Valsblaðið - 01.05.2012, Page 46
46 Valsblaðið2012
Starfiðermargt
leikja og hvort titlar vinnast hjá
barninu þínu. Þessir hlutir eiga ekki að
skipta nokkru máli í knattspyrnu
barna.
Þú upplifir sjálfa(n) þig og þinn knatt-•
spyrnuferil í gegnum knattspyrnuiðkun
barnsins þíns, ætlar stráknum þínum
að verða næsti Eiður Smári til þess að
láta drauma þína rætast – leyfðu
barninu að vera í knattspyrnu á sínum
forsendum og hafa gaman.
Þú verður stressaður/stressuð fyrir •
leiki hjá barninu þínu og ert nokkurn
tíma að jafna þig eftir að leikur tapast
– ekki taka hlutina of alvarlega, knatt-
spyrna er bara leikur og úrslit leikja
skipta ekki máli hjá börnum.
Þú kallar í sífellu leiðbeiningar til •
barnsins, hellir þér yfir dómara leiks-
ins og segir þjálfaranum hvernig á að
þjálfa og skipta inn á – ef þetta er
raunin þá ertu að gera allt rangt og
þarft að taka þig og hegðun þína á
hliðarlínunni í rækilega naflaskoðun.
Hlutverk foreldra er að hvetja og
að styðja
Hafðu í huga að þegar árin líða munu
börnin ekki muna eftir úrslitum einstakra
leikja, heldur hvort þau fengu hvatningu
og stuðning frá foreldrum sínum á knatt-
spyrnuferlinum.
Því miður er í hverjum foreldrahópi
einstaklingar sem sjá fyrst og fremst
barnið sitt og heildin líður fyrir það.
Knattspyrna er hópíþrótt þar sem allir
leikmenn hópsins mynda eina heild. Allir
skipta jafn miklu máli þrátt fyrir mis-
munandi hlutverk hvers og eins innan
hópsins. Foreldrar geta tekið þátt og skipt
miklu máli í þessari heild en þá er mikil-
vægt að það sé gert með jákvæðni að
leiðarljósi og á uppbyggilegan hátt. Á
endanum er það alltaf þjálfarinn sem
ræður. Hann er með púlsinn á starfinu, er
á öllum æfingum, þekkir hópinn vel og
er með menntun / reynslu í fræðunum.
Þekkir veikleika hópsins, styrkleika og
hvað sé best hverju sinni.
Von mín er sú að foreldrar tileinki sér
þessi góðu ráð sem Valur, KSÍ og ég get
gefið eftir margar ára reynslu í þjálfun og
vinnu með börnum. Þjálfun er skemmti-
legasta starf í heimi. Að standa út á velli
með fjöruga, lærdómsfúsa og áhugasama
leikmenn og kenna þeim íþróttina sem ég
elska er lífið.
Valskveðja, Sossa
manna foreldraráð í hverjum yngri
flokka félagsins (iðkendur undir 16
ára)
Foreldraráð sinnir mikilvægum verk-•
efnum við undirbúning mótahalds,
fjáraflanir og önnur verkefni fyrir við-
komandi flokk.
Foreldraráð skal hafa náið samstarf við •
þjálfara flokksins vegna leikja og
keppnisferða.
Foreldrar skulu að öllu jöfnu kosta •
ferðir og uppihald á óopinber mót og
skal foreldraráð skipuleggja fjáraflanir
til að létta róðurinn við að standa
straum af kostnaði.
Foreldraráð skal skipuleggja allar •
styttri ferðir flokka á Íslandsmót og
æfingamót í samvinnu við þjálfara.
Reynt verði að koma því við að ferðast
á einkabílum á leiki sem eru í 100 km
(fram og tilbaka) fjarlægð frá Reykja-
vík.
Foreldraráð skal virkja sem flesta for-•
eldra til starfa fyrir flokkinn, því marg-
ar hendur vinna létt verk.
