Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 37
101
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Anton Galan og Hrafnkell Eiríksson
1. mynd. Töskukrabbi (Cancer pagurus). Ljósm./Photo: Anton Galan.
Ritrýnd grein
Náttúrufræðingurinn 77 (3–4), bls. 101–106, 2009
Töskukrabbi
Þann 10. desember 2004 fang-
aði netabáturinn Gullfari HF 290
óvenjulegan krabba eina sjómílu
suður af Hópsnesvita við Grindavík
(63°48’N–22°24’V), á um 80 metra
dýpi. Krabbinn var afhentur Hús-
dýragarðinum í Reykjavík, en þann
14. desember (eða fjórum dögum
síðar) var Hafrannsóknastofnuninni
gert viðvart um fundinn. Krabbinn
drapst rétt áður en hann var tek-
inn til greiningar og reyndist þar
vera á ferðinni töskukrabbi Cancer
pagurus Linnaeus, 1758 samkvæmt
flokkunarlykli Zariquiey1 og fleiri
heimildum (1. mynd).2,3
Á Náttúrugripasafni Vestmanna-
eyja er til sýnis eitt eintak af tösku-
krabba sem samkvæmt heimildum
safnsins veiddist við Eyjar á sjöunda
áratug síðustu aldar. Í „The Zoology
T vær krabbategundir af ættkvíslinni Cancer veiddust við suðurströnd Íslands árin 2004 og 2005 og nefnast þær töskukrabbi (Cancer pagurus) og tannkrabbi (Cancer bellianus). Töskukrabbinn var veiddur af netabát
suður af Grindavík í desember 2004, karldýr, 170 mm að breidd. Hann er sú
krabbategund við strendur Evrópulanda sem mest er veitt af og hefur hvað
mest viðskiptalegt gildi. Hér er um að ræða fyrsta staðfesta fundarstað
töskukrabba við Ísland. Tvö eintök tannkrabba voru veidd af netabátum á
slóðum austur af Vestmannaeyjum í september árið 2005 og voru bæði
dýrin karldýr, 182 mm og 193 mm að breidd. Áður hafði einn slíkur veiðst
árið 1959. Krabbinn er sjaldséð tegund sem ekki er nýtt. Höfundar þessarar
greinar nefndu krabbann tannkrabba.
Á árunum 2006–2008 hefur einn krabbi til viðbótar af ættkvíslinni Cancer
fengist á nokkrum stöðum við Faxaflóa og Breiðafjörð og hafa höfundar
nefnt hann klettakrabba (Cancer irroratus). Klettakrabbi er algeng tegund
við austurströnd Norður-Ameríku og eru nytjar talsverðar.
Erlend heiti
Cancer pagurus Linnaeus, 1758.
Edible crab (enska)
Tourteau (franska)
Buey de mar (spænska)
Cancer bellianus Johnson, 1861.
Toothed rock crab (enska)
Tourteau denté (franska)
Buey dentudo (spænska)
Cancer irroratus Say, 1817.
Atlantic rock crab (enska)
Tourteau poinclos (franska)
Jaiba de roca amarilla (spænska)
Tösku-, tann-
og klettakrabbar
cm