Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 40
40 Valsblaðið 2013
saman. Einnig vonast þau líka til þess að
þetta verkefni þeirra verði fordæmi fyrir
aðra Valsara sem eiga stórafmæli og vilja
láta eitthvað gott af sér leiða fyrir félagið
sitt. Aðspurð um þetta verkefni segir
Sossa hugsi: „Ég er búin að velta þessu
fyrir mér síðan ég átti Sindra eða í 16 ár –
af hverju það sé enginn róló á Hlíðarenda.
Öllum hefur fundist þetta frábær hug-
mynd en bara aldrei verið til peningur í
verkefnið eða það sett í forgang. Við
ákváðum því að bjóða mörgum Völsurum
í veisluna. Frábært fólk sem við höfum
kynnst í gegnum starfið hjá Val. Margir
þeirra svöruðu kallinu og mættu og voru
mjög þakklátir fyrir að fá að taka þátt í
þessu verkefni með okkur og það fannst
okkur svo vænt um.“
Ætlunin er að setja áletraðan platta á
eitt af leiktækjunum þar sem stendur:
Hemmalundur – til minningar um
Valsarann Hemma Gunn. 1946 – 2013
„Verið hress – ekkert stress – bless“
Hemmalundur verður formlega opnaður
við hátíðlega athöfn fljótlega eftir ára-
mót. Það má með sanni segja að þetta sé
frábært framtak hjá þeim hjónum Sossu
og Hansa og eiga þau heiður skilið og
miklar þakkir fyrir þetta frumvæði og
framtak.
Guðni Olgeirsson tók saman
Valshjónin Soffía Ámundadóttir ( Sossa)
og Hans Kristján Scheving héldu upp á
sameiginlegt 90 ára afmæli sitt á árinu
og buðu fjölda gesta. Það er í sjálfu sér
ekki í frásögur færandi en í boðskortinu
kemur fram að þau afþakka allar gjafir til
sín en biðja gesti um frjáls framlög sem
þau ætla að nýta til að styðja Val til að
koma á laggirniar róluvelli á Hlíðarenda.
Með þessu safnaðist myndarlegur sjóður
sem fyllti þau bjartsýni á að þetta verk-
efni gæti orðið að veruleika.
Þau skrifuðu bréf til aðalstjórnar Vals
þar sem þessari hugmynd er lýst. Í bréfinu
segir m.a.: Við höfum ákveðið að styrkja
Val. Verkefni sem okkur langar að leggjast
í er að koma á laggirnar Rólo á Hlíðar
enda. Horn þar sem rólur, kastali, vega
salt til dæmis er á en tilgangurinn er að
þar geti börn leikið sér. Þetta horn geta
margir nýtt sér, s.s. yngri systkyni iðk
enda, börn eldri iðkenda, ungir iðkendur
og gestir. Við viljum líka setja upp þar
bekki þar sem hægt er að sitja, grilla og
hafa gaman. Einnig gæti þetta horn nýst
vel sem fjáröflun fyrir unglingaflokkana
til að passa börn á meðan á leik stendur á
Hlíðarenda. Yngri sem og eldri flokkar
ásamt foreldrum gætu hist þarna eftir æf
ingar og átt góða stund saman – félags
legt. Einnig gætu Sumarbúðir í borg og
íþróttaskólinn notað þessa aðstöðu.
Aðalstjórn félagsins samþykkti þessa
hugmynd og þá fóru hjólin að snúast fyr-
ir alvöru. Sossa fékk með sér góðar Vals-
konur í nefnd til þess að nýta svæðið sem
fékkst sem best, þær Kristbjörgu Inga-
dóttur íþróttakennara og Sigurlaugu Rún-
arsdóttur kennara. Kostnaðaráætlun fyrir
verkið í heild var rúmlega ein milljón kr.
og það tókst að fjármagna verkefnið með
framlögum úr afmælisgafasjóðnum og
einnig studdu Fálkarnir dyggilega við
verkið.
Ákveðið var að skýra róluvallasvæðið
Hemmalund til minningar um Hemma
Gunn sem lést á árinu eins og öllum er
kunnugt. Þau hjónin sjá svæðið fyrir sér
sem stað þar sem flokkar og allir geta hist,
sest niður, grillað saman og átt góða stund
Hemmalundur á Hlíðarenda
Nýr róluvöllur sem nýtist öllum Völsurum í minningu Hemma Gunn
Sossa með dóttur sinni Brynju Dís
Scheving í Valsbúningi á uppskeru
hátíðnni í haust.
Til fyrirmyndar