Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 82
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| LÍFIÐ | 52
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Tífaldi Grammy-verðlaunahafinn
og djassgoðsögnin Arturo Sando-
val efnir til djassveislu, ásamt
hljómsveit sinni, í Eldborgarsal
Hörpu 18. febrúar.
Sandoval, sem fæddist á Kúbu
en er núna bandarískur ríkisborg-
ari, mun m.a. heiðra minningu
góðvinar síns og lærimeistara
Dizzie Gillespie en nýjasta plata
djassarans, Dear Diz, er óður til
Gillespie.
„Ég hef rosalega gaman af
djassi og einhvern veginn finnst
mér þessir erlendu djassarar ekki
hafa verið duglegir að koma til
Íslands. Ég var með Chick Korea
[í Eldborg] í fyrra og það gekk
rosalega vel, þannig að mig lang-
aði að fá annan djassara,“ segir
tónleikahaldarinn Guðbjartur
Finnbjörnsson.
„Það eru alltaf einhverjir jóla-
tónleikar og popp- og rokktón-
leikar en sjaldan sem koma svona
alvöru djasstónleikar,“ bætir hann
við og telur miða á tónleikana hina
fullkomnu jólagjöf fyrir íslenska
djassgeggjara. „Þeir sem hafa
snefil af áhuga á djassi ættu að
skella sér á þessa tónleika. Hann
Sandoval er algjör snillingur á
þessi hljóðfæri sem hann spilar á.“
Arturo Sandoval hefur, auk þess
að spila mikið með Gillespie, spil-
að með mörgum þekktustu djass-
tónlistarmönnnum heims en einnig
með listamönnum á borð við Frank
Sinatra, Paul Anka, Rod Stewart,
Alicia Keys og Justin Timberlake.
Hann spilaði með Celine Dion á
Óskarsverðlaununum, á Grammy-
hátíðinni með Timberlake og með
Keys á Billboard-hátíðinni.
Fjallað var um ævi hins 65 ára
Sandoval í sjónvarpsmyndinni For
Love or Country: The Arturo Sand-
oval Story sem kom út árið 2000
með Andy Garcia í hlutverki djass-
arans.
Miðasala á tónleikana hefst
mánu daginn 15. desember á Harpa.
is, Midi.is og í síma 5285050.
freyr@frettabladid.is
Tífaldur Grammy-hafi
til Íslands í febrúar
Djassgoðsögnin Arturo Sandoval stígur á svið í Eldborgarsalnum. Hefur spilað
með Frank Sinatra og Justin Timberlake og er lærisveinn sjálfs Dizzie Gillespie.
SANDOVAL
Arturo Sandoval
heiðrar minningu
Dizzie Gillespie
á sinni nýjustu
plötu, Dear Diz.
Margverðlaunaður tónlistarmaður
Auk þess að vera tífaldur Grammy-verðlaunahafi hefur Sandoval sjö
sinnum til viðbótar verið tilnefndur til þessara virtu verðlauna. Hann
hefur jafnframt sex sinnum hlotið bandarísku Billboard-verðlaunin, auk
Emmy-verðlaunanna. Á síðasta ári fékk hann afhenta Frelsisorðuna úr
hendi Baracks Obama Bandaríkjaforseta við hátíðlega athöfn.
Miðasala á:
EXODUS 3D KL. 5.45 - 9
MOCKINGJAY– PART 1 KL. 8 – 10.40
DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30 – 8 – 10.30
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 5.30
NIGHTCRAWLER KL. 8 – 10.30
ST. VINCENT KL. 5.30
EXODUS 3D KL. 4.30 – 8 - 11
EXODUS 2D KL. 8 - 11
EXODUS 3D LÚXUS KL. 4.30 – 8 - 11
MOCKINGJAY – PART 1 KL. 8 – 10.45
BIG HERO 6 3D KL. 3.15 – 5.30
BIG HERO 6 2D KL. 3.15 – 5.30
MÖRGÆSIR ÍSL TAL 2D KL. 3.15
DUMB AND DUMBER TO KL. 5.30 - 8 – 10.30
JÓLAMYNDIN Í ÁR
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
ÁLFABAKKA EGILSHÖLL
T.V. SÉÐ & HEYRT
EMPIRENEW YORK POST
TIME OUT LONDON
HOLLYWOOD REPORTER
EMPIRE
EMPIRE
ROLLING STONE
Jólamyndin 2014 Jólamyndin 2014
7, 11
3:30, 5:45
4
10
5%
Amma er blind. Hún er samt með opin augun og þau virka eðlileg en hún bara
sér ekki neitt með þeim.“
SVONA lýsir Jón Gnarr ömmu sinni í bók-
inni Indjáninn. En amma hans er ekki ein
um þetta. Stundum er eins og þorri heilu
þjóðanna neiti að sjá og vilji helst láta
vernda sig og leiða. Þeir sem ala á óttanum
fá svo að leiða það. Dæmi:
GEORGE nokkur Wallace sagði, þegar hann
bauð sig fyrst fram sem fylkistjóri Alabama,
að ef hann væri ekki nógu mikill maður til
að virða fólk óháð kynþætti þess þá væri
hann ekki nógu mikill maður til að vera
fylkisstjóri. Þessi manngæskulegi mál-
flutningur skilaði honum engu og beið
hann afhroð. Lét hann þetta sér að kenn-
ingu verða og hóf hatramman áróður
gegn öðrum kynþáttum og tryggði
sér þannig langa setu sem fylkisstjóri.
Þegar svartir fengu kosningarétt dó
hann ekki ráðalaus og hóf áróður gegn
kommúnistum með glimrandi árangri.
HÉR á Spáni rekur hvert spillingar-
málið annað. Meðal annars hefur kom-
ist upp um svart bókhald Lýðflokksins þar
sem bókfært er á mestu ráðamenn flokks-
ins. Ekki er nóg með að þessir herrar svíki
af almenningi heldur lætur stjórnin það
fáa launafólk sem eftir er greiða vannærð-
um bönkum eins og Bankia sem hefur svo í
skjóli valdamanna skáldað afkomureikninga
sína. Reyndist þar gömlum fjármálaráðherra
úr Lýðflokknum ekki vera stirt um stef.
SÓSÍALISTAR geta trútt um talað því þeir
eru engir eftirbátar í þessum efnum en
kominn er fram á sjónarsviðið nýr flokkur,
Podemos, sem kalla mætti Við getum víst.
Eftir því sem honum vex fiskur um hrygg
leggja menn harðar að sér að reyna að finna
hneykslismál tengd nýliðunum en lítið hefur
áunnist. Það verður gaman að fylgjast með,
en áróðurinn um að hér fari allt á hliðina
ef nýi flokkurinn kemst til valda gefur til
kynna að ráðamenn trúi að til sé fullt af
augum sem ekki vilji sjá.
ÞAÐ væri svo að bera í bakkafullan læk-
inn að minnast á litlu þjóðina sem kenndi
tveimur flokkum um efnahagslegt og mór-
alskt hrun sitt en kaus þá svo aftur til valda
nokkrum árum síðar.
Allar þessar blindu ömmur