Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 31
95
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Gígurinn og misgengin tilheyra eld-
stöðvakerfi Trölladyngju á Reykja-
nesi. Gossögunni má skipta í fjóra
þætti eða lotur og í hverri hrinu
runnu ólíkar hrauntungur frá gíg-
num (2. mynd).
I. Straumsvíkurlota. Í upphafi goss
rann hraunið niður í sigdalinn
og eftir honum til suðvesturs í
átt að Kaldárbotnum. Þar hefur
það sveigt til vesturs og síðan til
norðvesturs hjá Stórhöfða og
runnið til sjávar í Straumsvík og
þar í grennd. Nær allur sá hraun-
straumur er nú hulinn yngri
hraunum, en komið hefur í ljós
að Búrfellshraun leynist þar
undir. Við boranir hjá nýrri
skolphreinsistöð við ströndina
austur af Álverinu í Straumsvík
sást að hraunið er þar að finna.3
Yfirborð þess er á 15,5 m dýpi í
borholunni, eða 8 m undir sjávar-
máli. Nýverið benti Haukur
Jóhannesson greinarhöfundi á að
Búrfellshraun sæist hugsanlega
á yfirborði á dálitlum bletti í
svokölluðu Selhrauni sunnan
við Straumsvík. Á jarðfræði-
korti hefur þetta hraun verið
nefnt Selhraun 1 og uppruni
þess talinn óljós en tekið er fram
að um dyngjuhraun sé að ræða.4
Ekkert í landslaginu mælir gegn
því að Búrfellshraun gæti hafa
runnið þarna yfir en bæði útlit,
berggerð og dílasamsetning,
sem og aldursafstaða hraunsins
til annarra hrauna, benda til
þess að þetta sé Búrfellshraun-
ið.
II. Lambagjárlota. Næsti kafli í
gossögunni hófst þegar hraun-
ið hafði hlaðið vel undir sig og
komst yfir misgengisþröskuld
við Kaldá. Þá gat það farið að
renna niður með Ásfjalli og
hefur hugsanlega náð til sjávar
utan við Hamarinn í Hafnarfirði.
Ystu tungur hraunsins þar eru nú
huldar yngri hrauntungum sem
runnu í þriðja kafla gossins. Á
þessum tíma myndaðist Lamba-
gjá, sem er hrauntröð við Kaldár-
botna (2. mynd).
III. Urriðavatnslota. Þegar enn lengra
leið á gosið fyllti hraunið sigdal-
inn neðan við Búrfell og komst
yfir misgengisstalla við Smyrla-
búð. Þá hætti það að flæða niður
með Ásfjalli en rann þess í stað
niður með Vífilsstaðahlíð, stíflaði
uppi Urriðavatn og náði til sjávar
bæði við Hafnarfjörð og í Arnar-
nesvogi. Þessa leið hefur hraunið
runnið alllengi og þá hefur Búr-
fellsgjáin og hellarnir í tengslum
við hana myndast og verið megin-
farvegur hraunstraumsins frá
gígnum (2. mynd).
IV. Goslok. Við goslok virðist hraun-
ið hafa hætt að flæða um Búrfells-
gjána og tekið að streyma um
undirgöng til suðurs frá gígnum.
Þar urðu til sérkennilegar hraun-
tjarnir sem tæmdust í goslok og
mynduðu Kringlóttugjá (2. mynd).
Erfitt er að gera sér grein fyrir
hversu lengi gosið stóð. Ekkert
bendir þó til mikils gosofsa og
hrauntraðir og hellar í hraunum
þurfa oftast nokkurn tíma til að
myndast. Það er því líklegt að
gosið hafi staðið alllengi, jafnvel í
eitt til tvö ár.
Land hefur sigið nokkuð á höfuð-
borgarsvæðinu síðan þetta var og
að auki stóð sjór nokkrum metrum
lægra í heimshöfunum þá en hann
gerir nú, svo ystu tungur hraunsins
teygja sig út fyrir ströndina. Í bor-
holunni við skolphreinsistöðina hjá
álverinu í Straumsvík sést að sjávar-
borð var a.m.k. 8 m neðar en nú og
Guðmundur Kjartansson nefnir að
aðstæður í Hafnarfirði sýni að sjór
gæti hafa staðið um 10 m neðar en í
dag þegar hraunið rann.2
Búrfellshraun er miðlungshraun
að stærð á íslenskan mælikvarða.
Flatarmál þess á yfirborði er rúm-
lega 16 km2. Ekki er gott að átta sig
á hversu stórt hraunið hefur verið
í upphafi því yngri hraunstraumar
hafa runnið yfir það og þekja nánast
alla álmuna sem teygði sig til sjáv-
ar við Straumsvík. Hér er reiknað
með því að þriðjungur hraunsins
sé hulinn og það sé því 24 km2
að flatarmáli. Jón Jónsson álítur
meðalþykkt þess vera um 20 m og
byggir það á borholugögnum frá
Hafnarfirði og Garðabæ.5 Rúmmál
hraunsins er því um 0,5 km3.
Búrfellshraun er með elstu hraun-
um sem vitað er um á Heiðmerkur-
svæðinu. Guðmundur Kjartansson
jarðfræðingur lét gera aldursgrein-
ingar á gróðurleifum undir og ofan á
því og birti um það grein í Náttúru-
fræðingnum (1. tafla).2 Þegar aldurs-
greiningarnar eru umreiknaðar yfir í
raunaldur fæst að fjörumórinn undir
hrauninu er um 8100 ára.6 Hraunið
sjálft er lítið eitt yngra, eða að lík-
indum rétt um 8000 ára og hefur
því runnið um 6000 f.Kr. Á þessum
tíma er talið að hið almenna yfirborð
heimshafanna hafi staðið um 10 m
lægra en nú.7 Athugunum á hraun-
inu, sem fyrr hefur verið greint frá,
ber saman við þetta.
Hrauntraðir
Miklar hrauntraðir mynduðust í
Búrfellshrauni meðan á gosinu stóð,
1. tafla. Aldursgreiningar á Búrfellshrauni.2 Kvarðaður aldur er fenginn með Calib 5.0
hugbúnaði sem og IntCal04 gagnasettinu.6 Aldur BP miðast við 1950 e.Kr. – Age deter-
minations for Búrfellshraun lava. Dates were calibrated using Calib 5.0 and the
IntCal04 calibration dataset. Ages BP refer to the year 1950 AD.
Nr.
– No.
Sýni
– Sample
14C aldur PB
– 14C age BP
Kvarðaður aldur PB
– Calibrated age BP
Ár f.Kr.
– Years BC
K-1758
Birkilurkar yfir
Búrfellshrauni 5850 ± 110 6657 ± 127 4581–4835
K-1756
Fjörumór fast undir
Búrfellshrauni 7240 ± 130 8062 ± 123 5990–6236
K-1757 Neðstu jurtaleifar 8740 ± 140 9732 ± 186 7597–7968