Fréttablaðið - 27.12.2014, Qupperneq 50
| ATVINNA |
Olíuverzlun Íslands hf.
Hjá Olís er lögð áhersla á góðan aðbúnað starfsfólks,
stuðning til náms og heilsueflingar, heiðarleika í
samskiptum, snyrtimennsku og fagleg vinnubrögð.
Við leitum að tveimur metnaðargjörnum einstaklingum í fjölbreytt og áhuga-
verð verkefni í upplýsingatæknideild Olís.
Annars vegar er um að ræða starf sérfræðings í upplýsingatækni og hins vegar
starf við notendaþjónustu og uppsetningu vélbúnaðar.
Viðkomandi þurfa að búa yfir hæfni í mannlegum samskiptum, sýna frum-
kvæði, geta unnið sjálfstætt, vera skipulagðir og hafa ríka þjónustulund.
Helstu verkefni:
Innleiðing á Dynamics CRM
CRM-aðlaganir og notendaþjónusta
Uppsetning og viðhald í BI umhverfi
Notendaþjónusta eftir þörfum
Afleysing kerfisstjóra
Tilfallandi verkefni í upplýsingatæknideild
Hæfniskröfur:
Háskólamenntun í tölvunarfræði
eða sambærileg menntun/reynsla
Þekking á Microsoft-kerfum
og netþjónum
Þekking á Dynamics CRM æskileg
Forritunarþekking í C# kostur
Þekking á Dynamics NAV kostur
Helstu verkefni:
Notendaþjónusta
Uppsetning á vél- og hugbúnaði
Viðhald og lagfæringar á vinnustöðvum
Uppsetning notenda í AD og aðgangsstýringar
Viðhald og rekstur á netbúnaði
Þjónusta við afgreiðslukerfi, sjálfsala og posa
Tilfallandi verkefni í upplýsingatæknideild
Hæfniskröfur:
Kerfisstjóranám eða sambærileg
menntun/reynsla
Þekking á Microsoft-kerfum
og netþjónum
Reynsla í uppsetningu vélbúnaðar
Þekking á afgreiðslukerfum kostur
Reynsla af sambærilegu starfi æskileg
Vinsamlega sendið umsókn ásamt ferilskrá í tölvupósti til starfsmannastjóra Olís,
Ragnheiðar Bjarkar, á rbg@olis.is, fyrir 5. janúar nk.
Tekið skal fram um hvort starfið er sótt með því að merkja umsóknina með annað hvort
Sérfræðingur í upplýsingatækni eða Notendaþjónusta og uppsetning vélbúnaðar.
PI
PA
R\
TB
W
A
·
S
ÍA
·
1
44
81
1
Viltu taka þátt í spennandi
uppbyggingarstarfi
í upplýsingatæknideild Olís?
Sérfræðingur í upplýsingatækni
Notendaþjónusta og uppsetning vélbúnaðar
Viðskiptablaðamaður
Viltu slást í hóp öflugustu blaðamanna landsins?
Okkur vantar blaðamann viðskiptafrétta á Vísi og Fréttablaðið.
Í boði er áhugaverð vinna á skemmtilegum vinnustað í stöðugri sókn.
Umsækjandi þarf:
• að hafa góða þekkingu á íslensku samfélagi og brennandi áhuga á málefnum líðandi stundar
• að hafa reynslu og brennandi áhuga á viðskipta- og þjóðmálum
• að hafa gott vald á íslenskri tungu
• að vera fær í mannlegum samskiptum
• að geta unnið undir álagi
Reynsla af frétta - og blaðamennsku er skilyrði. Áhugasamir sæki um á 365midlar.is.
Umsóknarfrestur er til 17. janúar. Frekari upplýsingar gefur Kristín Þorsteinsdóttir, aðalritstjóri 365, kristinth@365.is
Þjóðminjasafn Íslands er háskólastofnun og höfuðsafn á sviði menningar-
minja og rannsókna á menningarsögulegum minjum í landinu.
Hlutverk þess er að auka og miðla þekkingu á menningarminjum og sögu
íslensku þjóðarinnar. Þjóðminjasafn Íslands starfar m.a. á grundvelli laga
um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011, safnalaga nr. 141/2011 og laga um
menningarminjar nr. 80/2012.
Þjóðminjasafn Íslands auglýsir lausa til umsóknar
Rannsóknarstöðu í nafni
dr. Kristjáns Eldjárns
Við Þjóðminjasafn Íslands er sérstök rannsóknarstaða tengd nafni
dr. Kristjáns Eldjárns, fyrrum þjóðminjavarðar og forseta Íslands,
sbr. 3. gr. a. laga um Þjóðminjasafn Íslands nr. 140/2011.
Í reglugerð nr. 896/2006 segir: „Staðan er ætluð fræðimönnum, er
sinna rannsóknum á sviði íslenskrar menningarsögu sem fellur
undir starfssvið Þjóðminjasafns Íslands.“ Rannsóknaverkefnum
sem unnið er að í rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns er ætlað að
efla rannsóknastarfsemi Þjóðminjasafns Íslands. Við ráðningu í
stöðuna er m.a. tekið mið af rannsóknastefnu Þjóðminjasafnsins
og stöðu þess sem háskólastofnunar. Til greina kemur að tengja
sjálfstæða rannsókn við stór rannsóknaverkefni sem þegar er
unnið eða hefur verið unnið að innan safnsins.
Staðan er auglýst til eins árs. Fræðimaður skal senda inn umsókn,
þar sem verkefnið er vandlega skilgreint og hvernig það verði til
að efla menningarsögulegar rannsóknir. Verkefnið skal skilgreint
sem eins árs verkefni. Umsókn skal fylgja greinargerð um mennt-
un og reynslu af fræðistörfum.
Verkefni, eins og það er afmarkað, lýkur með formlegum
verklokum að ráðningartíma liðnum. Stefnt skal að því að
niðurstöður rannsókna verði birtar á viðurkenndum fræðilegum
vettvangi eftir verklok en auk þess skulu þær kynntar með
fyrirlestri, sýningu eða öðrum hætti innan Þjóðminjasafns Íslands.
Rannsóknarniðurstöður skulu jafnframt varðveittar í Þjóðminja-
safni Íslands.
Fræðimaður sem gegnir rannsóknarstöðu Kristjáns Eldjárns
hefur aðstöðu hjá og starfar innan rannsókna- og varðveislusviðs
Þjóðminjasafnsins. Fræðimaður skal leggja sitt af mörkum til að
efla rannsóknarstarf safnsins og taka þátt í að veita nýjum
straumum inn í fræðilega umræðu.
Í samræmi við ákvæði í reglugerð nr. 896/2006 ákvarðar Þjóð-
minjavörður um launakjör fræðimannsins, innan marka kjara-
samninga og fjárheimilda.
Umsókn með verkefnislýsingu og ferilskrá sendist Þjóðminjasafni
Íslands, Suðurgötu 43, 101 Reykjavík, eða á póstfangið
starfsumsokn@thjodminjasafn.is, í síðasta lagi 29. janúar 2015.
Upplýsingar eru veittar í síma 530 2200, eða í tölvupósti hjá
Önnu Lísu Rúnarsdóttur, settum þjóðminjaverði
(anna.lisa@thjodminjasafn.is).
27. desember 2014 LAUGARDAGUR12