Fréttablaðið - 27.12.2014, Síða 56
| 8 27. desember 2014 | miðvikudagur
MAGNÚS G.
ÞÓRÐARSON
RÚV
JANÚAR
Stjórn Ríkisútvarps-
ins tilkynnti þann
26. janúar að
ákveðið hefði verið
að ráða Magnús
Geir Þórðarson,
leikhússtjóra Borgar-
leikhússins, sem útvarpsstjóra. Magnús var
leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar frá árinu 2004
til 2008 þegar hann tók við Borgarleikhúsinu.
ORRI HAUKSSON
SÍMINN
FEBRÚAR
Orri Hauksson
tók við stöðu
forstjóra Símans
í febrúar þegar
rekstur fjarskipta-
fyrirtækisins og
móðurfélagsins
Skipta var sam-
einaður undir nafni Símans. Hann tók
við af Sævari Frey Þráinssyni, forstjóra
Símans til sjö ára.
SALÓME
GUÐMUNDSDÓTTIR
KLAK INNOVIT
FEBRÚAR
Salóme Guð-
mundsdóttir var
ráðin framkvæmda-
stjóri nýsköpunar-
og frumkvöðlaset-
ursins Klak Innovit í
febrúar. Salóme tók
við af Kristjáni Kristjánssyni en hún hafði áður
starfað sem forstöðumaður opna háskólans í
HR frá árinu 2011.
JÓN BJÖRNSSON
FESTI
FEBRÚAR
Jón Björnsson var
ráðinn forstjóri
Festa hf. þegar
framtakssjóðurinn
SÍA II keypti
hluta af innlendri
starfsemi Norvíkur
ásamt hópi fjár-
festa. Jón var áður forstjóri Orf Líftækni,
Magasin du Nord og Haga hf.
HELGI Þ. ARASON
LANDSBRÉF
MAÍ
Helgi Þór Arason
var ráðinn forstjóri
Landsbréfa í byrjun
maí. Hann var áður
forstöðumaður
markaðsviðskipta
í Landsbankanum
og tók við starfinu
af Sigþóri Jónssyni sem var ráðinn til
Straums fjárfestingarbanka.
SÆVAR FREYR
ÞRÁINSSON
365 MIÐLAR
MAÍ
Sævar Freyr
Þráinsson, fyrr-
verandi forstjóri
Símans, var ráðinn
aðstoðarforstjóri
365 miðla í maí.
Tveimur mán-
uðum síðar var tilkynnt að hann tæki við
starfi forstjóra fyrirtækisins af Ara Edwald.
SIGURÐUR PÁLL
HAUKSSON
DELOITTE
JÚNÍ
Í byrjun júní til-
kynnti Deloitte
um ráðningu
Sigurðar Páls
Haukssonar í
starf forstjóra
endurskoðunar-
og ráðgjafarfyrirtækisins. Sigurður hafði
þá verið meðeigandi í Deloitte frá árinu
2003.
JÓN ÓLAFUR
HALLDÓRSSON
OLÍS
JÚLÍ
Í júlí var tilkynnt
að Jón Ólafur Hall-
dórsson myndi
taka við starfi
forstjóra Olís en
Einar Benedikts-
son hafði óskað
í maí eftir því að fá að láta af störfum.
Einar hefur starfað hjá olíufélaginu sem
framkvæmdastjóri undanfarna tvo áratugi.
MAGNÚS ÞÓR
ÁSMUNDSSON
ALCOA FJARÐAÁL
OKTÓBER
Í haust var tilkynnt
um að Magnús Þór
Ásmundsson, for-
stjóri Alcoa á Íslandi,
myndi einnig gegna
starfi forstjóra Alcoa
Fjarðaáls. Magnús
tók við starfinu af Janne Sigurðsson þegar hún
var ráðin forstöðumaður upplýsingatæknimála
hjá Alcoa á heimsvísu.
SIGURHJÖRTUR
SIGFÚSSON
MANNVIT
OKTÓBER
Sigurhjörtur
Sigfússon var ráðinn
forstjóri Mannvits
í október en hann
hafði þá gegnt starfi
fjármálastjóra fyrir-
tækisins frá árinu
2012. Eyjólfur Árni Rafnsson, sem gegnt
hefur starfi forstjóra Mannvits síðustu12 ár,
lætur af störfum sem forstjóri um áramótin.
ÓLAFUR
STEPHENSEN
FÉLAG
ATVINNUREKENDA
OKTÓBER
Ólafur Stephensen
tók við starfi
framkvæmdastjóra
Félags atvinnurek-
enda í október.
Rúmum mánuði
áður lét hann af starfi ritstjóra Fréttablaðsins
og annarra fréttamiðla 365. Áður var hann
ritstjóri Morgunblaðsins og 24 stunda.
J
A
N
Ú
A
R
F
E
B
R
Ú
A
R
M
A
R
S
A
P
R
Í
L
M
A
Í
J
Ú
N
Í
J
Ú
L
Í
Á
G
Ú
S
T
S
E
P
T
E
M
B
E
R
O
K
T
Ó
B
E
R
N
Ó
V
E
M
B
E
R
D
E
S
E
M
B
E
R
KRISTINN D.
GRÉTARSSON
ORF LÍFTÆKNI
MARS
Kristinn D.
Grétarsson settist
í forstjórastól
Orf Líftækni og
dótturfélagsins
Sif Cosmetics
um miðjan mars.
Hann var áður forstjóri líftæknifyrirtækisins
Mentis Cura.
