Fréttablaðið - 12.12.2014, Page 88
12. desember 2014 FÖSTUDAGUR| SPORT | 58
FÓTBOLTI Sigurganga Real Madrid
er þegar orðin söguleg á Spáni en
stórstjörnuliðið á Santiago Berna-
béu þarf að skrifa fleiri kafla í
sögubókina ætli liðið sér að verja
titilinn sinn í Meistaradeildinni.
Fimm önnur lið hafa náð í fullt
hús í riðlakeppni Meistaradeild-
arinnar frá því að hún var sofnuð
árið 1992 en ekkert þeirra hefur
unnið titilinn um vorið. Real
Madrid-menn voru í sömu stöðu
fyrir þremur árum og duttu þá
út í vítakeppni í undanúrslitum.
Spænska félagið er nú það eina
sem á tvö lið sem hafa náð fullu
húsi.
Real Madrid fagnaði sínum 19.
sigri í röð á þriðjudagskvöldið
þegar liðið vann 4-0 sigur á búlg-
arska liðinu Ludogorets Razgrad
í lokaleik sínum í riðlakeppninni.
Yfirburðir Real Madrid-liðsins
voru algjörir, það fékk ellefu stig-
um meira en næsta lið og öll hin
liðin voru með neikvæða markatölu.
„Ég geri mér grein fyrir því
að ég er með einstakan hóp leik-
manna,“ sagði Carlo Ancelotti
eftir sigurinn en með honum sló
liðið spænska metið sem erki-
fjendurnir í Barcelona settu undir
stjórn Franks Rijkaard tímabilið
2005 til 2006.
Evrópumeistararnir þurfa fimm
sigra í viðbót til að jafna heims-
met brasilíska liðsins Coritiba sem
vann 24 leiki árið 2011. Félagið
gæti tryggt sér annan til áður
en metið fellur því framundan er
Heimsmeistarakeppni félagsliða í
Marokkó í þessum mánuði.
„Ég er í mjög góðu sambandi
við leikmenn mína. Þeir eru mér
allir mjög mikilvægir og ég nota
hvert tækifæri til að þakka þeim,“
sagði Carlo Ancelotti en liðið hefur
nú unnið alla leiki sína síðan það
tapaði 1-2 fyrir Atlético Madrid
á heimavelli 13. september. „Ég
vissi að ég myndi fá svar frá
mínum leikmönnum en gat aldrei
ímyndað mér að svar leikmann-
anna væri að vinna næstu nítján
leiki,“ sagði Ancelotti.
Real Madrid fór taplaust í gegn-
um tíu fyrstu leiki sína í Meist-
aradeildinni 2011-12 (9 sigrar og 1
jafntefli) en tapaði þá fyrri und-
anúrslitaleiknum 2-1 á útivelli á
móti Bayern München. Real vann
seinni leikinn 2-1 en tapaði svo 3-1
í vítakeppni og var því úr leik.
Aðeins eitt af „fullkomnu“ lið-
unum hefur komist lengra en AC
Milan spilaði til úrslita vorið 1993
þegar sigurvegari riðilsins fór
beint í úrslitaleikinn. Hvort Real
Madrid komist svo langt eða jafn-
vel einu skrefi lengra kemur ekki í
ljós fyrr en á nýju ári en það efast
enginn um að það eru fá félög í
heiminum sem er betur mönnuð.
Hér á síðunni má sjá yfirlit yfir
hin fimm félögin sem unnu alla
leiki sína í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar en misstigu sig síðan
á leiðinni að bikarnum. - óój
Ekki svo fullkomin eft ir allt saman
Real Madrid varð í vikunni aðeins sjötta liðið sem nær fullu húsi í riðlakeppni Meistaradeildarinnar í fótbolta en hingað til hefur það
ekki boðað gott fyrir „fullkomnu“ liðin þegar þau spila í útsláttarkeppninni.
