Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 20
20 Valsblaðið2012
ÞorgrímurÞráinsson
Frá því ég lagði knattspyrnuskóna á hill-
una fyrir 22 árum hef ég nokkrum sinn-
um, bæði í Valsblaðinu og á öðrum vett-
vangi, lagt til að Valur nýti sér þann
mannauð sem býr í leikmönnum sem
hafa lagt skóna á hilluna. Á síðustu ára-
tugum hefur Valur átt sigursælum liðum
á að skipa í körfubolta, handbolta og fót-
bolta beggja kynja og það segir sig sjálft
að margfaldir Íslands- og bikarmeistarar,
sem og landsliðsmenn, hafa ýmsu að
miðla – jafnvel þótt þeir taki ekki að sér
þjálfun að ferlinum loknum.
Það vita þeir sem þekkja að sumt verð-
ur ekki lært nema með því að hafa upp-
lifað það árum og jafnvel áratugum sam-
an. Og sú reynsla að þekkja meðbyr og
mótlæti í íþróttum verður heldur ekki
lærð af bókum. Hver lærir að verða sjó-
maður eingöngu með því að setjast í
skólabekk? Þar af leiðandi dreg ég í efa
að þjálfari, sem á ekki þokkalegan feril
að baki, geti staðið sig frábærlega sem
þjálfari. Fyrst og fremst vegna þess að
hann hefur ekki upplifað það sem skiptir
mestu máli – innan vallar sem utan.
Þjálfun í dag er margþætt og algjörlega
óraunhæft að EINN þjálfari geti búið til
frábært lið, góða liðsheild og síðast en
ekki síst kennt (þjálfað) allar hliðar
íþróttarinnar. Enda er það svo í fæstum
tilvikum. Leikmenn sem eru að skríða
upp í meistaraflokki í dag, t.d. í knatt-
spyrnu virðist skorta ýmislegt. Með fullri
virðingu virðast fæstir búa yfir frábærri
skallatækni, fáir varnarmenn virðast
kunna að „dekka” rétt, enn færri virðast
hafa fengið leiðbeiningar hvernig beri að
temja sér yfirsýn og svo mætti lengi telja.
Á móti kemur að knatttækni leikmanna
er betri en áður og fleiri góðir leikmenn
koma fram á sjónarsviðið. En betur má ef
duga skal.
Ef fáir leikmenn um tvítugt búa yfir
góðri skallatækni eða varnareiginleikum,
hafa nef fyrir markaskorun eða kunna að
sjá nokkrar sendingar fram í tíminn –
liggur í augum uppi að ýmislegt mætti
betur fara í þjálfun yngri flokkanna. Og
ekki eingöngu í knattspyrnu.
Þarna kemur mannauður Vals til skjal-
anna. Úr því Valur á leikmenn á borð við
Guðna Bergsson, sem varð margfaldur
Íslands- og bikarmeistari, lék sem at-
vinnumaður árum saman (fyrirliði Bol-
ton) og var fyrirliði landsins – hvers
vegna er hann ekki fenginn til að leið-
beina varnarmönnum í öllum flokkum
félagsins? Hann gæti kennt lykilatriði,
smáatriði, klæki og fleira sem verður
ALDREI kennt á þjálfaranámskeiðum.
Hann gæti fengið aðra reynslumikla
varnarmenn með sér og þeir skipt með
sér verkjum. Ef þetta yrði unnið á mark-
vissan máta myndi Valur skara fram úr í
varnarleik á knattspyrnuvellinum innan
tíðar.
Það sama mætti gera með miðjumenn,
sóknarmenn og að sjálfsögðu líka í hand-
bolta og körfubolta. Hefur Ólafur Stef-
ánsson einhverju að miðla til yngri hand-
boltaiðkenda og svo mætti lengi telja.
Valur á fjölmargar glæsilega fulltrúa sem
gætu miðlað af reynslu sinni eftir að ferl-
inum lýkur.
Mannauður Vals er nánast algjörlega
ónýttur og reynslan, þekkingin og viskan
situr uppi í stúku á leikjum í stað þess að
yngri iðkendur fái notið hennar reglulega
allt árið um kring.
Of langt mál væri að telja upp þá ein-
staklinga sem teljast MANNAUÐUR
Vals, en af tugum fyrrum leikmanna er að
taka, kvenna og karla, sem gætu lagt lóð
sínar á vogarskálarnar – í sjálfboðavinnu.
Auðvitað ber yfirþjálfari ábyrgð á
þjálfun yngri flokkanna og síðan þjálfari
hvers flokks en hvaða þjálfari vill ekki fá
aðstoð frá fyrrum leikmönnum sem
kunna ákveðna þætti íþróttarinnar inn og
út. Margar hendur vinna létt verk.
Ég er sannfærður um að með breiðri
samstöðu, góðu skipulagi og vilja þjálf-
ara Vals í öllum greinum og flokkum
mætti lyfta þjálfun hjá félaginu upp á
annað og óþekkt plan – með aðstoð
reynslumikilla leikmanna. Þar af leiðandi
verður eftirsóknarvert að æfa með Val
því þar verður mannauðurinn nýttur til
hins ýtrasta og boðið upp á séræfingar
eins oft og leikmenn óska eftir.
Hér með skora ég á stjórnarmenn Vals
að ýta þessu úr vör – hafa samband við
MANNAUÐINN og leyfa unga fólkinu
(og leikmönnum meistaraflokks) að njóta.
Ónýtturmannauður
Getur Valur nýtt sér þann mannauð sem felst í
frábærum leikmönnum sem eiga hundruð leikja að
baki og tugi landsleikja – og þar af leiðandi tekið
forskot á önnur félag í hvað „kennslu” varðar?