MARGRÉT SANDERS
SVÞ
MARS
Aðalfundur Sam-
taka verslunar og
þjónustu (SVÞ)
kaus Margréti
Sanders formann
félagsins í mars.
Tók hún við af Mar-
gréti Kristmanns-
dóttur sem sinnti formennsku fyrir SVÞ frá
árinu 2009.
HERDÍS D.
FJELDSTED
FSÍ
MARS
Herdís Dröfn
Fjeldsted var ráðin
framkvæmdastjóri
Framtakssjóðs Ís-
lands (FSÍ) í mars.
Hún hafði þá verið
fjárfestingarstjóri
FSÍ frá árinu 2010 og setið í stjórnum fjöl-
margra fyrirtækja.
VALGEIR M.
BALDURSSON
SKELJUNGUR
APRÍL
Stjórn Skeljungs
gekk frá ráðningu
Valgeirs Matthíasar
Baldurssonar,
framkvæmdastjóra
neytendasviðs
félagsins, í stöðu
forstjóra olíufélagsins í apríl. Valgeir hafði þá
starfað hjá Skeljungi í fimm ár og tók við af
Einari Erni Ólafssyni.
STEFÁN SIGURÐSSON
VODAFONE
MAÍ
Stjórn Vodafone réð
Stefán Sigurðsson í
starf forstjóra fjarskipta-
fyrirtækisins í maí síðast-
liðnum. Stefán gegndi
starfi framkvæmdastjóra
Eignastýringar Íslands-
banka frá árinu 2008.
Ómar Svavarsson, forstjóri
Vodafone frá árinu 2009,
lét af störfum þegar
ráðning Stefáns lá fyrir.
ALMAR
GUÐMUNDSSON
SAMTÖK IÐNAÐARINS
ÁGÚST
Samtök iðnaðarins (SI)
tilkynntu í lok ágúst
að Almar Guðmunds-
son hefði verið ráðinn
framkvæmdastjóri sam-
takanna. Hann var áður
framkvæmdastjóri Félags
atvinnurekenda og þar
á undan vann hann við
ýmis stjórnunarstörf innan
Íslandsbanka. Almar tók
við af Kristrúnu Heimis-
dóttur sem lét af störfum
hjá SI í ágúst eftir aðeins
níu mánuði í starfi.
GUÐRÚN
HAFSTEINSDÓTTIR
SAMTÖK IÐNAÐARINS
MARS
Guðrún Hafsteinsdóttir,
markaðsstjóri Kjöríss, var
kjörin formaður Samtaka
iðnaðarins (SI) á aðal-
fundi samtakanna í mars.
Hún og Svana Helen
Björnsdóttir, fyrrverandi
formaður SI, gáfu báðar
kost á sér í formanns-
embættið.
GUÐMUNDUR I.
ÁSMUNDSSON
LANDSNET
OKTÓBER
Stjórn Landsnets réð Guð-
mund Inga Ásmundsson í
starf forstjóra fyrirtækisins
í lok október. Guðmundur
hefur verið aðstoðarfor-
stjóri Landsnets frá árinu
2008 og tekur við starfinu
núna um áramót af Þórði
Guðmundssyni sem
hefur stýrt fyrirtækinu frá
stofnun þess. Guðmundur
Ingi hóf störf hjá Lands-
virkjun að námi loknu
og var ráðinn kerfisstjóri
Landsnets árið 1993.
Mannabreytingar á árinu 2014
Mörg af stærstu fyrirtækjum landsins réðu nýja stjórnendur á árinu. Má þar nefna fjarskiptafyrirtækið Voda-
fone, Samskip og Deloitte. Markaðurinn tók saman helstu mannabreytingar á árinu sem nú er að líða.
ELÍN JÓNSDÓTTIR
VÍB
JÚLÍ
Elín Jóns-
dóttir var ráðin
framkvæmdastjóri
VÍB, eignastýr-
ingarþjónustu
Íslandsbanka, og
tók þá sæti í fram-
kvæmdastjórn
bankans. Elín tók við af Stefáni Sigurðssyni
sem var áður ráðinn forstjóri Vodafone.
MAGNÚS
GARÐARSSON
UNITED SILICON
JÚLÍ
Magnús Garðars-
son var ráðinn
framkvæmdastjóri
United Silicon í
júlí. Fyrirtækið
vinnur að byggingu
kísilverksmiðju í
Helguvík en Magnús bjó áður og starfaði í
Danmörku.
HANNES FRÍMANN
HRÓLFSSON
VIRÐING
JANÚAR
Hannes Frímann
Hrólfsson var
ráðinn fram-
kvæmdastjóri
Virðingar þegar
félagið sameinað-
ist Auði Capital
þann 8. janúar. Hann var áður forstjóri
Auðar Capital.
EYJÓLFUR
GUÐMUNDSSON
HÁSKÓLINN Á
AKUREYRI
MAÍ
Dr. Eyjólfur Guð-
mundsson var
ráðinn rektor Há-
skólans á Akureyri
(HA) um miðjan
maí. Alls bárust sjö
umsóknir um starfið. Eyjólfur starfaði áður sem
sviðsstjóri greiningar og aðalhagfræðingur CCP.
PÁLMAR ÓLI
MAGNÚSSON
SAMSKIP
JÚNÍ
Markaðurinn
greindi frá því þann
4. júní síðast-
liðinn að Pálmar
Óli Magnússon
hefði verið ráðinn
forstjóri Samskipa
á Íslandi. Pálmar var áður framkvæmdastjóri
framkvæmdasviðs Landsvirkjunar í þrjú ár og
starfsmaður Samskipa frá árinu 1998-2011.