Náttúrufræðingurinn - 2009, Síða 60
Náttúrufræðingurinn
124
Göngumynstur farfiska virðist einnig hafa verið
óhefðbundið. Þannig gekk makríll (Scomber scombrus)
í óvenjumiklum mæli inn í íslenska lögsögu austur
af landinu yfir sumarmánuðina og veiddust um 90%
af makrílafla íslenskra fiskiskipa innan landhelginnar.
Göngumynstur loðnunnar hefur einnig verið að
breytast síðustu ár og útbreiðsla eins og tveggja ára
loðnu síðla sumars 2007 takmarkaðist aðallega við
svæði meðfram landgrunnsbrún Austur-Grænlands í
stað þess að dreifast um allt Íslandshaf, djúpt norður
af landinu, eins og títt var á níunda og tíunda ára-
tugnum. Loðnuganga kynþroska fisks upp á landgrunn-
ið veturinn 2007–2008 skilaði sér síðan seint og varð
mun minni en búist var við. Athugun í ágúst sýndi að
þorskseiði dreifðust mun norðar úti fyrir Norðurlandi
en áður hefur sést í lok sumars.
Ástand sandsílastofnsins var enn bágborið eftir
nýliðunarbrest tvö til þrjú undangengin ár. Einhver
nýliðun virðist hafa tekist í Breiðafirði og Faxaflóa en
alger brestur virðist hafa endurtekið sig undan suður-
ströndinni. Af þeim sökum misfórst klak sjófugla eða
ungar komust ekki á legg. Enn fremur virðist skortur á
síli hafa haft áhrif á útbreiðslu hvala, eins og m.a. kom
fram í fáum hrefnum á landgrunninu í umfangsmikl-
um hvalatalningum sumarið 2007.
Þrátt fyrir merki um hlýnandi veðurfar í sjónum
gerðu hánorrænir hvalir sér ferðir upp að landinu. Í
janúar bárust fregnir af náhval (Monodon monoceros)
reknum á fjörur fyrir botni Lónafjarðar í Þistilfirði.
Enn fremur gerði mjaldur (Delphinapterus leucas) sig
heimakominn í Njarðvíkinni við Borgarfjörð eystra í
nokkra daga í byrjun maí. Hvalurinn sást vel frá landi
og vakti þessi sjaldgæfi gestur verðskuldaða athygli.
Austfirðingar eru ekki með öllu ókunnugir mjaldri
því annar hvalur sömu tegundar hélt til á Seyðisfirði
í nokkra daga í júní 2006. Meginheimkynni náhvals
og mjaldurs í NA-Atlantshafi eru hins vegar í Íshafinu
norðan Íslands og allajafna líða mörg ár milli þess sem
þessir hánorrænu gestir sjást við landið.
Kárahnjúkar
Miðlunarlón Kárahnjúkavirkjunar, Hálslón, stækkaði
hægt í byrjun árs en óx örar með vor- og sumarleys-
ingum og var orðið fullt í lok október, rétt rúmu ári eftir
að lokað var fyrir botnrás Kárahnjúkastíflu. Stíflurnar
sem mynda lónið eru auk Kárahnjúkastíflu (193 m há),
Desjarárstífla (60 m) og Sauðárdalsstífla (25 m). Lónið
verður stærst 57 km2, 25 km langt og 2 km breitt og
sveiflast vatnsborð þess um allt að 75 m þótt sveiflan
í meðalári sé mun minni. Auk Hálslóns eiga eftir að
myndast mörg minni lón og verður heildarflatarmál
allra lóna í tengslum við virkjunina þannig 67,4 km2.
Með framkvæmdunum breyttist vatnakerfi stærstu
ánna norðaustan Vatnajökuls verulega. Jökulvatni sem
áður rann í Jöklu er nú veitt um jarðgöng og beint
í Jökulsá á Fljótsdal sem aftur rennur í Lagarfljót. Í
farvegi Jöklu rennur því héðan í frá tiltölulega vatns-
lítil bergvatnsá nema þegar opnað verður fyrir lokur
stíflunnar til að tempra fyllingu lónsins eða vatn fer úr
lóninu á yfirfalli þegar það fyllist í lok sumars.
Á áhrifasvæði virkjunarinnar voru 16 svæði á náttúru-
minjaskrá. Við fyllingu miðlunarlónanna hurfu um 40
km2 gróins lands undir vatn og um fjórðungur friðlands
Kringilsárrana fór undir Hálslón. Margir fossar töpuðust
við gerð virkjunarinnar. Óvíst er hve umfangsmikil áhrif
af virkjunarframkvæmdunum á náttúrufar svæðisins
verða að endingu. Miðað við óbreytt veðurfar er talið að
Hálslón fyllist af seti á um 400 til 500 árum, en ef jöklar
hörfa vegna loftslagshlýnunar er búist við lengri líftíma
lónsins. Gert er ráð fyrir að breytt vatnsrennsli Jöklu
muni leiða til þess að ströndin við ósa árinnar hopi um
200–280 m á næstu 100 árum. Óvíst er hver áhrif aukins
vatnsrennslis verða á grunnvatnsstöðu og lífríki í og
við bakka Lagarfljóts eða í sjónum úti fyrir ströndum
Héraðsflóa.
Kárahnjúkavirkjun hefur með réttu verið nefnd
stærsta verkefni Íslandssögunnar og víst er að engin
einstök framkvæmd hefur leitt til meiri röskunar á
náttúru Íslands – því er hennar getið í náttúrufarsannál.
Frá Kárahnjúkastíflu. Ljósm.: Þorfinnur Sigurgeirsson.
Mjaldur (Delphinapterus leucas) í Njarðvík. Ljósm.: Skarphéðinn
Þórisson.