Valsblaðið - 01.05.2012, Page 50
50 Valsblaðið2012
UngirValsarar
flokkinn hjá Val, og mér fannst svo rosa-
lega gaman að ég æfði allt sumarið og
þau næstu. Ég var alltaf í fimleikum á
veturna og seinna meir æfði ég sam-
kvæmisdans. En þar sem ég er mikil
félagsvera og vil frekar vera í einni liðs-
heild heldur en að keppa alltaf bara við
einstaklinga eða sjálfa mig fékk ég leið á
dansíþróttum og setti fótboltann í fyrsta
sæti. Ég er líka algjör orkubolti og vil
bara hafa action í kringum mig allan dag-
inn og fótboltinn er fullkomin íþrótt fyrir
það. Ég mun aldrei sjá eftir þessari
ákvörðun minni og ég hef aldrei elskað
fótboltann jafn mikið og í dag.“
Valsarar í fjölskyldunni? „Við erum öll
algjörir Valsarar í æð. Pabbi minn var
landsliðsmaður í knattspyrnu, hann spil-
aði með Val og varð Íslandsmeistari með
þeim árið 1987 og þjálfaði svo meistara-
flokkinn árið 2003 og kom þeim upp í
úrvalsdeild. Fjölskyldan mín flutti svo í
Hlíðarnar sama ár og ég fæddist og hafa
öll systkini mín spilað með félaginu,
systur mínar báðar æfðu með handbolt-
anum og voru mjög efnilegar báðar tvær.
Bróðir minn æfði bæði fótbolta og hand-
bolta í Val og var mjög góður, hann þjálf-
aði svo í nokkur ár líka. Við erum öll
miklir Valsarar en ég tel mig eiga vinn-
inginn í dag. Fyrir mér er Valsheimilið
eins og annað heimili og félagið á stóran
þátt í því hver ég er í dag.“
Framtíðardraumar? „Mínir framtíðar-
draumar eru að byrja að spila með meist-
araflokki Vals á næstu 2 árum, klára
námið í Verzlunarskólanum, fá mér há-
skólagráður og eignast fjölskyldu. Ég hef
reynt að sýna mig fyrir landsliðsþjálfur-
um síðustu árin en ekki fengið sénsinn
hingað til, maður veit aldrei hvað getur
gerst, ég ætla allavega ekki að gefast
upp. Minn helsti draumur í dag er að
spila fyrir hönd Íslands.“
Vaka hefur æft fótbolta síðan hún var 8
ára en æfði þá alltaf bara á sumrin, en var
101 ára þegar hún byrjaði að æfa fótbolta
á fullu. Henni vannst það mikill heiður
að fá Friðriksbikarinn. „Þetta er eitthvað
sem hvetur mann áfram í því sem maður
er að gera gott og eflir sjálfstraust innan
vallar og finnur fyrir trausti meðal þjálf-
ara, félagsins og liðsfélaga. Ef ég á að
segja satt var ég ekkert að búast við að fá
þennan bikar og kom mér þetta skemmti-
lega á óvart.“
Séra Friðrik Friðriksson stofnaði Val
árið 1911 þann 11. maí. Einkunnarorð
hans eru „ Látið aldrei kappið bera feg-
urðina ofurliði“.
Hverjar eru halstu ástæður að ung
lingar hætta í íþróttum? „Ástæðan fyrir
því a unglingar hætta að stunda fótbolta
getur oft verið vegna svo mikilla áverka
af meiðslum að þeir eru neyddir til þess
að hætta en svo eru líka einhverjir sem
hætta vegna áhugaleysis eða þau leita í
annan félagsskap en íþróttir.Það er mjög
leiðinlegt þar sem það er sannað að
krakkar sem stunda íþróttir séu með
öruggasta félagsskapinn. Sumir eiga ekki
góð samskipti við þjálfara eða liðsfélaga
eða eru bara ekki þess eðlis að geta
stundað hópíþróttir. Það krefst mikillar
þolinmæði og samvinnu að vera hluti að
stórri heild og vinna sem lið.“
Skemmtilegar minningar? „Skemmti-
legustu minningar mínar innan vallar eru
örugglega öll þau skipti sem Eva Þóra
vinkona mín og liðsmaður minn skorar
mikilvæg mörk á réttri stundu því þau
fögn sem hún tekur þá eru svo ólýsanlega
fyndin að ég gæti oft tárast. En þá hleyp-
ur hún um allan völl eins og bavíani og
hoppar og skoppar og tekur misheppnuð
heljarstökk og fleira, svo heyrir maður í
mömmu hennar hlaupandi og öskrandi á
eftir henni á hliðarlínunni. Það er mjög
svo yndisleg sjón.
Svo gerðist eitt mjög skemmtilegt núna
úti í Englandi, þar sem við vorum á
mótinu í sumar. En við skelltum okkur á
Ólympíuleik í fótbolta og það var mjög
skemmtileg lífsreynsla. Á leiðinni á völl-
inn þá lét þjálfarinn okkur fara í halarófu
eins og við værum 6 ára leikskólakrakkar
og okkur fannst það mikill húmor. Svo
við byrjuðum að syngja allar saman á ís-
lensku og það hátt að ALLIR vegfarend-
ur horfðu á okkur og það endaði með því
að við vorum stoppaðar af útvarpsmanni
frá BBC sem vildi taka upp lögin okkar,
Valsmenn léttir í lund og fleira, og tóku
svo viðtal við okkur. Það var mjööööög
skemmtilegt og fyndið.“
Fyrirmyndir í boltanum? „Ég hef alltaf
horft mikið upp til Sif Atladóttur en hún
var mikið með okkur stelpurnar þegar hún
var að spila með Val af því að kærastinn
hennar Bjössi var að þjálfa okkur. Hún er
framúrskarandi leikmaður og leggur sig
alltaf 110% fram í öllum leikjum með
landsliðinu og mér finnst alltaf gaman að
sjá hana spila. Dóra María hefur líka alltaf
verið mikil fyrirmynd fyrir mér.“
Lykilinn að árangri í íþróttum? „Ef þú
vilt ná góðum árangri í þeirri íþrótt sem
þú stundar, þá skiptir ekki máli hvaða
íþrótt þú ert að æfa, þú þarft alltaf að
mæta á æfingar með því hugarfari að þú
ætlar að læra eitthvað nýtt í dag og þú
ætlar að bæta þig, þú þarft að hvílast vel
og ná góðum svefni, vera í formi og
borða hollt og reglulega. Ef þú vilt ná
sem besta árangri er það AUKA -æfingin
sem skapar meistarann.“
Af hverju fótbolti? „Ég er langyngst af
systkinum mínum og smávegis frekja en
stóri bróðir minn náði samt að draga mig
á æfingu hjá Val þegar ég var 8 ára, sama
ár og pabbi minn var að þjálfa meistara-
Fyrirmérer
Valsheimiliðeins
ogannaðheimili
Vaka Njálsdóttir er 16 ára og leikur knattspyrnu
með 2. flokki og er handhafi Friðriksbikarsins 2012