Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 16
16 Valsblaðið2012
Nú eruð þið fyrstu systkinin hjá Val að
hljóta þennan eftirsóknarverða heiður
að fá Lollabikarinn. Hvernig útskýrir
þú Ingólfur þennan árangur? „Ég held
að allan árangur megi útskýra með mikilli
vinnu. Við Gunnar eigum það sameigin-
legt að hafa verið stanslaust með bolta á
tánum frá barnsaldri. Til þess að bæta
knatttækni þarf sífellt að vera ögra sér,
skjóta aðeins fastar í vegginn og reyna að
taka á móti boltanum; rekja boltann hrað-
ar heldur en venjulega; bæta metið sitt í að
halda á lofti, og svo framvegis. Ef þú
hugsar um tæknilega þætti fótboltans og
æfir þig markvisst í þeim, eykur það
möguleika þína á að verða betri leikmaður
og þar af leiðandi að vinna til verðlauna
eins og þessara,“ segir Ingólfur.
Hvaða hvatningu og stuðning hafið þið
fengið frá foreldrum ykkar og systkin
um í sambandi við fótboltann? „Systk-
ini mín hafa hvatt mig áfram og foreldrar
veitt mér mikinn stuðning á allan hátt.
Það er mjög mikilvægt að fá stuðning í
öllu,“ segir Gunnar. „Stuðningurinn frá
foreldrum okkar og eldri systkinum hef-
ur verið til fyrirmyndar. Keyrt okkur út
um allan bæ á æfingar og í leiki og fylgst
með af hliðarlínunni. Það hefur þó fallið
heldur meira í hendur pabba, en mamma
bakkar það upp með því að elda ofan í
okkur hollan og góðan mat. Það er ómet-
anlegt að eiga gott bakland sem hvetur
Í haust fékk Gunnar Sigurðsson leikmað-
ur í 3. flokki Vals í knattspyrnu Lollabik-
arinn á uppskeruhátíð knattspyrnudeildar.
Hann þykir ákaflega efnilegur knatt-
spyrnumaður sem gæti náð langt og fyrir-
mynd hans í fótbolta er Lionel Messi sem
Gunnar segir að sé frábær leikmaður með
rétta hugarfarið. Gunnar er yngri bróðir
Ingólfs Sigurðssonar sem fékk Lollabikar-
inn fyrir nokkrum árum og eru þeir bræð-
ur fyrstu systkinin í Val sem hafa náð
þeim árangri. Einnig lék Atli Sigurðsson
eldri bróðir þeirra í yngri flokkum Vals
með góðum árangri. Gunnar Sigurðsson
er 15 ára og og byrjaði að æfa fótbolta 5
ára með Val og segir hann að líklegasta
skýringin á því að hann hafi farið í Val
vera að tveir eldri bræður hans voru að
æfa fótbolta hjá Val, þ.e. Ingólfur og Atli.
Af þessu tilefni tók náði Valsblaðið tali
af þeim bræðrum Gunnari og Ingólfi og
spurði nokkurra spurninga. Báðir höfðu
þeir söguna á hreinu að séra Friðrik Frið-
risson hefði stofnað Val 11. maí 1911.
Hvaða þýðingu hefur það fyrir þig
Gunnar að hafa fengið Lollabikarinn í
haust? „Tilfinningin var mjög góð og ég
hafði ekki búist við þessu. Þessi góða við-
urkenning hvetur mig til þess að verða
betri í knattspyrnu, ekki síst að æfa knatt-
tækni.“ Hvenær fékkst þú Lollabikarinn
Ingólfur? „Ég fékk Lollabikarinn þegar
ég hafði lokið eldra ári í 5. flokki árið
2005. Aðeins tólf ára gamall. Ég gerði
mér ekki almennilega grein fyrir hversu
stór verðlaunin voru fyrr en fólk kepptist
við að óska mér til hamingju. Tilfinningin
var mjög góð og bikarinn hápunktur eftir-
minnilegs árs hjá Gylfa og Þórði þjálfur-
um. Það var fyrst og fremst gaman að
upplifa það að fá viðurkenningu fyrir að
standa sig vel. Á þeim tíma hafði ég
aldrei upplifað slíkt. Þetta hvatti mig til
dáða og efldi áhugann,“ segir Ingólfur.
Hvernig tilfinning var það Ingólfur að
sjá yngri bróður þinn fá Lollabikarinn
í haust. Kom þér það á óvart? „Tilfinn-
ingin var góð. Ég vissi að Gunnar hafði
staðið sig vel og knatttækni hans vakið
athygli. Það kom mér því ekkert sérstak-
lega á óvart að sjá hann vinna þessi verð-
laun. Hins vegar kom það Gunnari í opna
skjöldu, enda hógvær með eindæmum,“
segir Ingólfur.
Fyrstusystkinintil
aðfáLollabikarinn
Bræðurnir Gunnar og Ingólfur Sigurðssynir
eru fyrstu systkinin til að hlotnast sá heiður
að fá Lollabikarinn fyrir knattleikni í fótbolta
Bræðurnir Ingólfur Sigurðsson (t.v.) og
Gunnar Sigurðsson (t. h.) eru fyrstu
systkinin í Val til að fá Lollabikarinn.
Ingólfur fékk bikarinn 12 ára gamall
árið 2005 en Gunnar fékk bikarinn 15
ára á uppskeruhátíðinni í haust. Stoltir
bræður.
Öflugir bakhjarlar Knattspyrnufélagsins Vals óska öllum Valsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
sveitarfelog@islandsbanki.is
Sími 440 4000