Náttúrufræðingurinn - 2009, Side 57
121
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Náttúrufarsannáll 2007
Árni Hjartarson og Droplaug Ólafsdóttir
Veður
Árið 2007 var með hlýrri árum og að ýmsu leyti
dæmigert fyrir hin mildu ár sem áratugurinn á undan
einkenndist af. Í tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar, sem
Trausti Jónsson hefur tekið saman, má sjá að veturinn
var tíðindalítill framan af, engin stórviðri og þorrinn
heldur bitlítill. Það var ekki fyrr en í apríl að dró til
tíðinda og þá vegna hlýinda. Heitir loftmassar flæddu í
tvígang yfir landið. Í upphafi mánaðar gekk hitabylgja
yfir austanvert land þannig að hiti í Neskaupstað varð
21,2°C. Slíkur hiti hefur ekki mælst svo snemma árs
áður. Síðari bylgjan kom í mánaðarlok og gætti hennar
um mestallt land. Þá féll landshitamet aprílmánaðar
með 23,0°C hita í Ásbyrgi. Gamla apríl-metið var frá
Hallormsstað 2003. Þessi hlýindi entust þó ekki lengi
því maí var fremur kaldur, þótt hvergi væri hægt að
tala um vorhret. Júní var hins vegar hlýr og sólríkur og
ákaflega þurr, einkum norðaustanlands. Á Akureyri var
þetta þurrasti júní frá upphafi mælinga, með 0,4 mm
úrkomu. Þurrkarnir héldu síðan áfram í júlí og fram í
ágúst, einkum um vestanvert land, grunnvatnsstaða
varð óvenjulág og vatnsból þornuðu svo víða ríkti
vandræðaástand. Um miðjan ágúst breytti um veðurlag;
bjartviðri, hlýindi og þurrkar viku fyrir dumbungsveðri
og rigningum og það veðurlag einkenndi síðsumarið
og haustið og allmörg staðbundin úrkomumet voru sett
í október. Desember var mjög úrkomusamur og hlýr en
einkenndist þó helst af stórviðrum er krappar lægðir
gengu yfir landið. Tjón varð í stormum um miðjan
mánuð í Hafnarfirði, Borgarnesi og víðar og björgunar-
sveitir áttu annríkt. Árið kvaddi síðan með enn einum
storminum sem olli töfum á flugi og enn voru björg-
unarsveitir á þönum út um borg og bý.
Jöklar
Úr jökulheimum var lítið um nýnæmi þetta árið og
flestir eða allir jöklar létu heldur undan síga. Oddur
Sigurðsson skrifar um sporðamælingar í Fréttabréf
Jöklarannsóknarfélagsins og þar kemur fram að slíkar
mælingar fara árlega fram við hátt í 50 jökla. Haustið
2007 hafði Heinabergsjökull einn gengið fram en þar
sem hann er á floti í jökullóni hegðar hann sér ekki í
samræmi við loftslag nema til langs tíma litið. Nú er
enginn framhlaupsjökull í gangi og er það í fyrsta sinn
í tæpa tvo áratugi sem svo hagar til. Reykjafjarðarjökull
og Búrfellsjökull hafa verið í framhlaupsham undan-
farin ár en höfðu báðir hörfað lítillega haustið 2007.
Skriðuföll
Gríðarmikið berghlaup varð við Morsárjökul. Aðal-
hrunið varð 20. mars en síðan hljóp smærri fylla fram
17. apríl. Þorsteinn Sæmundsson jarðfræðingur skoð-
aði ummerki ásamt fleirum. Urðartungan á jöklinum
er um 1600 m löng og um 720.000 m2 að flatarmáli.
Brotsárið í fjallshlíðinni er um 330 m hátt. Rúmmál
bergsins sem hljóp fram er talið um 4 milljónir m3, sem
jafngildir um 10 milljón tonnum. Urðin er afar stórgrýtt
og björg allt að 8 m í þvermál eru algeng. Ástæður
hlaupsins eru undangröftur jökulsins í hlíðinni neðan
brotsins. Áratugir eru síðan jafnmikið berghlaup hefur
orðið hérlendis.
Jarðskjálftar
Árið var fremur rólegt á jarðskjálftasviðinu. Smáskjálft-
ar voru tíðir við Herðubreiðartögl og undir Goðabungu
í Mýrdalsjökli en engar stórar hrinur urðu á þessum
stöðum. Mesta skjálftahrina ársins varð 70–80 km suð-
vestur af Reykjanesi í febrúarlok. Stærstu skjálftarnir
eru taldir hafa náð 4,7–4,8 stigum. Önnur hrina varð
síðan nær landi á Reykjaneshrygg þann 10. apríl og þar
náði stærsti skjálfti 4,6 stigum.
Í apríl fór að verða vart við skjálftavirkni undir
Upptyppingum sem hélt síðan áfram í hrinum út árið.
Virkni þessi er óvenjuleg að því leyti hversu djúpt hún
liggur í jarðskorpunni, eða á 15–20 km dýpi. Allt eru
þetta smáskjálftar.
Hrina skjálfta varð við Selfoss 20. nóvember og var
stærsti skjálftinn í hrinunni 3,5 stig.
Í nóvember urðu einnig skjálftahrinur við Lang-
jökul, önnur um miðjan mánuð í Þjófadölum og á línu
Berghlaup varð við Morsárjökul. Ljósm.: Þorsteinn Sæmundsson.