Valsblaðið - 01.05.2012, Page 4

Valsblaðið - 01.05.2012, Page 4
4 Valsblaðið2012 Jóla hvað? Jólahugvekja 2012 Jólin eru framundan. Jólaaðventan er tími eftirvæntingar. Orðið aðventa þýðir koma. „Jólin eru’ að koma“, heyrum við sungið í útvarpinu. En hver er eiginlega eftirvæntingin. Við hverju búumst við? Hvers væntum við á jólum? Ég hef heyrt svo marga tala um það undanfarnar vikur að það megi ekki byrja að skreyta of snemma fyrir jólin, því það skemmi fyrir. Maður verði orðinn of leiður á öllu skrautinu og jólaljósunum þegar loks kemur að sjálfum jól- unum. Þau hafi ekki tilætluð áhrif þá, sem sagt að koma manni í jólaskap. Þá er það einmitt þetta. Hvað eru jólin? Um hvað snú- ast þau, og hvað kemur okkur í jólaskap? Hefur þú hugsað um það? Eru það minningarnar um bernskujólin? Eru það kertaljós- in? Eru það smákökurnar, eða jólahreingerningarnar? Er það ilmurinn af hangikjötinu? Eru það falleg jólaævintýri? Eða jóla- sveinarnir? Jólainnkaupin og jólagjafirnar? Eru það jólalögin í útvarpinu eða það að heyra jólakveðjur lesnar í ríkisútvarpinu rétt fyrir hátíðina? Er það aftansöngur á aðfangadagskvöld? Eða að heyra kirkjuklukkurnar hringja inn jólin? Er það að pakka inn jólagjöfunum og fara með þær og afhenda sem kemur okkur í jólastuð? Eða það að taka upp jólapakkana? Er það að skreyta jólatréð og húsið, setja upp jólaseríuna á runnana úti sem kemur með réttu jólastemninguna? Eða er það jólasnjórinn? Ég heyri stundum sagt: Ég er alveg farinn úr öllu jólastuði. Ég er ekki kominn í neitt jólaskap. Allt þetta segir mér að þessir hlutir skipti okkur máli og tengist einhverjum minningum og tilfinn- ingum tengdum þessari hátíð. En stóra spurningin er þá: Snúast jólin bara um stemningu? Nei. Allir þessir hlutir eru eiginlega bara umbúðir, umgjörð. Það er svo margt í umbúðunum sem felur innihaldið. Reyndar held ég að fyrir mörgum séu jólin bara þessar umbúðir sem ég var að lýsa. Eitthvað sem vekur hlýjar og góðar minningar og tilfinningar en ekkert meir. Það vantar innihaldið. Kannski gerum við okkur ekki grein fyrir því hvað innihaldið og aðalatriðið er fyrr en aðstæður okkar verða öðruvísi. Ég man eftir því þegar við fjölskyldan vorum að störfum í Eþíópíu og héldum okkar fyrstu jól þar. Það var svo margt í ytri aðstæðum sem vantaði til að komast í þessa jólastemningu sem við þekkt- um frá Íslandi. Þarna var bara hiti og sviti, engar jólaskreytingar eða jólaljós á götum úti. Það var einmitt þá sem innihaldið fór að skipta miklu meira máli, því að umbúðirnar vantaði. Þá mátti ekki vanta innihaldið. Jóhannes skírari vildi vita fyrir víst hvort Jesús væri í raun sá sem hann sagðist vera, frelsari frá synd og dauða. Hann vildi vita: Eigum við að vænta annars? Vitum við hvers við væntum um jólin? Ég er ósköp hræddur um að það sem við væntum fyrir jólin séu bara umbúðir, en ekki innihaldið. Ættum við ekki að vænta hans sem koma skal, frels- arans? Ég man eftir Glám og Skrám í jólabarnatíma sjónvarpsins þegar jólasveinninn kom inn og sagði: „Krakkar mínir komið þið sæl, ég er jólasveinninn.“ Þá fannst manni fyndið þegar þeir svöruðu um hæl: Jóla hvað? Það er spurningin sem við erum að velta fyrir okkur í dag. Jóla hvað? Því miður er íslenska orðið sem við notum komið úr heiðnum sið og er skylt orðinu hjól. Það tengist þessum tíma þegar verður viðsnúningur og daginn tekur að lengja á ný. Í ensku er notað kristilegt orð um þessa há- tíð: Christmas eða Krists messa. Það bendir á kjarnann. Jólin snúast um Jesú Krist. Þau eiga að vera messa, tilbeiðsla til hans. Þau eiga að vera honum til heiðurs. Það er mjög táknrænt fyrir afkristnun Vesturlanda að verslunarmenn tala frekar um X-mas til að stuða ekki þá sem ekki eru kristinnar trúar. Margir átta sig ekki á þessu. En í raun eru þeir að setja X, sem í stærðfræðinni er oftast látið standa fyrir það sem er óþekkt, í staðinn fyrir frelsarann. Þeir hafa skipt út ástæðu jólanna með einhverju sem enginn veit hvað er, öllum umbúðunum sem eru svo miklar að enginn kemst að innihaldinu. Þetta er eins og risapakki með um- búðum hverjum inni í annarri, hver annarri fegurri, og þegar maður er loks kominn inn úr þá var ekkert í pakkanum. Margir búa við erfiðar aðstæður um jólin og fyrir þeim er þessi árstími ekki eitthvað sem vekur fagrar tilfinningar, heldur kvíða og ótta. Skammdegið og þunglyndið herjar líka meira á suma á þessum tíma. Særindi og eftirsjá, splundrað fjölskyldu- líf. Allt eru þetta hlutir sem verða erfiðari fyrir suma um jólin. Það er sama hvernig ástatt er fyrir okkur. Það sem skiptir mestu máli við undirbúning jólanna er að við væntum þess sem koma skal, Jesú sjálfs. Hann er sonur Guðs sem fæddist í þennan heim til að bjarga okkur. Ef við veltum fyrir okkur aðstæðum Jóhann- esar skírara, sem sá fram á að líf hans myndi brátt enda, þá áttum við okkur á þörf hans á að vera viss. Á ég von um eilíft líf á himn- um? Get ég verið viss um að ég eigi fyrirgefningu syndanna? Hvað tekur við handan dauðans? Svarið var fólgið í Jesú, sem er frelsari frá synd. Fæðing Jesú inn í þennan heim er ástæðan fyrir jólahaldinu. Við fögnum þessari gjöf Guðs sem gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Guðlaugur Gunnarsson hefur m.a. starfað sem kristniboði í Eþíópíu. Valsmenn – bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár HENSON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.