA Mæðgurnar Khloé
Kardashian og Kris Jenner.
TÖFFARI Leikkonan Portia de Rossi.THELMA EN ENGIN LOUISE Leik-
konan Geena Davis.
REYND Á DREGLINUM E! entertain-
ment-stjarnan Guiliana Rancic.
„Við erum með þessi kvöld einu sinni í
mánuði í Stúdentakjallaranum. Hér eru
bæði reyndir og óreyndir uppistandar-
ar að koma sér á framfæri. En okkur
vantar bara fleiri konur,“ segir Snjólaug
Lúðvíksdóttir uppistandari, sem sér um
skipulagningu uppistandskvöldanna.
„Við Bylgja Babýlóns höfum bara verið
einu stelpurnar hérna og við viljum bara
hvetja allar sem eru með þetta í magan-
um til að koma og vera óhræddar við það
að hoppa upp á svið og segja brandara,“
segir hún.
Ferill hennar sem uppistandari hófst í
London fyrir um ári. „Ég tók einu sinni
þátt í uppistandi sem var í strætó, svo-
kallaður „Comedy Bus“. Það er örugg-
lega ein furðulegasta lífsreynsla mín til
þessa. Þetta var tvöfaldur vagn með opnu
þaki og ég var á efri hæðinni, svo það
heyrðu allir bút og bút af bröndurunum.
Á tímabili var ein manneskja í strætón-
um. Ég er fær í flestan sjó eftir þetta,“
segir Snjólaug og hlær.
Hún segist vilja jarða þá mýtu að
konur séu ekki fyndnar í eitt skipti fyrir
öll. „Ég fæ stundum, frá bæði konum og
körlum, hið vafasama hrós sem flestir
kvenkyns grínistar kannast ábyggilega
við: „Mér finnst konur aldrei fyndnar,
en þú varst góð.“ - asi
Algjör mýta að konur séu ekki fyndnar
Snjólaug Lúðvíksdóttir leitar að konum á uppi stands kvöld í Stúdentakjallaranum einu sinni í mánuði.
STELPUR ERU LÍKA FYNDNAR Snjólaug Lúðvíks-
dóttir og Bylgja Babýlóns hvetja fyndnar stelpur til
að hafa samband við sig. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Breska ríkissjónvarpið BBC
hefur tilkynnt að til standi að
gera sjónvarpsseríu úr glæpa-
sögu breska rithöfundarinns
J. K. Rowling.
Rowling sem er mörgum vel-
kunnug sem höfundur Harry
Potter-bókanna, gaf árið 2013 út
bókina The Cuckoo‘s Calling.
Bókina gaf Rowling út undir
dulnefninu Robert Galbraith en
hún komst fljótlega á metsölu-
lista eftir að tilkynnt var um
raunverulegt nafn höfundarinns.
The Cockoo‘s Calling er fyrsta
bókin úr seríu sem fjallar um
einfætta einkaspæjarann Cor-
moran Strike. Árið 2014 kom The
Silkworm, önnur bók seríunnar,
út en hún verður einnig notuð við
gerð sjónvarpsþáttanna.
Rowling gerir
sjónvarpsseríu
METSÖLUHÖFUNDUR Rowling sló í
gegn með bókunum um galdrastrákinn
Harry Potter. NORDICPHOTOS/GETTY
Ég tók einu sinni
þátt í uppistandi sem var
í strætó, svokallaður „Comedy
Bus“. Það er örugglega
ein furðulegasta lífsreynsla
mín til þessa.
Tilkynnt hefur verið að banda-
rísku leikararnir Kirsten Dunst
og Jesse Plemons muni leika í
annarri þáttaröð af spennuþátt-
unum Fargo.
Samkvæmt heimildum The
Hollywood Reporter hefjast tökur
í janúar á næsta ári en þáttaröðin
fer ekki í sýningu fyrr en næsta
haust.
Þættirnir eru byggðir á sam-
nefndri bíómynd Cohen-bræðra
frá árinu 1996 og hafa þeir hlotið
mikið lof gagnrýnenda og hlutu
tvenn Emmy-verðlaun á árinu.
Aðalframleiðendur þáttaraðar-
innar verða Cohen-bræður en
fleiri tilkynninga um hlutverka-
skipan í þáttunum er að vænta á
næstunni.
Dunst og
Plemon í Fargo
DUNST Leikkonan mun fara með
hlutverk í annarri þáttaröð af Fargo.
NORDICPHOTOS/GETTY