Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 107
Valsblaðið2012 107
Starfiðermargt
riðli. Í fyrstu umferð endaði liðið í 3 sæti,
annarri umferð í 2. sæti, þriðju umferð í
3. sæti og fjórðu umferð í 4. sæti sem gaf
þeim sæti í undanúrslitum þar sem liðið
datt út fyrir Njarðvík sem endaði sem Ís-
landsmeistari.
Í bikarkeppninni byrjaði liðið að slá út
hið geysisterka Keflavíkurlið sem hafði
unnið til allra titla í flokknum á unda-
förnum árum og var það einnig fyrsti sig-
ur Valskvenna á Keflavík í þessum
flokki. Stelpurnar duttu þó út gegn Njarð-
vík sem enduðu sem bikarmeistarar.
Framtíð stelpnanna er björt og verður
fróðlegt að fylgjast með þeim í framtíð-
inni.
Mestar framfarir: Elsa Rún Karlsdóttir.
Besta ástundun: Hallveig Jónsdóttir.
Leikmaður ársins: Ragnheiður Benón-
ýsdóttir.
Unglingaflokkur kvenna
Þjálfari: Ágúst Björgvinsson
Aðstoðarþjálfari: Melissa Lechlitner
Valur tefldi fram ufl.kv í fyrsta skipti
frá endurvakningu kvennadeildarinnar.
Árangurinn var nokkuð góður og liðið
komst í bikarúrslit en tapaði naumlega á
síðust sekúndum leiksins með þremur
stigum. Liðið hafnaði í fjórða sæti í deild
eftir að hafa leitt deildina mestan hluta af
degi. Allt kom þó fyrir ekki þar sem
veikindi í þriðju umferð Íslandsmótsins
urðu til þess að við féllum niður í D-rið-
il. D-riðillinn reyndist sterkur og voru
Valsmenn aðeins hársbreidd frá því að
sigra riðilinn en úrslitaleikurinn tapaðist
á flautukörfu. Liðið var að einhverju leyti
mannað af leikmönnum úr yngri árgöng-
um í þessum mótum. Töluverð fjölgun
varð í hópnum á seinnihluta tímabilsins
sem á eftir að hjálpa liðinu á komandi
árum.
Mestar framfarir: Matthías Gauti Em-
ilsson.
Besta ástundun: Óðinn Arnarsson.
Leikmaður ársins: Matthías Óli Matth-
íasson.
Minnibolti 11 ára stúlkur
Þjálfari: Melissa Lechlitner
Alveg einstakur og skemmtilegur hóp-
ur stúlkna sem æfðu í vetur. Þær gerðu
allar æfingar skemmtilegar með góðri
vinnu og góðu viðhorfi. Stelpurnar voru
alltaf tilbúnar að prófa nýja leiki og æf-
ingar og forðuðust aldrei áskoranir. Allar
stelpurnar tóku miklum framförum á öll-
um sviðum körfuboltans þegar leið á
tímabilið. Það var gaman að fylgjast með
þeim bæta sig og þær eiga eftir að bæta
sig enn frekar á næsta tímabili.
Mestar framfarir: Guðrún Blöndal.
Besta ástundun: Hrafnhildur Orradóttir.
Leikmaður ársins: Freyja Friðþjófsdótt-
ir.
7. flokkur drengja
Drengirnir byrjuðu tímabilið í C-riðli
Íslandsmótsins og unnu sig sannfærandi
upp í B-riðli í því móti. Í næstu þremur
mótum spilaði liðið í B-riðli sem var
yfirleitt mjög jafn riðill. Strákarnir voru
bæði í baráttu um að vinna sér inn sæti í
A-riðli og um leið í baráttu um að halda
sæti sínu í B-riðli. Strákarnir í 7. flokki
eru efnilegur hópur sem er duglegur að
mæta á æfingar að mestu leyti. Í hópinn
vantar sárlega hávaxna leikmenn til þess
að árangurinn geti orðið enn betri. Hafa
ber þó í huga að árangur er ekki alltaf
mældur í sigrum og strákarnir vita að
þeir hafa bætt sig mjög mikið í vetur.
Mestar framfarir: Ísak Sölvi Ingvalds-
son.
Besta ástundun: Arnar Steinn Helgason
og Helgi Tómas Helgason.
7. flokkur kvenna
Þjálfari: Guðbjörg Sverrisdóttir
Stelpurnar í 7. flokki hófu Íslandsmót-
ið á að spila fyrstu 2 túrneringarnar í b
riðli en eftir mikla baráttu lá leiðin niður
í c-riðil þar sem þær kláruðu tímabilið.
Það voru 8 stelpur sem æfðu yfir vetur-
inn, en við lærðum það í vetur að við
þurfum að vera duglegri að mæta á æf-
ingar til að sjá meiri framfarir og til að
bæta okkur sem einstaklingar og sem lið.
Mestar framfarir: Eyrún Björk Jakobs-
dóttir.
Besta ástundun: Kristel Eir Eiríksdóttir.
Leikmaður ársins: Anna Guðbjörg
Hannesdóttir.
8. flokkur drengja
Þjálfari: Elvar Steinn Traustason
Strákarnir í þessum þremur flokkum
spiluðu allir á Íslandmótinu í vetur og
mátti sjá framfarir hjá þeim milli móta.
Þessir flokkar, ásamt 7. flokki, eru allir
samliggjandi flokkar og því eru leikmenn
oft að spila upp fyrir sig. 8. flokkur byrj-
aði tímabilið á því að vinna sig upp úr
sínum riðli og endaði tímabilið í C-riðli
sem er svipaður árangur og undanfarin
ár. 9. flokkur spilaði fyrstu þrjú mótin í
D-riðli og var alltaf hársbreidd frá því að
vinna sig upp um riðil sem hafðist svo í
síðasta móti vetrarins. 10. flokkur sem er
mjög fámennur flokkur og er að miklu
leyti skipaður yngri leikmönnum og
tveimur leikmönnum úr 10. flokki
kvenna var stigvaxandi að bæta sig yfir
veturinn. Þar sem að flokkurinn var ekki
skráður til móts í fyrra þurftu þeir að
byrja í neðsta riðli en unnu sig upp um
riðil í tvö skipti af fjórum í vetur.
8. flokkur
Mestar framfarir: Hjalti Sveinn Vikt-
orsson.
Besta ástundun: Bergur Ari Sveinsson.
Leikmaður ársins: Bergur Ari Sveins-
son.
9. flokkur
Mestar framfarir: Heimir Marel Geirs-
son.
Besta ástundun: Heimir Marel Geirs-
son.
Leikmaður ársins: Bjarki Ólafsson.
10. flokkur
Leikmaður ársins: Hlynur Logi Vík-
ingssonþ
Stúlknaflokkur
Þjálfari: Ágúst Björgvinsson
Aðstoðarþjálfari: Melissa Lechlitner
Stelpurnar spiluðu allt tíma bilið í A-