Náttúrufræðingurinn - 2009, Qupperneq 62
Náttúrufræðingurinn
126
4. mynd. Rannsóknir á berghlaupi sem féll á Morsárjökul í mars 2007 hafa verið unnar
undir forystu Náttúrustofu Norðurlands vestra. Ljósm.: Ingvar Atli Sigurðsson 2007.
5. mynd. Tveir hvítabirnir skutu heimamönnum
skelk í bringu í júní. Hér hleypur fyrra dýrið á
eftir tveimur ágætum Skagfirðingum.
Ljósm.: Þorsteinn Sæmundsson 2008.
kortlagningu berghlaupa og annarra
jarðfræðilegra fyrirbæra. Helgi
stundar nú rannsóknir á Reykjanes-
skaga sem eru samstarfsverkefni
náttúrustofa Norðurlands vestra
og Reykjaness. Þessar rannsóknir
eru hluti af meistaranámi hans við
Háskóla Íslands.
Þórdís Vilhelmína Bragadóttir
er líffræðingur og lauk BS-prófi
frá Háskóla Íslands árið 2002 og
MS-prófi frá sama skóla árið 2008.
Meistaraprófsritgerð hennar fjallaði
um búsvæðaval, dreifingu og fæðu
helsingja í Skagafirði. Þórdís hóf
störf hjá stofunni sem sumarstarfs-
maður árið 2002. Hún hefur und-
anfarin ár sinnt starfi landvarðar í
friðlandinu við Miklavatn og Borg-
arskóga, sem er samstarfsverkefni
stofunnar og Umhverfisstofnunar.
Að auki hefur hún sinnt rannsókn-
um á fuglum í Skagafirði.
Bjarney Anna Björnsdóttir hóf
störf við stofuna árið 2008 og sinnir
hún ýmsum skrifstofustörfum auk
þess að aðstoða við ýmis verkefni.
Auk fastra starfsmanna hafa
nemar, bæði innlendir og erlendir,
unnið á stofunni í námsverkefnum
sínum og erlendir sérfræðingar
sem vinna náið með stofunni hafa
fengið vinnuaðstöðu á henni í lengri
eða skemmri tíma.
Verkefni stofunnar hafa verið
fjölbreytt þau tæplega níu ár sem
hún hefur starfað. Þungamiðja í
starfsemi hennar hafa verið grunn-
rannsóknir en ýmis þjónustuverk-
efni hafa einnig verið unnin. Mikil
áhersla hefur verið lögð á fræðslu
til almennings og skóla. Á tveggja
ára tímabili stóð stofan, í sam-
vinnu við minjavörð Norðurlands
vestra, fyrir fræðslufundum sem
haldnir voru annan hvern þriðjudag
yfir vetrarmánuðina undir heitinu
Náttúra, saga og menning. Þessir
fyrirlestrar voru vel sóttir. Fjölmargir
hópar nemenda, bæði innlendra og
erlendra, hafa sótt stofuna heim og
hafa verið haldnir fræðslufyrirlestrar
bæði innan veggja stofunnar og í
skólum í byggðarlaginu. Síðastliðið
vor stóð stofan fyrir fræðsluráð-
stefnu fyrir almenning undir yfir-
skriftinni Náttúra Skagafjarðar og
fékk til liðs við sig fjölmarga vísinda-
menn sem greindu frá ýmsum
rannsóknum sem stundaðar hafa
verið í Skagafirði.
Í júní og fram í miðjan júlí á þessu
ári einkenndist nær öll starfsemi
stofunnar af komu tveggja hvíta-
bjarna í Skagafjörð með stuttu milli-
bili. Mikið mæddi á starfsmönnum
að svara fyrirspurnum fréttamanna
og almennings enda ekki á hverjum
degi sem slíka gesti ber að garði.
Nú á haustmánuðum verður fyrri
hvítabjörninn stoppaður upp og
verður hann síðan varðveittur á
stofunni til frambúðar.
Líkt og aðrar náttúrustofur er
Náttúrustofa Norðurlands vestra
aðili að Samtökum náttúrustofa
(SNS), sem hafa m.a. það hlutverk
að stuðla að og efla samstarf meðal
náttúrustofa. Samtökin hafa undirrit-
að samstarfssamninga við Háskól-
ann á Hólum, Stofnun fræðasetra
Háskóla Íslands, Veiðimálastofnun,
Náttúrufræðistofu Kópavogs, Land-
búnaðarháskóla Íslands og Um-
hverfisstofnun.
Lista yfir birtar greinar og fyrir-
lestra sem unnir hafa verið af starfs-
mönnum og samstarfsmönnum
stofunnar, auk annars fróðleiks um
starfsemi hennar, er að finna á
heimasíðu stofunnar www.nnv.is.