Fréttablaðið - 27.12.2014, Qupperneq 4
27. desember 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR |
Ég minni
á að elds-
neytiskostn-
aðurinn
skiptir
verulegu máli
í þessum
rekstri.
Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna.
4
50%
þjóðarinnar munu
hafa snætt hamborg-
arhrygg á aðfangadag.
runnu til snjómoksturs
hjá Reykjavíkurborg á
þessu ári.
500 milljónir
2,3 milljarðar er virði fj ölmiðla-umfj öllunar vegna Inspired by Iceland árin 2012 og 13.
2.000
starfsmönnum fj ár-
málafyrirtækja hefur
verið sagt upp frá
hruni.
80
21.12.2014 ➜ 28.12.2014
24 vörugám-ar hafa farið í
sjóinn af skipum Eim-
skips í desember.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
12
hross
drukknuðu
í Bessa-
staðatjörn
í vikunni.
3.500
Reykvíkingar, af
120.000, eru í
göngufæri við
vínbúð.
ferkílómetrar lands
eru komnir undir Norna-
hraun eft ir gos í Holu-
hrauni í 4 mánuði.
ht.is
UMBOÐSMENN UM LAND ALLT
AKRANES • AKUREYRI • HÚSAVÍK • EGILSSTAÐIR • SELFOSS • REYKJANESBÆR • REYKJAVÍK
Engin venjuleg upplifun
Við kynnum
Philips Ambilight
9000 sjónvörpin
Ultra HD
með Android
NEYTENDUR Ekki er útlit fyrir
að verð á leigubílaþjónustu eða
ferðum með hópbílum lækki á
næstu mánuðum þrátt fyrir að
bensínlítrinn hafi nú lækkað um
31 krónu, miðað við meðalverð á
árinu, og dísilolían um 25 krónur.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, gagnrýnir
að lækkunin hafi ekki skilað lægri
fargjöldum leigu- og hópbíla.
„Ég minni á að eldsneytiskostn-
aður skiptir verulegu máli í þess-
um rekstri og á auðvitað að skila
sér í lækkuðu verði til neytenda.
Verðlækkun á eldsneyti hefur
verið það mikil að það er ekki
annað réttlætanlegt en að þessi
fyrirtæki skili henni út í verðlag-
ið,“ segir Jóhannes.
Guðmundur Börkur Thoraren-
sen, framkvæmdastjóri Bifreiða-
stöðvar Reykjavíkur (BSR), segir
lækkun olíuverðs einungis koma
í veg fyrir að leigubílaþjónusta
fyrir tækisins hækki í verði.
„Staðan er þannig að það er eitt
og hálft ár síðan við hækkuðum
síðast og það kostar töluvert að
breyta mælunum því þeir þurfa
löggildingu og svo framvegis.
Þetta er kannski eins og hálfs til
tveggja prósenta launahækkun
fyrir bílstjórana þannig að við
erum allavega ekki að fara að
hlaupa til. En ef þetta helst svona
hefur þetta þau áhrif að það verð-
ur síður þörf fyrir verðhækkun,“
segir Guðmundur.
Hann býst ekki við að eftir-
spurn eigi eftir að dragast saman
á heimsvísu og þar af leiðandi
hljóti verðlækkanir nú að vera
tímabundnar.
„Við sveiflumst ekki eftir ein-
hverjum mánaðasveiflum á olíu-
verði,“ segir Guðmundur. Kristján
Daníelsson, framkvæmdastjóri
Reykjavík Excurs ions – Kynnis-
ferða, segir ekki útlit fyrir að
gjaldskrá hópbifreiða fyrir-
tækisins lækki á næstunni.
„Flestir okkar samningar eru
bundnir í erlendri mynt til lengri
tíma og því ekki mikið að marka
verðlækkanir sem ná yfir stutt
tímabil. Einnig hafa verðhækk-
anir á olíu ekki haft áhrif á verð-
miðann okkar hingað til,“ segir
Kristján.
