Valsblaðið - 01.05.2012, Side 113

Valsblaðið - 01.05.2012, Side 113
Valsblaðið2012 113 Starfiðermargt menn og hvort þeir haldi áfram að æfa eða hafi gaman af íþróttinni.” Hvernig finnst þér að eigi að efla starf­ ið í yngri flokkunum hjá Val? „Halda betur utan um yngri flokkana bæði í handbolta, bæta aðstöðuna í fótboltanum og virkja sem flesta, bæði börn unglinga og foreldra til að koma á völlinn eða mæta og horfa á æfingar hjá börnunum sínum vegna þess að stuðningur foreldra skiptir öllu og þá sérstaklega hjá yngstu krökkunum.” Framtíðardraumar í íþróttum? Hvar sérðu fyrir þér að þú verðir eftir 10 ár? „Ég stefni mjög hátt í handboltanum en ég ætla mér að spila í þýsku Bundesligunni, eftir 10 ár sé ég mig fyrir mér í útlöndum spilandi handbolta og ég ætla mér að vera í háskólanámi til hliðar við það.” Hver stofnaði Val og hvenær? „Það var séra Friðrik Friðriksson, þann 11. maí árið 1911. Uppáhandseinkunnarorðin mín frá honum eru, aldrei láta kappið bera fegurðina ofurliði. Sturla hefur æft handbolta í 10 ár en fót- bolta í 11 ár og vill vera í Val vegna þess að félagið er með bestu æfingaaðstæður á landinu og er auk þess í hverfinu hans. Hann tekur í vetur frí frá æfingum í fót- boltanum og einbeitir sér að handboltand- um en vonast til þess að koma sterkur inn í fótboltann þegar nær dregur sumri. Hann fékk markmannsviðurkenningu yngri flokka í haust og finnst frábært að hafa þessa viðurkenningu sem hafi hvatt sig til þess að halda lengur áfram í fótboltanum. Hvernig gekk ykkur í sumar? „Gengi okkar í sumar var upp og niður. Við spil- uðum frábærlega í bikarnum en spiluðum bara stundum vel í Íslandsmótinu en svo komu leikir þar sem við spiluðum alls ekki vel.” Hvernig gengur í handboltanum? „Hóp- urinn í handboltanum er mjög góður en mætti vera stærri. Þjálfarateymið er mjög gott og allir fá góða þjálfun bæði sem lið og sem einstaklingar. Þegar við fórum á Partille í sumar og komumst áfram úr riðl- inum og spiluðum á móti Rússnesku liði sem áttu að vera jafnaldrar okkar en nokkrir hefðu getað verið pabbar mínir og 90% liðsins var með alskegg. Fyrirmyndir í boltanum. „Já ég hef margar fyrirmyndir bæði í handbolta og fótbolta. Í fótboltanum eru það markmenn eins og Peter Schmeichel og Oliver Kahn. Í hanfboltanum eru það línumenn eins og Bjarte Mirhol, Rene Toft og Robbi Gunn.” Hvað þarf til að ná langt í íþróttum? „Til þess að ná árangri í öllum íþróttum er það 90% hugurinn sem skiptir máli og að leggja sig alltaf fram allan tíman á öll- um æfingum. Ég þyrfti helst að bæta hraða, stökkkraft og fótavinnslu í báðum greinum.” Hvers vegna fótbolti og handbolti? Hvernig er að láta það ganga upp að æfa tvær íþróttagreinar samtímis? „Ég er í handbolta og fótbolta vegna þess að ég fæ ótrúlega útrás þegar ég spila íþróttirnar og þær eru báðar ótrúlega skemmtilegar þótt önnur sé í aðalhlutverkinu í augnablikinu. Ég hef ekki æft neinar aðrar íþróttir. Það er mjög erfitt að gera það þótt ég myndi samt mæla eindregið með því, en þegar maður fer í menntaskóla fer það að vera ennþá erfiðara vegna þess hversu mikið maður þarf að leggja í námið. Hverjir eru helstu Valsararnir í fjöl­ skyldunni og fyrir hvað eru þeir þekkt­ astir? „Pabbi var nú mikill íþróttamaður og var efnilegur markmaður en meiddist þá á hnéi. Bróðir langömmu Agnar Breiðfjörð var líka mikill íþróttamður en hann var einn af fyrstu Völsurunum til þess að verða Íslandsmeistari með meist- araflokki Vals í handbolta.” Stuðningur fjölskyldu? „Mamma og pabbi hafa alltaf verið til staðar á leikjum, æfingum og öllu sem við kemur íþróttun- um og ég tel það vera eitt af mikilvægustu þáttunum sem hafa áhrif á unga íþrótta- Fæmiklaútrásbæðií handboltaogfótbolta Sturla Magnússon er 16 ára og leikur handbolta með 3. flokki og fótbolta með 2. flokki og hlaut markmannsviðurkenningu á uppskeruhátíð í knattspyrnu ValurogSamsungundirritasamstarfssamning Á árinu undirrituðu Knattspyrnufélagið Valur og Tæknivörur/Bræðurnir Orms- son umboðsaðilar Samsung undir sam- starfssamning. Samningurinn er til þriggja ára og verður Samsung einn af styrktar aðilum Vals. Á myndinni undirrita framkvæmda- stjóri Vals Haraldur Daði Ragnarsson og markaðsstjóri Tæknivara Björn Ragnar Björnsson samninginn. Allir Valsmenn- og meyjar eru hvatt- ir til þess að versla við samstarfsaðila félagsins.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Valsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.