Valsblaðið - 01.05.2012, Blaðsíða 95
Valsblaðið2012 95
EftirSigurðÁsbjörnsson
Þjálfun og hugarfar í yngri flokkunum er
mun lakara hér úti. Metnaðurinn er mun
meiri heima. Hér eru menn bara að dúlla
sér. Svo má benda á að hér erum við bara
í húsinu á skipulögðum æfingum. Það er
ekki þessi félagsmiðstöðvar tilfinning
eins og á Hlíðarenda þar sem maður get-
ur komið þegar manni hentar og tekið á
því í þreksalnum. Svo má ekki gleyma
blessuðum pottinum þar sem maður get-
ur slakað á með strákunum eftir átökin.
En hér úti hverfur hver til síns heima
fljótlega eftir æfingu.
Í hvaða deild heldur þú að Valsliðið,
eins og þú manst það, væri ef það spil
aði í Þýskalandi? Við værum í basli í 2.
deild það er á hreinu, en ég hugsa að
besta liðið heima hverju sinni væri ná-
lægt toppnum hérna í 2. deildinni.
En ef Emstetten væri að spila á Ís
landi? Ég held að við værum í efsta sæti.
Hvaða stöðu spilarðu með Emstetten
og hvernig skrifar maður það á þýsku?
Miðjan er Rückraum Mitte, hægri skyttan
er Rückraum rechts og hægra hornið er
Rechtsaußen.
meira um það að menn séu að hittast utan
æfinga en í Dusseldorf var þetta dreifð-
ara.
Hvernig er aðstaðan hjá ykkur í sam
anburði við Val? Hún er öll miklu betri
hjá Val. Handboltaaðstaðan er fín á báð-
um stöðum. En hjá Dusseldorf og Em-
stetten er þrekaðstaðan mjög slök miðað
við heima. Það sleppur svosem alveg hér
hjá Emstetten en þegar ég var hjá Dus-
seldorf þurfti ég að kaupa mér kort í
ræktina til að komast í almennilega að-
stöðu. Það er alltaf mjög greiður aðgang-
ur að lækni og sjúkraþjálfara ef eitthvað
bjátar á, og menn eru alltaf sendir í rann-
sóknir, röntgen eða sneiðmynd, strax og
eitthvað gerist til að skoða hvað er í
gangi.
En hvernig er aðsókn á leiki? Það eru
yfirleitt um 1.500 manns á leikjum hérna
en það er hægt að koma 2.200 manns í
húsið. Hún fyllist þegar við tökum á móti
Hamborg í bikarnum. Það er sambæri-
legur fjöldi þegar við spilum á útivelli.
Er hátt hlutfall af uppöldum leik
mönnum í liðinu? Ég held að það séu
um 5–6 heimamenn, þar af tveir sem
spila reglulega. En útlendingar? Við
erum 7, tveir Hvítrússar, svartfellskur
Austurríkismaður, tveir Svíar, tveir Ís-
lendingar og Hollendingur.
Ef þú ættir að benda mér á eitthvað
eitt sem er betra hjá Emstetten heldur
en hjá Val, hvað kemur fyrst upp í
hugann? Áhorfendurnir skipta þar mestu
máli og vitaskuld það að geta lifað af því
að spila.
En geturðu bent á einhver einföld at
riði sem liðin heima á Íslandi ættu að
taka upp af því sem þú hefur kynnst
þarna úti? Það er auðvitað búið að reyna
að grilla ofan í mannskapinn eða bjóða í
súpu í Valsheimilinu en upp á umgjörð
og stemningu virðist bjórinn skipta máli.
Ég veit að það hljómar kjánalega að
segja þetta en fólk kemur vel fyrir leik og
fær sér bjór og af grillinu. Kannski
menningarmunur, kannski bjórinn.
En þegar þú hugsar til baka minnist
þú einhvers sem við erum að gera bet
ur en Þjóðverjar? Við erum miklu betri
í að búa til leikmenn heima á Íslandi. Hér
horfir maður stundum á einhverja flokka
og finnst illa farið með mikinn fjölda.