Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 51

Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 51
Valsblaðið2012 51 Ungiratvinnumenn Valserlendis eftirSigurðÁsbjörnsson ir leikmenn koma frá Tertnes en þær koma flestar frá öðrum smáliðum í Bergen. Ein kemur frá Þrándheimi og ein frá Osló, en ég er eini útlendingurinn í liðinu. Hvað kemur fyrst upp í hugann þegar ég spyr um það sem er betra hjá liðinu sem þú spilar með núna miðað við hvernig málum var háttað hjá Val? Hér eru hlutir kannski meira prófessional og við þurfum ekki að hugsa um launa- greiðslur, sjúkraþjálfunarreikninga og þess háttar. Fáum mjög mikið af fötum, bæði æfinga- og hversdags frá Umbro. Ertu búin að sjá eitthvað sem við ætt­ um að taka upp heima á Íslandi sem þú hefur kynnst í atvinnumennskunni? Boltinn heima er að verða hraðari en það vantar fleiri betri lið. Erfitt að segja hvað Valur getur svo sem gert betur, því hér eru nátturulega töluvert meiri peningar í boltanum og þetta er meira prófessional, en kvennalið Vals er það besta á landinu þannig þær eru held ég að gera allt sem þær geta gert. Saknarðu einhvers sérstaklega að heiman? Ég sakna að sjálfsögðu liðs- félagana minna og vinkvenna úr Val og meira segja Stefáns. En handboltalega séð er öllum mínum óskum svo sem svarað hér, eða allavega að mestu leyti. Síðan sakna ég rosalega litlu frændsystk- ina minna og barna vinkvenna minna. Hvar væri Tertnes í töflunni ef það spilaði í íslensku deildinni? Ég held að við værum á toppnum. Hvað heitir staðan sem þú spilar á út­ lensku? Ég er línumaður sem er linje- spiller á norsku. Hver er stefna liðsins fyrir tímabilið? Liðið endaði í fimmta sæti í fyrra en við stefnum að því að taka þriðja sætið í vor. Við erum nærri markmiðinu eins og stendur þar sem við erum í fjórða sæti. Annars er liðið frekar ungt eða frá 19 og upp í 26 ára. En hvernig hefur þér gengið? Mér hef- ur gengið mjög vel. Hefur tekið sinn tíma að komast inn í allt, sóknarlega og varn- arlega en mér hefur gengið mjög vel þeg- ar við spilum. Hópurinn telur um 11–12 stelpur en við æfum alltaf með varaliði félagsins. Færðu að spila mikið í hverjum leik? Það er bara misjafnt, hef viljað spilað meira en ég hef verið að gera en ég reyni að nýta tímann minn vel sem ég fæ og þá mun hann aukast. Auðvitað spilaði ég meira á Íslandi en ég hef spilað mjög vel hérna úti og nýtt mitt tækifæri vel og veit að spilatíminn minn eykst með tímanum held ég áfram að standa mig vel. Hann hefur þegar aukist frá því í haust. Hver er í stórum dráttum helsti mun­ urinn á handboltanum þar sem þú spilar núna m.v. þegar þú spilaðir með Val á Hlíðarenda? Tertnes spilar hraðari bolta og eru rosalega góðar að spila lengi á háu tempói. Þær eru mjög línuspilandi lið, þannig að við línumennirnar erum alltaf í veislu. Munurinn á Val og ekki síður á deild­ inni sem þú spilar nú í m.v. efstu deild á Íslandi? Hér þarf að mæta í alla leiki með 100% einbeitingu og ef ekki er spil- að á fullum krafti þá er auðvelt að tapa. Við eigum að vinna neðstu liðin nokkuð örugglega, en fáum fleiri leiki sem geta farið á báða vegu. Heima var ólíklegt að tapa fyrir liðnum sem voru fyrir neðan 3.–4. sæti. Er stór munur á íþróttinni? Þjálfun­ inni? Félagsskapnum? Aðstöðunni? Íþróttin er svo sem sú sama, bara hraðari og meiri að gæðum. Við höfum aðgang að tveimur sjúkraþjálfurum og styrktar- þjálfaranum. Félagsskapurinn er góður og ég er dugleg að hitta stelpurnar úr lið- inu en að sjálfsögðu er maður meira einn hérna þar sem maður hefur ekki alla vin- ina og fjölskylduna heiman frá. Aðstaðan er flottari á Hlíðarenda, sem kom mér svo sem ekkert á óvart. Aðstaðan hér er þó alveg fín líka. Þreksalurinn í okkar höll er ekkert sérstakur en við erum með kort í ræktina og förum alltaf þangað, þar er mjög fín aðstaða. Klefarnir eru allt í lagi, en við skijum dótið okkur aldrei eft- ir þar heldur tökum það með okkur fram á æfingu. Stóri salurinn í okkar höll er skipt upp í þrennt (svipað og á Hlíðar- enda) þegar við erum á æfingum. Mjög fínn salur og stór höll þegar við keppum. Aðstaða fyrir áhorfendur er mjög fín, mjög stór sætaaðstaða. Hvernig er aðsókn á leikina hjá ykkur og hvernig er stemmningin? Það er mun betri aðsókn hér en heima, held að það séu a.m.k. 1000 manns á leikjum. Ég held að höllin okkar taki um 4.000 manns. Misjafnt hjá öðrum liðum en við erum með mjög stóra aðstöðu miðað við flest önnur lið, a.m.k. þau sem ég hef séð. Mér finnst stemningin á leikjum vera mjög góð. Satt best að segja hef ég samt ekkert mikið verið að spá í það, en fólk lætur heyra ágætlega í sér. Stuðn- ingsmennirnir byrja að mæta svona 40– 50 mínutum fyrir leik og það er matur og annað í boði, en bjór er ekki seldur á leikjum. Er hátt hlutfall af uppöldum leikmönn­ um í liðinu? En útlendingum? Ekki marg- Þarfaðmætaíallaleikimeð 100%einbeitingu Eftir að hafa þurft að verja síðasta keppnistímabili í að jafna sig af meiðslum hefur Hildigunnur Einarsdóttir flutt búferlum og spilar nú með Tertnes í Björgvin í Noregi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Valsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.