Valur leggur mikið upp úr góðri sam-
vinnu við foreldra og hafa margir foreldr-
ar tekið virkan þátt í innra starfi Vals.
Foreldrar eru mikilvægur hlekkur í keðj-
unni og geta með jákvæðnina að vopni
gert gott starf Vals enn betra.
Foreldrabæklingur KSÍ
Á heimasíðu Knattspyrnusambands Ís-
lands (www.ksi.is) má finna foreldra-
bækling og koma eftirfarandi upplýsing-
ar þar fram:
Mögulegt hlutverk foreldra
Þú sem foreldri getur tekið að þér fjöl-
mörg hlutverk til að styðja við þátttöku
barnsins þíns í knattspyrnu. Það er góð
hugmynd að spyrja þjálfarann hvernig þú
getur hjálpað til. Hér er listi yfir möguleg
hlutverk sem þú getur tekið að þér fyrir
flokk barnsins:
Mæta á æfingar og leiki til að hvetja •
barnið þitt sem og hin börnin.
Bjóða þig fram í foreldraráð.•
Taka virkan þátt á foreldrafundum og í •
foreldrastarfi, kynnast öðrum foreldr-
um.
Sjá um boltamál.•
Sjá um félagslegu hliðina (pizzukvöld, •
bíóferðir, skemmtikvöld, vídeókvöld,
fyrirlestra, að fara saman á knatt-
spyrnuleik o.s.frv.).
Taka ljósmyndir á æfingum, ferðalög-•
um, leikjum og öðrum uppákomum.
Gerast liðsstjóri, búningastjóri, dóm-•
ari, aðstoðarþjálfari eða þjálfari.
Taka þátt í eða hafa umsjón með fjár-•
öflun.
Sjá um heimasíðuna. •
Skipuleggja ferðalög og keppnisferðir.•
Öll þessi hlutverk er best að vinna í góðu
samráði og samvinnu við þjálfara flokks-
ins sem gæti líka haft fleiri góðar hug-
myndir
Kröfur sem þú getur gert til
þjálfarans og félagsins
Að ekki séu of margir leikmenn á æf-•
ingu á hvern þjálfara (gott viðmið er
ekki fleiri en 20 leikmenn fyrir hvern
þjálfara).
Að 1 bolti sé til staðar fyrir hvert barn.•
Að æfingarnar séu fjölbreyttar, spenn-•
andi og skemmtilegar.
Að þjálfari barnsins þíns sé góð fyrir-•
mynd og sjáist ekki drekka áfengi,
reykja eða nota munntóbak fyrir fram-
an barnið þitt.
Hjá börnum ætti að vera lögð rík •
áhersla á að allir fái jafnan rétt til þátt-
töku á æfingum og í keppni.
Þjálfari barnsins þíns á að hafa uppeld-•
is- eða þjálfaramenntun að baki t.d.
sem íþróttakennari, íþróttafræðingur
eða hafa tilskilin réttindi miðað við
kröfur KSÍ í hverjum aldursflokki.
Ef þú sem foreldri ert ósátt(ur) við eitt-
hvað í starfi þjálfarans eða flokksins er
best að ræða þá óánægju við þjálfarann
sjálfan, eða við forráðamenn félagsins.
Til umhugsunar
Hjá hverju félagi ætti að vera fagráð •
eða fagaðili sem fylgist með störfum
þjálfarans og metur frammistöðu hans
og ákvarðar hvort hann verði endur-
ráðinn.
Foreldrar eiga ekki að hafa áhrif á val •
þjálfarans í lið eða hóp.
Hættumerki fyrir foreldra
Ef eftirfarandi hættumerki eiga við þig er
kannski kominn tími til að þú dragir þig
örlítið til baka, slakir á og leyfir barninu
að njóta knattspyrnunnar sem leiks á sín-
um forsendum en ekki þínum.
Þú hefur miklar áhyggjur af úrslitum •