Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 72

Fréttablaðið - 27.12.2014, Page 72
27. desember 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 40 „Það eru ekki ákveðin spor heldur er farið eftir grunni í sambandi við öndun og hvernig við hreyfum okkur. Við erum að finna okkar eigin dans og frelsa dansarann sem býr í okkur,“ segir Sigurborg Kr. Hannesdóttir, 5rytma kennari. 5rytma dansinn var þróaður af Gabrielle Roth og snýst ekki um ákveð- in dansspor heldur um fimm rytma, flæði, stakkató, kaos, lýrík og kyrrð. „Þegar við dönsum verður til alda. Við keyrum orkuna smátt og smátt upp og endum í kyrrðinni. Þannig flæðir líka lífsorkan, hún er eins og alda.“ En að sögn Sigurborgar er dansinn manninum eðlislægur. „Eins og við sjáum hjá börnum þegar þau heyra tónlist eða takt, þau byrja bara að hreyfa sig.“ Sigurborg kynntist 5rytma dans- inum árið 1999. „Ég var búin að taka ákvörðun um að flytja, fara í óvissuferð og láta lífið leiða mig,“ segir hún. „Ég átti kass- ettu með tón- list sem Roth hafði gefið út og próf- aði að dansa sjálf inni í eldhúsi og það hjálpaði mér mikið. Það má eigin- lega orða það þannig að ég hafi dansað mig í gegnum breytingarnar,“ segir hún glöð í bragði. Árið 2008 lauk Sigurborg kennara- þjálfun hjá Roth. „Þetta er svolítið skylt hugleiðslu og jóga að því leyti að við við erum að tengjast kjarnanum, sálinni og andanum í gegnum líkam- ann.“ Hún segir tjáninguna sem hún upplifir í gegnum 5rytma dansinn sér mikilvæga. Undanfarin ár hefur hún haldið nám- skeiðið Veldu þína leið, stuttu fyrir ára- mót. „Námskeiðið styður okkur í því að fara í gegnum þessi tímamót. Við þekkjum það öll að líta yfir farinn veg, sjá ártalið hverfa á sjónvarpsskjánum og strengja áramótaheit sem endast misjafnlega vel.“ Á námskeiðinu skipar 5rytma dans- inn veigamikið hlutverk. „Alls konar hlutir sem við upplifum á einu ári, gleði og sorgir. Stundum eru erfiðleik- ar, missir og sigrar og við horfum yfir þetta allt saman og kveðjum það. Við gerum þetta að mestu leyti í gegnum dansinn og hreyfingu og það er dýpra en þegar maður gerir það í huganum.“ Einnig vinna þátttakendur klippimynd með markmiðum fyrir árið auk þess sem markþjálfi verður til aðstoðar. Námskeiðið verður haldið í Yogavin og hefst klukkan ellefu í dag. gydaloa@frettabladid.is TÍMAMÓT Námskeiðið styður okkur í því að fara í gegnum þessi tímamót. Við þekkjum það öll að líta yfir farin veg, sjá ártalið hverfa á sjón- varpsskjánum og strengja ára- mótaheit. MERKISATBURÐIR 1394 Jörundarkirkja á Hólum brotnar í ofsaveðri. 1904 Abbey Theatre opnað í Dublin. 1919 Sænska kvikmyndafyrirtækið Svensk Filmindustri er stofn- að. 1936 Ungmennafélagið Valur er stofnað á Reyðarfirði. 1945 Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Alþjóðabankinn eru stofnaðir. 1956 Staðfest eru lög um bann við hnefaleikum á Íslandi, bæði keppni og sýningu. 1986 Snorri Hjartarson, bókavörður og skáld, lést 80 ára gamall. Hann var eitt virtasta skáld á Íslandi og hlaut bók- menntaverðlaun Norðurlandaráðs 1981 fyrir bókina Hauströkkrið yfir mér. 1988 Fyrsta fasta bílnúmerið í nýju núm- erakerfi sett á bifreið Halldórs Ásgríms- sonar dómsmálaráðherra, HP741. Nýja kerfið gekk í gildi í árs- byrjun 1989. 2008 Ísraelar hefja hernaðaraðgerðina Operation Cast Lead á heimastjórnarsvæði Palestínumanna á Gasaströndinni. Á þessum degi árið 1932 var hið þekkta kennileiti, Radio City Music Hall, opnað í byggingunni Rockefeller Center á Man- hattan í New York. Radio City Music Hall var hannað af arkitektinum Edward Durell Stone og innanhússarkitektinum Donald Deskey í svokölluðum Art Deco-stíl. Þegar húsið var opnað fyrir almenn- ingi var meiningin að þar færi aðeins fram háklassa skemmtun sem hafði verið vöntun á. Fyrsta sýningin skartaði stjörnunum Ray Bolger, Doc Rockwell og Martah Graham en sló ekki í gegn. Því var ákveðið strax í janúar að sýna kvikmyndir og styttri skemmtisýningar í húsinu. Fyrsta bíómyndin sem var sýnd þar var The Bitter Tea of General Yen með Barböru Stanwyck í aðalhlutverki og varð Radio City Music Hall þekkt fyrir frumsýningar sínar. Á áttunda áratug síðustu aldar byrjaði að halla undan fæti þar sem erfitt var fyrir forsvarsmenn Radio City Music Hall að tryggja sér myndir sem ekki voru sýndar annars staðar. Árið 1979 var reglu- legum bíósýningum hætt. Nú er fókusinn í húsinu að halda tónleika og aðrar sýningar en stundum er breytt út af vananum og sýndar þar kvikmyndir. Þá hefur mörgum viðburðum verið sjónvarpað úr Radio City Music Hall síðustu ár, þar á meðal Grammy- og Tony- verðlaununum og drætti í NFL-deildinni. - lkg ÞETTA GERÐIST: 27. DESEMBER ÁRIÐ 1932 Radio City Music Hall opnað Dansaði sig í gegnum breytingar í eldhúsinu Sigurborg Kr. Hannesdóttir hefur lagt stund á 5rytma dans síðastliðin fi mmtán ár og hefur undanfarin ár haldið námskeiðið Veldu þína leið, rétt fyrir áramót. SIGURBORG Byrjaði að dansa í eldhúsinu heima hjá sér. MYND/SIGURBORG Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGURLÍNA INGADÓTTIR Hlíðargerði 2, Reykjavík, lést á Landspítalanum laugardaginn 20. desember. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 29. desember klukkan 13.00. Garðar Svavarsson Guðrún Garðarsdóttir Rytter Jacob Rytter María Garðarsdóttir Hrafn Þór Jörgensson og barnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa, sonar og bróður, SIGURÐAR BALDURSSONAR læknis, Blikahjalla 14, Kópavogi, sem varð bráðkvaddur í Svíþjóð 20. október. Jóhanna Ingvarsdóttir Jóhanna María Sigurðardóttir Arnar Þórisson Erna Guðrún Sigurðardóttir Jón Axel Jónsson Baldur Sigurðsson Hera Líf Liljudóttir Ingvar Sigurðsson Helen Jónsdóttir Sigurveig Þórarinsdóttir Þórarinn Baldursson Gunnar Baldursson Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Davíð Ósvaldsson útfararstjóri Óli Pétur Friðþjófsson útfararstjóri 551 3485 • www.udo.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.