Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 27.12.2014, Blaðsíða 38
FÓLK|HELGIN Steingrími Karli Teague, hljómborðsleikara og söngvara hljómsveitarinnar Moses Hightower, finnst það skemmtilegasta við jólin að þá koma þeir sem búa í útlöndum heim. „Mér finnst jólin sjálf fín en kannski hef ég spilað of mikið á jólahlaðborðum þegar ég var unglingur þannig að það eru ekki margar jólahefðir sem mér finnst ómissandi. Mér finnst mest gaman að vera með fjölskyldunni og vin- unum og slappa af. Kærastan mín býr í Dan- mörku og hún verður heima um hátíðirnar og flestir vinirnir líka. Ég er á þeim aldri að margir í kringum mig búa í útlöndum og við strákarnir í Moses Hightower höfum allir búið einhvers staðar úti og höfum ekki búið hér á landi á sama tíma síðan hljómsveitin var stofnuð. Ég og Andri Ólafsson, bassaleikari og söngvari, bjuggum í Hollandi, Magnús Trygvason Elias- sen trommari bjó í Noregi og gítarleikarinn okkar, Daníel Friðrik Böðvarsson, býr í Berlín. Hann er búinn að búa þar svo lengi að hann er kominn með aflitað hár eins og ég held að gerist bara þegar fólk er búið að búa nógu lengi í Þýskalandi, það eru einhvers konar ofnæmis- viðbrögð,“ segir Steingrímur á léttu nótunum. HNOÐA NÝJU EFNI SAMAN Aðspurður hvort meðlimir Moses Hightower séu góðir vinir segir Steini, eins og hann er kall- aður, að þeir séu alls engir vinir, þeir fljúgi hver í sinni einkaþotunni eins og meðlimir hljóm- sveitarinnar The Eagles og hittist bara á sviði. Hann dregur þó fljótt í land og segir að þeir séu mjög góðir vinir. „Það fer kannski óþarflega mikill tími í að hafa gaman og djóka af þeim annars litla tíma sem við höfum en við verðum að fá að gera það líka þar sem við hittumst svo sjaldan.“ Þeir verða allir á landinu yfir hátíðirnar og ætla að spila saman á Húrra á þriðjudaginn, 30. desember næstkomandi. Þá segir Steini að stefnan verði sett á að spila einhver ný lög. Eftir áramót ætla strákarnir í Moses High tower að fara í stúdíó til að taka upp nýja plötu. „Þegar Moses kemur saman reynum við að nýta tímann vel og við ætlum að reyna að hnoða ein- hverju nýju saman á nýju ári. Við lögðum upp með ákveðna hluti fyrir sjö árum þegar bandið var stofnað en ég held að við höfum ekki endað á því að gera nákvæmlega það sem ætluðum. Við vitum ekkert hvernig þetta fer núna, við erum búnir að semja slatta en svo breytist margt í stúdíói. Þegar við höfum gert plötur finnst okkur þær ekkert flottar á meðan við erum að gera þær, vonandi verður þetta bara okkur til sóma,“ segir Steini hógvær. SPILA LÍKA MEÐ ÖÐRUM BÖNDUM Hljómsveitin spilar sálarskotna tónlist og strákarnir syngja einungis á íslensku. Þeir hafa fengið fjölda tilnefninga til Íslensku tónlistar- verðlaunanna fyrir fyrri plötur sínar og meðal annars fengu þeir Steini og Andri verðlaun sem bestu textasmiðir ársins 2012 fyrir texta plöt- unnar „Önnur Mósebók“. „Ég held að tónlistin okkar væri ekkert svo sérstök ef við værum að syngja á útlensku. Þegar við vorum að byrja fannst fólki skemmtilegt að heyra að við værum að gera íslenska texta við svona tónlist. Okkur finnst líka öllum svo gaman að íslenskunni og það er skemmtilegt þegar maður nær að gera eitthvað sem fólki finnst sniðugt.“ Þeir félagar spila allir með öðrum hljómsveit- um sem hafa ferðast erlendis og spilað. „Þegar Moses er fengin til að spila í útlöndum er það yfirleitt þegar verið er að halda upp á norræna menningu eða eitthvað í sambandi við það. Við vorum til dæmis fengnir til að spila á Ís- lendingadeginum í Manitoba í Kanada í sumar. Það gekk vel og var mjög gaman en ég get ekki sagt að Moses Hightower stefni á heimsfrægð,“ segir Steini og hlær. STEFNA EKKI Á HEIMSFRÆGÐ SÁLARSKOTIN TÓNLIST Meðlimir hljómsveitarinnar Moses Hightower eru allir á landinu yfir hátíðirnar. Þeir spila á tónleikum næstkomandi þriðjudag og eru á leið í stúdíó eftir áramót til að taka upp nýja plötu. Allir textar Moses Hightower eru á íslensku og þegar þeir spila í útlöndum er það yfirleitt á viðburðum tengdum norrænni sögu eins og til dæmis á Íslendingadeginum í Manitoba. MOSES HIGHTOWER Strákarnir verða með tónleika á Húrra þann 30. desember þar sem þeir stefna á að flytja eitthvað af nýju efni. Frá vinstri: Andri, Magnús, Steini og Daníel er í stólnum. MYND/STEFÁN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.