AC MILAN 1992-1993
6 sigrar í 6 leikjum
Markatala: +10 (11-1)
Þjálfari: Fabio Capello
- MARKASKORARAR Í RIÐLAKEPPNI -
Marco van Basten 4
Marco Simone 3
Frank Rijkaard 1
Jean-Pierre Papin 1
Stefano Eranio 1
Daniele Massaro 1
- FRAMHALDIÐ -
Tapaði 1-0 fyrir Marseille í úrslitaleiknum í
München. Basile Boli skoraði eina mark leiksins
á 43. mínútu.
PARIS SAINT-GERMAIN 1994-1995
6 sigrar í 6 leikjum
Markatala: +9 (12-3)
Þjálfari: Luis Fernandez
- MARKASKORARAR Í RIÐLAKEPPNI -
George Weah 6
Daniel Bravo 1
Paul Le Guen 1
Valdo 1
Vincent Guérin 1
David Ginola 1
Raí 1
- FRAMHALDIÐ -
Datt úr fyrir ítalska liðinu AC Milan í
undanúrslitum (0-1 og 0-2).
SPARTAK MOSKVA 1995-1996
6 sigrar í 6 leikjum
Markatala: +11 (15-4)
Þjálfari: Oleg Romantsev
- MARKASKORARAR Í RIÐLAKEPPNI -
Yuriy Nikiforov 3
Sergei Yuran 3
Ramiz Mamedov 2
Valeriy Kechinov 2
Dmitriy Alenichev 2
Valeriy Shmarov 1
Andrey Tikhonov 1
Ilia Tsymbalar 1
- FRAMHALDIÐ -
Datt út fyrir franska liðinu Nantes í átta liða
úrslitum (0-2 og 2-2).
BARCELONA 2002-2003
6 sigrar í 6 leikjum
Markatala: +9 (13-4)
Þjálfari: Louis van Gaal (Radomir Antić tók liðinu
við í janúar)
- MARKASKORARAR Í RIÐLAKEPPNI -
Javier Saviola 3
Patrick Kluivert 2
Luis Enrique 2
Gaizka Mendieta 1
Frank de Boer 1
Juan Román Riquelme 1 Dani García 1
Gerard López 1 Geovanni 1
- FRAMHALDIÐ -
Datt út fyrir ítalska liðinu Juventus í átta liða
úrslitum (1-1 og 1-2).
REAL MADRID 2011-2012
6 sigrar í 6 leikjum
Markatala: +17 (19-2)
Þjálfari: José Mourinho
- MARKASKORARAR Í RIÐLAKEPPNI
-Karim Benzema 4
José Callejón 4
Cristiano Ronaldo 3
Gonzalo Higuaín 2
Ángel Di María 1
Kaká 1
Sami Khedira 1 Sergio Ramos 1
Mesut Özil 1 Sjálfsmark 1
- FRAMHALDIÐ -
Datt út fyrir þýska liðinu Bayern München í
vítakeppni í undanúrslitum.
ÖRLÖG „FULLKOMNU“ LIÐANNA ÚR RIÐLAKEPPNI MEISTARADEILDARINNAR:
TVEIR FRÁBÆRIR Cristiano
Ronaldo og Gareth Bale.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Skaft ahlíð 24 | 105 Reykjavík | 512 5000 | Auglýsingar 512-5401 | visir.is
HELGARBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Ómissandi hluti af góðri helgi
FRÉTTABLAÐIÐ ER HELGARBLAÐIÐ
BÓKAÚTGÁFA ER FÍKN
Útgefendurnir Jóhann Páll Valdimarsson, Guðrún Vilmundar-
dóttir og Tómas Hermannsson ræða harða samkeppni á íslenskum
bókamarkaði, ástríðuna fyrir starfinu og spennufallið á aðfangadag eftir
jólabókaflóðið.
Aldrei fleiri flóttamenn
Sameinuðu þjóðirnar segja nærri 60 millj-
ónir manns þurfa á brýnni aðstoð að halda.
Andlegur
anarkisti
Gunný Ísis
Magnúsdóttir
talar um heim-
ildarmynd sem hún
gerði um svitahof,
fíkn, trú og tilraunir
til sjálfsheilunar.
Eins og að eiga sumar-
bústað fyrir austan
Ásgeir Guðmundsson flugstjóri
byggir lúxushús í miðri Kalahari-eyði-
mörkinni og veiðir villt dýr.