Valsblaðið - 01.05.2013, Side 5
Valsblaðið 2013 5
Minning um Hemma Gunn!
Á sumardegi kvaddi sveinn
sá var margra vinur.
Á stríðum ferli stóð oft einn
sterkur – beinn sem hlynur.
Heiðursmaður Hermann var
henti að mörgu gaman.
Súperstjarna – sjónvarpsstar
stjórnaði öllu saman.
Þín sárt er Hemmi saknað nú
– sálin þjóðar harmar.
Það var enginn eins og þú
oft nú vökna hvarmar.
Alltaf kátur – alltaf hýr,
ætíð gleði hreyfði.
Skellihlátur hjartahlýr
hugum margra dreifði.
Dauðans fylgdi kviði kné
kallað‘ann á þig drengur.
Þagnar hlátur – þrýtur spé.
Þú ERT hér ekki lengur.
Grjónapungagengið allt
góðan vin nú kveður.
Guðs á vegum ganga skalt
gott þér hlotnist veður.
Þú varst Íslands sannur son
sálir margra gladdir.
Á engu illu áttum von
er þú í skyndi kvaddir.
Núna ríkir niðdimm nótt
núna öll þig hörmum.
Sofðu vinur – sofðu rótt
sofðu í Drottins örmum.
Höf.: Jón H. Karlsson
Forsíðumynd. Bikarmeistarar kvennaliðs Vals 2013, annað árið í röð, fagna
innilega að leikslokum. Kvennaliðið í handbolta hefur fagnað fjölda titla á
undanförnum árum og þrír síðustu íþróttamenn Vals hafa komið úr hópi
liðsins, þær Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 2010, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
2011 og Guðný Jenný Ásmundsdóttir 2012. Ljósmynd. Eva Björk Ægisdóttir
Meðal efnis:
16 Valskórinn fagnaði 20 ára afmæli
á árinu með ýmsum hætti.
20 Ólafur Stefánsson snýr aftur
að Hlíðarenda að loknum löngum
farsælum ferli sem leikmaður og
annast þjálfun meistaraflokks
karla í handbolta.
42 Viðbuðarík hringferð 3. flokks karla
í fótbolta um landið í sumar.
46 Rakel Logadóttir leikmaður Vals
í fótbolta og þjálfari fjallar um
hvernig árangur af starfi yngri
flokka er metinn.
48 Valsfjölskyldan. Elfur Sif Sigurðar
dóttir og Gísli H. Gunnarsson
eiga þrjá stráka í Val og hafa í tæp
20 ár verið afar virk í starfi hjá
félaginu.
52 Víðvörlar handboltastelpur í 3. flokki.
58 Myndaopna með bikarmeisturum í
handknattleik kvenna.
74 Fálkarnir komu að mörgum verk
efnum á árinu á sínu fjórða
starfsári.
78 Þórarinn Björnsson guðfræðingur er
með vangaveltur um Valsnafnið,
tilurð þess og mögulegan höfund.
84 Guðný Jenný Ásmundsdóttir
markmaður kvennaliðs Vals í
handbolta og íþróttamaður Vals
2012 í ítarlegu viðtali.
88 Það skipta allir máli. Ragnhildur
Skúladóttir skrifar um yngri flokka
starf íþróttafélaga.
102 Mulningsvélin. Nýtt öflugt
stuðningsmannafélag í
handboltanum hjá Val.
106 Leiðin að sigrinum. Margrét
Magnúsdóttir þjálfari og fyrrum
leikmaður í knattspyrnu hjá Val
fjallar í viðtali m.a. um rannsóknir
á íslenskum knattspyrnukonum í
efstu deild.
112 Minningarorð. Hermann Gunnarsson
féll frá á árinu.
Valsblaðið • 65. árgangur 2013
Útgefandi: Knattspyrnufélagið Valur,
Hlíðarenda við Laufásveg
Ritstjóri: Guðni Olgeirsson
Ritnefnd: Jón Guðmundsson, Ragnhildur Skúladóttir,
Sigurður Ásbjörnsson og Þorgrímur Þráinsson
Auglýsingar: 3. fl. karla í handbolta, Dagný
Arnþórsdóttir, Sveinn Stefánsson, Jóhann Már
Helgason og Guðni Olgeirsson
Ljósmyndir: Eva Björk Ægisdóttir, Guðlaugur
Ottesen Karlsson. Þorsteinn Ólafs, Hólmfríður
Sigþórsdóttir, Guðni Olgeirsson, o.fl.
Prófarkalestur: Guðni Olgeirsson
Umbrot: Eyjólfur Jónsson
Prentun og bókband: Ísafoldarprentsmiðja ehf.