Fréttablaðið - 27.12.2014, Side 44
KYNNING − AUGLÝSINGFerðir LAUGARDAGUR 27. DESEMBER 20142
Vail – Bandaríkin
Hinn rómaði bær Vail í Color-
ado er markaðsettur sem „uppá-
haldsskíðasvæði Bandaríkja-
manna“ og eitthvað er víst til
í því. Skíðasvæðið í Vail þekur
um 2.200 hektara og er stærsta
skíðasvæðið í Bandaríkjunum.
Í bænum má finna sér ýmislegt
annað til dundurs en að skíða
því þar eru þó nokkur listagallerí
og söfn, hægt að fara á hunda-
sleða, á skauta, í hokkí og margt
f leira.
Kitzbuhel – Austurríki
Kitzbuhel er af mörgum kölluð
„Perla Alpanna“ og er þekktasti
orlofsstaður austurrísku Týróla-
fjallanna. Skíðaiðkun hefur verið
stunduð í Kitzbuhel síðan 1892 og
þar er ein frægasta skíðabrekka
heims, „Streif“. Tækifæri til alls
kyns íþróttaiðkunar eru þar mörg
í fallegri náttúru og í borg með
mikla sögu. Hótel og veitinga-
staðir eru í hæsta gæðaflokki og
þar má einnig finna fullt af litlum
kaffihúsum og börum, disk ó-
tek, spilavíti og kvikmyndahús.
Sjarmi þessa sjö hundruð ára
gamla þorps er mikill.
Whistler Blackcomb –
Breska-Kólumbía
Í þessum himinháu fjöllum í
Kanada er að finna eitt besta
skíðasvæði Norður-Ameríku þar
sem lóðréttasta brekkan er til
staðar. Þetta hrífandi þorp hefur
allt það sem vetraríþróttaiðkend-
ur þurfa á að halda; kaffihús, al-
þjóðlegar verslanir og yfir hundr-
að veitingastaði sem bjóða upp á
allra þjóða matseld, meðal ann-
ars kínverska, franska, gríska,
ítalska, Miðjarðarhafs, mexí-
kóska og taílenska. Matur er
mikilvægur á þessum stað þar
sem skíðaiðkunin sem staður-
inn er þekktastur fyrir gerir fólk
svangt. Whistler varð fljótt einn
besti skíðastaður heims og hefur
margsinnis verið valinn besta
skíðasvæði Norður-Ameríku af
þeim sem þar búa. Japanar eru
líka mjög hrifnir af staðnum en
þeir hafa valið hann sem sinn
uppáhalds alþjóðlega orlofsstað
aftur og aftur.
Meribel – Frakkland
Í Meribel geta allir skíðaiðkend-
ur fundið brekkur við sitt hæfi og
skemmtilegt næturlíf auk þess
sem staðurinn er fjölskyldu-
vænn. Meribel hefur verið vin-
sæll áfangastaður síðustu sjötíu
ár og hefur þróast í takt við tím-
ann. Staðurinn sameinar ólíka
íþróttamenn, nautnaseggi, sæl-
kera, áhugamenn, börn og afa
og ömmur, heimamenn og gesti.
Saga og menning Meribel er
mjög lifandi og margt sem gleð-
ur trygga viðskiptavini staðarins.
Í gegnum tíðina hafa íbúar Meri-
bel hugsað vel um sína verðmæt-
ustu eign, fjöllin og umhverfi
þeirra.
Alyeska – Alaska
Allir þeir sem elska að skíða í
púðursnjó ættu að hafa Alyeska á
listanum sínum. Flestir sem fara
til Alaska í skíðaferð hafa stund-
að sportið í langan tíma og eru í
leit að einhverri öðru vísi upplif-
inu, svo sem fjallaskíðamennsku
eða þy rlusk íðamennsk u. Í
Alyeska hefur meðalsnjókom-
an síðastliðin þrjátíu ár verið yfir
sextán metrar sem er meira en
nóg til að halda skíðabrautunum
í góðu ástandi og utanbrautaleið-
unum líka í lagi. Byrjendur geta
líka fundið brautir við sitt hæfi í
Alyeska þar sem nóg er af rudd-
um brautum af öllum stærðum
og gerðum.
Aspen – Bandaríkin
Þeir sem vilja skíða með þeim
ríku og frægu ættu að fara til
Aspen í Colorado. Staðurinn er
þekktur fyrir brattar brekkur
sínar en þar geta allir fundið sér
brekku við sitt hæfi, sama á hvaða
stigi þeir eru. Í Aspen geta þeir
sem hafa nóg á milli handanna
valið úr frábærum gististöðum
en þar sem meirihluti gesta er
þokkalega fjáður er verðlagið þar
frekar hátt.
Cortina d‘Ampezzo – Ítalía
Cortina hentar minna reyndum
skíðamönnum ágætlega þótt þeir
vanari geti líkað fundið sér brattar og
góðar brekkur. Helsta aðdráttarafl
Cortina er hins vegar bærinn sjálf-
ur, menningin, matseldin og um-
hverfið sjálft fær fólk til að falla í stafi.
Bestu skíðasvæðin í heiminum
Þegar áfangastaður er valinn fyrir skíðaferðalagið eru margir þættir sem taka þarf tillit til og misjafnt hvað fólk leggur áherslu á í því
sambandi. Brekkur og lyftur, gististaðir, veitingastaðir, næturlíf, kostnaður og veðurfar eru allt þættir sem skipta máli. Allir þessir staðir
sem tilteknir eru hér eiga það sameiginlegt að þeir komast á hina ýmsu lista sem teknir hafa verið saman um bestu skíðasvæði í heimi.
Það er frelsandi að bruna niður skíðabrekkur í góðu veðri.
Aspen.
Whistler Blackcomb.
Kitzbuhel.
Vail. MYNDIR/NORDIC PHOTOS/GETTY
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmenn auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, jonatan@365.is, s. 512-5446 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Hreinsum
dúnúlpur
Háaleitisbraut 58-60, 108 Rvk - Sími 5531380