Reykjavík Excursions ætlar að
hans sögn að taka tillit til olíu-
verðslækkunarinnar ef hún verð-
ur langvarandi. Spurður hversu
langur tími þurfi að líða, segir
Kristján:
„Það er erfitt að segja. Við
erum núna að semja mjög langt
fram í tímann og senda út verð
til erlendra samningsaðila fyrir
næsta sumar og jafnvel næsta
vetur. Við þyrftum því að sjá
þetta langvarandi í að lágmarki
sex mánuði.“ haraldur@frettabladid.is
Far með strætó og leigubílum
lækkar ekki í takt við eldsneyti
Lækkun eldsneytisverðs hefur engin áhrif á fargjöld leigubíla eða hópbifreiða. Formaður Neytendasamtakanna
gagnrýnir óbreytt gjald. Framkvæmdastjóri BSR segir þau hins vegar ekki geta sveiflast eins og olíuverð.
LEIGUBÍLAR Bensínlítrinn kostaði um 210 krónur fyrir jól. Samkvæmt upplýsingum frá Félagi íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB)
hefur meðalverð á bensíni á árinu verið um 240 krónur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LÖGREGLUMÁL Brotist var inn
í húsnæði Fjölskylduhjálpar
Íslands við Iðufell í fyrrinótt.
Engu var stolið þar sem þrjót-
arnir komust ekki í verðmæti.
Hins vegar voru rúður brotnar
í forstofu og gámi sem nýttur er
undir kertaframleiðslu.
„Þetta er skelfilegt og ég skil
ekki hvað fólki gengur til þar sem
við erum hjálparstofnun,“ segir
Ásgerður Jóna Flosadóttir, for-
maður Fjölskylduhjálpar.
Þetta hafi verið í fjórða sinn
í mánuðinum sem gerð sé til-
raun til að brjótast inn í húsnæði
félagsins. - skh, jóe
Fjórða innbrotið í desember:
Brotist inn hjá
Fjölskylduhjálp
INNBROT Rúður voru brotnar í hús-
næði því er Fjölskylduhjálp hefur til
afnota. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
SÝRLAND Safi al-Kasaesbeh, faðir
jórdanska flugmannsins sem var
handsamaður af ISIS eftir að her-
þota hans brotlenti í Sýrlandi á
dögunum, hefur biðlað til ISIS um
að koma vel fram við son sinn. „Ég
vil ekki lýsa honum sem gísl. Ég
kalla hann gest,“ sagði al-Kasa-
esbeh við Reuters-fréttastofuna.
„Hann er gestur meðal bræðra
okkar í hinu íslamska ríki Sýr-
lands. Ég bið þá í nafni guðs og
með sæmd spámannsins Múham-
eðs að friður sé með honum og að
þið takið við honum sem gesti og
farið vel með hann.“
Jórdanía er eitt af nokkrum
Arabaríkjum sem taka þátt í loft-
árásum gegn íslamska ríkinu. - þij
Brotlenti jórdanskri herþotu:
Faðir biðlar til
ISIS-samtakanna
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
BJART OG KALT á landinu í dag en á morgun snýst í stífa sunnanátt með hlýnandi
veðri. Yfirleitt úrkomulítið en þykknar upp vestan til með hvassviðri annað kvöld.
Hvöss suðlæg átt einnig á mánudag með mikilli rigningu sunnanlands.
-4°
3
m/s
-2°
4
m/s
-3°
5
m/s
1°
7
m/s
13-20
m/s V-til
annað
kvöld.
10-18 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
10°
26°
-13°
7°
11°
-6°
2°
1°
1°
22°
8°
17°
17°
12°
2°
-2°
1°
1°
-4°
5
m/s
0°
9
m/s
-3°
6
m/s
0°
5
m/s
-3°
3
m/s
-2°
5
m/s
-9°
6
m/s
5°
8°
3°
6°
2°
6°
0°
5°
2°
5°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
MÁNUDAGUR
Á MORGUN