Valsblaðið - 01.05.2012, Side 93
Valsblaðið2012 93
Hvernig sérð þú fyrir þér að Valur ætti
að vinna gegn einelti? „Eins og ég sagði
hér að ofan þá er fræðsla aðalmálið. Þeg-
ar kemur að einelti þá finnst mér svoköll-
uð „zero-tolerance“ stefna vera eina vit-
ið. En þjálfarar þurfa þá líka að kunna að
taka á málunum og foreldrar verða á vera
á sömu blaðsíðu. Svo er einna mikilvæg-
ast að fræða iðkendur um einelti, t.d.
hvernig það sem sumir túlka sem sak-
laust grín getur þolandinn túlkað sem
einelti. Það má heldur ekki gleyma full-
orðna fólkinu. Einelti meðal fullorðinna
er kannski aðeins öðruvísi háttað en það
er svo sannarlega til. Ég held að gullna
reglan henti hér ágætlega. Við ættum
stundum að prufa að snúa dæminu við á
sjálf okkur áður en við segjum eða ger-
um eitthvað sem við munum sjá eftir,“
segir Mist.
Hafa viðbrögð við þessu myndbandi
komið ykkur á óvart? „Já og nei. Það
kom mér á óvart hversu mikla athygli
þetta fékk enda gerðist þetta allt mjög
hratt. Frá því að Katrín hafði samband
við mig og þar til myndbandið kom út
liðu bara tæpir tveir sólarhringar. En við-
brögðin við myndbandinu sem slíku
komu mér ekki á óvart enda er þetta mál-
efni sem flestir, ef ekki allir, eru sammála
um. Það er enginn fylgjandi einelti. Við
viljum öll búa í heimi þar sem fólk getur
verið það sjálft án þess að líða fyrir það.
Tilgangurinn með myndbandinu var nátt-
úrulega að vekja athygli og skapa um-
ræðu um einelti. Það er því frábært að
geta nýtt athyglina sem landsliðið fær í
að leggja þessu málefni lið og gefa til
baka til samfélagsins en á sama tíma aug-
lýsa landsliðið.“
Valsblaðið þakkar Mist fyrir greinar
góð svör og það er ekki amalegt fyrir
samfélagið að hafa aðrar eins fyrir
myndir sem geta vonandi haft áhrif í
baráttunni gegn einelti sem aldrei á að
fá að þrífast, hvorki í skólum, íþrótta
starfi, á vinnustöðum eða á netinu eða
hvar sem er. Blaðið óskar Mist velfarn
aðar í atvinnumennskunni.
Stelpurnar í kvennalandsliðinu eru mikl-
ar og góðar fyrirmyndir unga fólksins og
margar í landsliðinu hafa leikið með Val
einhvern tíma á ferlinum og eru því Vals-
mönnum að góðu kunnar. Þar má t.d.
nefna Dóru Maríu Lárusdóttur, Margréti
Láru Viðarsdóttur, Katrínu Jónsdóttur,
Sif Atladóttur, Hallberu Guðnýju Gísla-
dóttur, Dagnýju Brynjarsdóttur, Guð-
björgu Gunnarsdóttur, Hólmfríði Magn-
úsdóttur svo nokkrar séu nefndar. Ein
þessara landsliðskvenna Vals er Mist
Edvardsdóttir sem leikið hefur nokkra
landsleiki, en henni er fleira til lista lagt,
en hún tók þátt í að gera myndband með
skilaboðum gegn einelti sem hlaut viður-
kenningu fyrir skömmu. Valsblaðið tók
Mist tali og spurðist nánar fyrir um þetta
verkefni.
Hvers vegna völduð þið þetta málefni,
þ.e baráttu gegn einelti? „Þetta er hug-
mynd sem kviknaði hjá Katrínu Ómars-
dóttur. Hún varð vör við umræðu á Face-
book þar sem ein eltis fórnar lamb steig
fram og sagði sögu sína. Katrínu fannst
hún vera í stöðu þar sem hún gæti haft
áhrif til góðs og bauð stelpunni á lands-
leikinn við Úkraínu en fannst það ekki
nóg því hún vildi geta náð til fleiri. Þá
bar hún undir landsliðið þá hugmynd að
búa til myndband gegn einelti og þær
tóku vel í það. Yfirskriftin á myndband-
inu er „Fögnum fjölbreytileikanum“ sem
þýðir í raun að við eigum ekki að dæma
hvert annað á útliti, kynþætti, kyni, kyn-
hneigð, skoðunum eða þeim hlutum sem
móta manneskjuna. Það er allt í lagi að
hafa mismunandi skoðanir og vera öðru-
vísi svo lengi sem þú kemur vel fram við
sjálfa þig og aðra,“ segir Mist.
Hvernig sérð þú að íþróttafélög geti
unnið gegn einelti í starfi sínu, bæði al
mennt og í yngri flokkum? „Ég held að
opin umræða sé alltaf besta lausnin. Um
leið og einelti byrjar þarf að taka á því
strax en það verður ekki gert ef það má
ekki ræða það því menn eru hræddir um
að blanda sér í málið. Einelti verður
aldrei útrýmt þannig. Þjálfari getur tak-
markað fylgst með því sem fer fram í
krakkahópnum því hann er ekki með
þeim nema rétt á meðan æfingunni stend-
ur. Krakkarnir eyða miklu meiri tíma en
það saman og það þarf að brýna fyrir
þeim að ef þau verða vör við eða jafnvel
sjálf fyrir einelti þá þarf að segja frá því
strax og taka á því opinskátt. Fræðsla er
því gríðarlega mikilvæg og hún þarf að
ná til barna, þjálfara, foreldra og allra
þeirra sem koma að íþróttastarfinu því
það hvílir einnig mikil ábyrgð á þeim
sem ætlað er að taka á málinu,“ segir
Mist ákveðið.
Hvar er mesta hættan á einelti í íþrótta
starfi? „Að mínu mati myndast mesta
hættan í yngri flokkunum þegar hópurinn
er einn, þ.e.a.s. fyrir eða eftir æfingu,
inni í klefa, eða alls staðar þar sem þjálf-
arinn er ekki með hópnum. Mér finnst
samt mikilvægt að muna það að einelti
getur tekið á sig svo margar myndir og
getur þess vegna farið fram á æfingu inn-
an um alla og án þess að menn átti sig
hreinlega á því að hegðun þeirra sé að
valda öðrum vanlíðan. Menn verða að
muna að þó svo þeim finnist þeir ekki
vera að leggja í einelti þá getur upplifun
fórnarlambsins verið allt önnur. Sem
dæmi má nefna leikmann sem fær miklu
meiri og harðari gagnrýni frá sumum
liðsfélögum fyrir mistök á æfingu en aðr-
ir leikmenn liðsins. Ég held að flestir
íþróttamenn kannist við svona dæmi þar
sem þolinmæði gagnvart leikmönnum er
mismunandi og til lengdar getur þetta
haft virkilega slæm áhrif á sjálfstraust
þess sem fyrir aðkastinu verður og það
að finnast hann/hún vera velkomin/n og
hluti af hópnum.
EftirGuðnaOlgeirsson
Viðtal við Mist
Edvardsdóttur í tilefni
af myndbandinu sem
kvennalandsliðið gerði til
að berjast gegn einelti
Fögnumfjölbreytileikanum–
eineltiáaldreiaðfáaðþrífast