Valsblaðið - 01.05.2012, Page 120
120 Valsblaðið2012
Minningar
fyrir hönd nemenda- og foreldrahópsins
sem útskrifaðist 2009 frá Háteigsskóla
sem eiga svo margar góðar minningar um
Magneu og eiga henni svo margt að þakka.
Einnig færa fyrir hönd Knattspyrnufélags-
ins Vals fjölskyldunni innilegar samúðar-
kveðjur með þakklæti fyrir allt sem þau
hafa gert fyrir félagið.
Guðni Olgeirsson,
foreldri frá Háteigsskóla og í
barna- og unglingaráði Vals
BenediktKarl
Bachmann
fæddur 12. mars 1945
dáinn 9. maí 2012
Góður vinur er fallinn frá langt fyrir aldur
fram. Bósi eins og hann var alltaf kallaður
á meðal gamalla félaga í Val var ávallt létt-
ur í lund og hvers manns hugljúfi. Þegar
Bósi var í stuði var brugðið á leik og spila-
stokkurinn dreginn fram. Þá hófust römm-
ustu galdrar og þeir sem ekki höfðu áður
séð hann að verki voru agndofa enda ekki
auðvelt að átta sig á því hvernig í ósköp-
unum hann framkallaði snilldina. Þeir
voru flottir á fyrsta herrakvöldi Vals 1982
þeir Bósi og Þorsteinn Sívertsen/Skossi
með pípuhattana merktir Magic Brothers
og þó að eitthvað hafi skolast til og kanín-
an næstum andast þá er enn vitnað í upp-
ákomuna með brosi á vör. Þau Magga voru
sannarlega frábært teymi í öllu sínu lífi og
starfi og náðu alltaf að heilla viðskiptavini
sína í þeim rekstri sem þau stóðu fyrir, nú
síðast í Innrammaranum við Rauðarár-
stíg, fyrirtæki sem ber þeim hjónum vitni
um þjónustulipurð og vönduð vinnubrögð.
Það er þungbært að sjá nú á bak þessa frá-
bæra drengs sem alltaf lagði sig fram um
glæða lífið gleði og velgengni.
Innilegar samúðarkveðjur sendi ég
Möggu, Hrefnu, Steina og fjölskyldu.
Halldór Einarsson
Björgvin
Hermannsson
fæddur 27. júní 1938
dáinn 24. maí 2012
Valur sér á bak einum sinna góðu félaga
nú þegar Björgvin Hermannsson hús-
gagnasmíðameistari hefur kvatt eftir erf-
ið veikindi síðustu ára. Björgvin hóf ungur
að stunda knattspyrnu og átti glæsilegan
feril hjá félaginu sem hámarki náði þegar
Valur varð Íslandsmeistari 1956 og óhætt
er að segja að þar lék Björgvin mjög stórt
hlutverk.
Björgvin lék einnig með landsliðinu
og varð aftur Íslandsmeistari með Val tíu
árum síðar, 1966, þegar hann hlýddi kall-
inu og tók aftur fram gömlu góðu hansk-
ana. Það var ákveðinn ljómi yfir þessum
góða dreng, flottur á velli með góðan húm-
or. Hann var vinsæll meðal félaga sinna,
allt í hófi engin mikil fyrirferð en góð nær-
vera. Eftir að keppnisferlinum lauk, lagði
Björgvin sitt af mörkum til áframhald-
andi uppbyggingar félagsins með ýmsum
hætti, þ.á.m. stjórnarsetu og þjálfun yngri
flokka. Valur þakkar fyrir mikið og óeig-
ingjarnt framlag og sendir fjölskyldu og
vinum Björgvins sínar innilegustu samúð-
arkveðjur.
F.h.fulltrúaráðs Vals
Halldór Einarsson
MagneaHrönn
Stefánsdóttir
fædd 12. október 1958
dáin 4. janúar 2012
Það voru ákaflega óvænt tíðindi þegar
fréttist í nóvember síðastliðinn að Magn-
ea íslenskukennari við Háteigsskóla til
margra ára væri komin í veikindaleyfi,
hefði greinst með krabbamein. Í fyrstu var
ekki ljóst hvers eðlis meinið var en vita-
skuld voru vonir bundnar við að hægt væri
að vinna bug á því. Fréttir bárust reglu-
lega af æðrulausri baráttu hennar og vit-
að er að það gladdi hana mjög þegar fyrr-
verandi nemendur úr Háteigsskóla komu í
heimsókn til hennar á spítalann með blóm
og kveðju frá útskriftarárgangi skólans
vorið 2009. Einnig hefur það örugglega
glatt hana að sigurvegarar Háteigsskóla í
hæfileikakeppni Skrekks í haust tileink-
uðu verðlaunin Magneu íslenskukennara
sínum. Hún náði að fylgjast með hátíð-
legri jólaskemmtun hjá núverandi umsjón-
arnemendum sínum og gleðjast fyrir jól-
in með samkennurum en hún naut þess að
vinna með ungu fólki, en því miður tapað-
ist baráttan við meinið í ársbyrjun.
Það var síðan sérstakt gleðiefni þegar
Magnea fór að taka þátt í sjálfboðastarfi
hjá Knattspyrnufélaginu Val, en maður
hennar Jón Höskuldsson hefur tekið virk-
an þátt í fjölbreyttu sjálfboðastarfi hjá
félaginu til margra ára. Magnea kom eink-
um að miðasölu á heimaleikjum í knatt-
spyrnu og stóð þar vaktina ásamt öðru
góðu fólki sem er ómissandi við rekst-
ur á íþróttafélagi. Ég hef heyrt að þetta
sjálfboðaliðastarf hjá Val hafi gefið henni
mikið, þar kynnist hún ýmsu góðu fólki
og naut þess að leggja sitt af mörkum til
félagsstarfsins ásamt manni sínum.
Ég vil að lokum færa fjölskyldu Magn-
eu og öllum aðstandendum innilegar sam-
úðarkveðjur og flytja jafnframt kveðjur