Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 12
12 Valsblaðið2012
Starfiðermargt
ánægðir með félagið sitt. Það sem er nei-
kvæðast fyrir Val í þessari könnun er af-
staða krakkanna til þjálfara sinna en að-
eins 75% stelpna og 85% stráka eru
ánægð með þjálfarann sinn.
Svipaða sögu er að segja þegar krakkar
eru spurðir um aðstöðu til íþróttaiðkunar
en þá kemur í ljóst að aðeins 77% iðkenda
í Val eru ánægð með þá aðstöðu sem fé-
lagið býður uppá en voru 90% árið 2010.
Hér má gefa sér að ástand gervigrasvallar-
ins spili inní en mikil vonbrigði eru með
ástand hans og ljóst að Valur býr við lakari
aðstöðu til knattspyrnuiðkunar utandyra á
veturna en flest önnur félög í borginni.
Íþróttir eru forvarnarstarf
Það er samfélagsleg skylda okkar að reka
öflugt forvarnar- og uppeldisstarf og
lóðaleigusamningar um og hafa lóðar-
heitin Hlíðarendi 60 sem er 51.305 m2
lóð sem m.a. er ætluð undir knatthús
ásamt öðrum byggingarétti, Hlíðarendi
14 sem er 25.333 m2 lóð sem að hluta fer
undir gervigrasvöll og lóðin að Hlíðar-
enda 12 sem er 3.291 m2 lóð.
Tilgangur sjálfseignastofnunar yrði
m.a. að standa vörð um eignir félagsins
og að starfsmenn Vals þurfi ekki að sjá
um daglegan rekstur þeirra. Þannig geta
þeir einbeitt sér að rekstri og starfsemi
íþróttafélagsins.
Öflugt barna- og unglingastarf
Barna- og unglingastarf félagsins gekk
ágætlega á árinu þó að iðkendum hafi
fækkað lítillega frá fyrra ári eftir að hafa
aukist í fimm ár þar á undan. Fækkun
iðkenda á árinu í ár er sama þróun hjá
Val og öðrum félögum samkvæmt könn-
un sem gerð var um þátttöku krakka í 8.,
9. og 10. bekk. Samkvæmt fyrrgreindri
könnun sem unnin var fyrir Íþróttabanda-
lag Reykjavíkur kemur einnig frama að
40% krakka á fyrrgreindum aldri stunda
íþróttir fjórum sinnum í viku eða oftar og
61% krakkanna stunda íþróttir reglulega.
Einnig kemur fram að þeir krakkar sem
stunda skipulagðar íþróttir eru mun já-
kvæðari til náms og skila betri námsár-
angi en hinir sem ekki stunda íþróttir.
Fram kemur að 88% iðkenda Vals á
þessum aldri eru jákvæð og finnst gaman
á æfingum en þetta hlutfall er 87% hjá
öðrum félögum. Í sömu könnun kemur
jafnframt fram að mest er ánægjan hjá
stelpum í Val af öllum iðkendum á land-
inu en 90% þeirra finnst gaman á æfing-
um og 85% stráka í Val eru sama sinnis.
Iðkendur í Val eru einnig ánægðastir allra
með sitt félag en 88% þeirra segjast vera
ánægðir með félagið sitt og hefur ánægj-
an vaxið um 2% frá árinu 2010. Sé litið á
landið í heild eru 85% aðspurðra krakka
Valsmaðurinn Stefán Hilmarsson söng á
Nýársfagnaði Vals.
Stefán Karlsson varaformaður Vals og
Hörður Gunnarsson formaður með Ís-
landsmeistarabikarinn í handknattleik
kvenna.
Aðalstjórn Vals 2012–2013, efri röð frá vinstri: Svali Björgvinsson formaður körfu-
knattleiksdeildar, Hörður Gunnarsson formaður Vals, Sveinn Stefánsson, Haraldur
Daði Ragnarsson framkvæmdastjóri. Neðri röð frá vinstri: Stefán Karlsson varafor-
maður Vals, Ómar Ómarsson formaður handknattleiksdeildar og Arna Grímsdóttir. Á
myndina vantar Hafrúnu Kristjánsdóttur, Margréti Lilju Guðmundsdóttur og E. Börk
Edvardsson formann knattspyrnudeildar.
Ungir iðkendur og litríkir stuðningsmenn Vals.