Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 78
78 Valsblaðið 2013
Af spjöldum sögunnar
Þórarinn Björnsson
Með þessi hástemmdu orð í veganesti
var svo haldið upp á Úlfarsfell og meðal
annars heilsað upp á tignarleg arnarhjón
sem þar áttu sér hreiður og stálpaðan
unga á klettasnös. Þessir konungar him-
insins sveimuðu yfir forvitnum drengjun-
um, sem gættu þess auðvitað að styggja
ekki heimilislíf fuglanna um of. Þegar
upp á fjallið kom var síðan sungið og
farið í knattspyrnu, stangarstökk og fleiri
leiki og útsýnis notið í allar áttir. Að síð-
ustu snæddi hópurinn í veitingaskálanum
við Hamrahlíð áður en haldið var heim á
leið og í bæinn komu þreyttir en glaðir
ferðalangar um eða eftir klukkan átta um
kvöldið.
Vallarframkvæmdir og stofnun
Hvats
Í framangreinda skemmtiför var farið um
líkt leyti og félagar í Fótboltafélagi
KFUM hófu að ryðja sér alvöru knatt-
spyrnuvöll vestur á Melum, eftir að hafa
áður fengið tilskilið leyfi bæjaryfirvalda
til verksins. Vart þarf að efa að skemmti-
förin hefur átt sinn þátt í að gefa fram-
kvæmdum við völlinn þá arnarvængi
sem til þurfti til að ná settu marki fljótt
og vel. Ferðin heppnaðist að minnsta
kosti afar vel og styrkti samstöðu og
liðsanda piltanna í Fótboltafélagi
KFUM. Hún var Friðriki Friðrikssyni
einnig hugleikin sem sést best á því að
hann helgaði henni 20 vers í kvæðabálki
sínum: Sumarlíf í K.F.U.M.
Í æviminningum sínum nefnir séra
Friðrik að „bæði fjelögin, Valur og Hvat-
ur“ hafi farið í skemmtiförina upp að
Lágafelli.3 Í því efni ber þó að taka minni
séra Friðriks með fyrirvara. Fyrst er þess
að geta að einungis eitt fótboltafélag starf-
aði innan KFUM þegar hér var komið
sögu og Valsnafnið hafði ekki enn fest sig
í sessi. Það sést meðal annars á því að
ræðan Sursum Corda var flutt „við
gönguför Fótboltafjelags K.F.U.M.“.4 Hið
sama staðfesta einkabréf Friðriks frá byrj-
un ágúst og svarbréf borgarstjóra viðvíkj-
3 Starfsárin II, Friðrik Friðriksson [1946], 106.
4 Friðrik Friðriksson 1912, 45.
„Fótboltafjelag K.F.U.M.“ –
á grýttum mel
Á vordögum 1911 tóku nokkrir stálpaðir
piltar í KFUM að æfa sig í knattspyrnu á
óruddu svæði suður á Melum, rétt við
veginn fram á Grímsstaðaholt. Þar var
rými til boltaleiks óneitanlega öllu meira
en í portinu við hús KFUM við Amt-
mannsstíg, engar brothættar rúður í hættu
en vara þurfti sig á ósléttum melnum og
grjóti – sem nóg var af í ýmsum stærð-
um.
Ein helsta driffjöðrin á bak við þessa
sérkennilegu sparkiðju var prentneminn
Guðbjörn Guðmundsson sem eignast
hafði eigin knött um þetta leyti. Það var
fágætur munaður á þeim árum. Guðbjörn
átti líka hugmyndina að því að kanna
möguleika á stofnun fótboltaflokks eða
félags innan KFUM. Ræddi hann málið
ásamt fleiri félögum við séra Friðrik
Friðriksson, framkvæmdastjóra félags-
ins, og boðaði síðan til stofnfundar 11.
maí 1911. Á að giska tólf mættu á þenn-
an frumstofnfund en einungis sex voru
reiðubúnir að taka þátt í stofnun félags-
ins það kvöld. Byrjunin var því ekki
beysin en mjór er mikils vísir og í lok
mánaðarins var haldinn framhaldsstofn-
fundur. Fjölgaði þá talsvert í félaginu,
stjórn var mynduð og starfið tók á sig
fastara form.
Engar frumheimildir eru til frá þessum
fyrstu stofnfundum Vals en elstu heim-
ildir benda allar til þess að framan af
sumri hafi félagið jafnan verið nefnt
„Fótboltafjelag K.F.U.M.“ Það nafn not-
aði séra Friðrik til dæmis um félagið í
eftirminnilegri skemmtiför sem félags-
piltar tóku þátt í júlí 1911.
Arnarhjón og „Sursum Corda“
Sunnudaginn 16. júlí 1911 héldu piltar í
Fótboltafélagi KFUM í skemmtiferð upp
að Lágafelli í Mosfellssveit. Sú ferð var
skipulögð að undirlagi séra Friðriks sem
fór í vikunni áður ásamt Guðmundi
Bjarnasyni klæðskera til að undirbúa
ferðina, kanna aðstæður og fá kirkju
staðarins léða. Lagt var af stað klukkan
átta að morgni sunnudagsins í þéttri
þoku. Fljótlega rofaði þó til og var veður
hið fegursta þegar leið á daginn. Eftir
tveggja klukkustunda göngu snæddu
menn morgunverð og keyptu sér kaffi í
kaffisöluhúsi sem þá stóð við rætur
Hamrahlíðar í Úlfarsfelli, gegnt Korp-
úlfsstöðum. Því næst var farið í Lága-
fellskirkju þar sem séra Friðrik annaðist
helgistund og flutti ræðu sem hann
nefndi Sursum Corda! – þ.e.: „Lyptið
hjörtum til himins.“1 Þar lagði Friðrik út
frá orðum Jesú í Fjallræðunni um fugla
himinsins og liljur vallarins. Lýsti hann
helgidómi íslenskrar sumarnáttúru og
gerði fegurð hennar og stórfengleik að
fordæmi siðferðilegs þroska. Undir lok
ræðunnar vék hann meðal annars að
knattleikninni með þessum orðum:
Kostið kapps um að læra sem bezt að
leggja fegurð og kærleika, fjör og
æskugleði inn í fótboltaleikinn …
Verið hlýðnir lögum listarinnar og þá
verður þessi leikur að sannri íþrótt,
arðberandi einnig fyrir guðsríki, og
með þessu getið þjer orðið til þess að
göfga og fegra hið íslenzka íþróttalíf
og lypta því á hærra stig fegurðar og
heilagrar prýði.2
1 Úti og Inni … Friðrik Friðriksson 1912, 47
(45–57).
2 Friðrik Friðriksson 1912, 56. Prédikunartexti
sr. Friðriks var Matt. 6:26–33.
VALUR – að elta rjúpu?
Vangaveltur um Vals-nafnið, tilurð þess og mögulegan höfund
Filippus Guðmundsson, síðar múrara
meistari, er talinn hafa átt hugmyndina
að Valsnafninu síðsumar 1911.