Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 47
Valsblaðið2012 47
Foreldrastarf
Elfur Sif svaraði fyrstu spurningunni á
þessa leið. „Ég er búin að vera með 3
stráka í Val sl. 19 ár, hef ég alla tíð stutt
þá vel í þeim íþróttum sem þeir hafa æft,
verið dugleg að mæta á leiki hjá þeim og
farið á öll stóru fótboltamótin sem haldin
eru á sumrin og eins flest handboltamót.
Eftir öll þessi ár hafa komið margar med-
alíur inn á heimilið og skv. síðustu taln-
ingu eru þær orðnar 185. Eins hafa kom-
ið margar viðkenningar og bikarar enda
hafa mínir drengir verið heppnir og alla
tíð haft góða þjálfara. Ég hef alltaf verið
mjög ánægð með allt starf hjá Val, eins
alla þjálfara sem þeir hafa haft, allir mín-
ir drengir hafa verið mjög ánægðir í Val.“
Jón Gunnar svaraði á þessa leið. „Að
styðja barnið og félaga þess félagslega.
Ég bendi strákunum mínum á félagslegar
hliðstæður í hópíþróttum og daglegu lífi,
hvet þá til að hafa sig í frammi en hlusta
á aðra og útskýri á stundum aðstæður og
ákvarðanir þjálfara. Ég deili með þeim
eigin reynslu af íþróttaiðkun, hvað varð-
ar félagsleg samskipti, þjálfun og ekki
síst hugarfar. Ég segi þeim ávallt hrein-
skilnislega mína skoðun á frammistöðu
þeirra, sem grundvallast á því að þeir
leggi sig alla fram og beri virðingu fyrir
öllum sem að leik eða æfingu koma. Geri
þeir það, þá er ég ánægur með þá. Þannig
ná þeir árangri í hverju sem er.“
Hvað hefur þú gert til að leggja starfi
Vals lið?
Þessari spurningu svaraði Bjarni svona.
„Í yngri flokkunum sat ég oftast í for-
eldraráðum og fór sem liðsstjóri á öll
helstu mót innanlands auk einnar ferðar
Soffía Ámundadóttir
spurði nokkra foreldra
sem hafa langa reynslu
af foreldrastarfi hjá
Val nokkurra spurninga
um aðkomu þeirra að
starfinu. Urðu þau
góðfúslega við beiðni
hennar og fara svör
þeirra hér á eftir, þ.e.
Bjarni Hinriksson, Elfur
Sif Sigurðardóttir og
Jón Gunnar Bergs
Hvert telur þú vera þitt hlutverk í
íþróttaiðkun barnsins þín?
Bjarni Hinriksson svaraði á þessa leið:
„Að hjálpa því að upplifa íþróttaiðkun
sína sem jákvæða og bætandi ástundun.
Að gera því kleift eins og kostur er að
njóta sín og ná árangri en umfram allt að
þroska sinn innri mann og samskiptin við
aðra svo úr verði veganesti til framtíðar,
sama hvað barnið tekur sér fyrir hendur á
lífsleiðinni. Að hjálpa því að ala með sér
heilbrigðan metnað og eðlilegt keppnis-
skap mótað af virðingu fyrir liðsfélögum
og andstæðingum. Að kynnast félögum
þess og foreldrum félaga þeirra, rækta
gott samband við þjálfara og starfsmenn
Vals og vera sjálfur barninu góð fyrir-
mynd í öllum þessum samskiptum.
Fyrstu árin eru skipulagsmálin fyrirferð-
armikil og nauðsynlegt að sinna jafnt og
þétt samskiptunum við Val og aðra for-
eldra. Þegar barnið er orðið eldra og
sjálfstæðara verður hlutverk félagans og
ráðgjafans mikilvægara. Ég er svo hepp-
inn að hafa sjálfur mikinn áhuga á knatt-
spyrnu og því höfum við feðgarnir fund-
ið þar góðan snertiflöt í okkar samskipt-
um en jafnvel þótt sá áhugi sé ekki til
staðar í upphafi geta foreldrar ræktað
gefandi samband við börn sín í gegnum
íþróttir.
Líkt og á lífsleiðinni allri skiptast á í
íþróttum sigrar og ósigrar. En þegar upp
er staðið snýst þetta ekki um sigra eða
ósigra heldur hvernig við bregðumst við
erfiðleikum og ekki síður velgengni. Á
mótunarárum barnsins eru íþróttir einn
vettvangur margra þar sem okkur sem
foreldrum gefst kostur á að hafa áhrif á
þroska barna okkar og kannski þroska
okkur sjálf um leið.“
FyrirmyndarforeldraríVal
Bjarni Hinriksson Elfur Sif Sigurðardóttir Jón Gunnar Bergs
Soffía Ámundadóttir (Sossa)