Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 89
Valsblaðið 2013 89
Starfið er margt
unni þinni? „Guðmundur Steinn Haf-
steinsson fótboltamaður er frændi minn,
við erum þremenningar.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
fengið frá foreldrum þínum? „Ég hef
fengið góðan og jákvæðan stuðning frá
foreldrum mínum, þau hafa alltaf verið
dugleg að skutla mér á æfingar og horfa
á mig spila. Stuðningur foreldra er mjög
mikilvægur að mínu mati, það má ekki
pína barnið sitt á æfingar en það á að
hjálpa því að taka rétta ákvörðun.“
Hvað finnst þér mikilvægast að gera
hjá Val til að efla starfið í yngri flokk-
um félagsins?„Mér finnst starfið í yngri
flokkunum til fyrirmyndar og það er bara
að halda því góða starfi áfram.
Hvernig er aðstaðan á Hlíðarenda?
„Aðstaðan á Hlíðarenda er sú besta á
landinu að mínu mati. Þú hefur wi-fi, þú
hefur sjoppu, þú hefur fjóra sali til að
æfa í og lyftingaaðstöðu.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik Friðriksson 11. maí 1911.“
Hver eru þín einkunnarorð (mottó)?
„Ég hef nú ekkert sérstakt mottó en á
maður ekki bara að segja: Ekki láta
kappið bera fegurðina ofurliði.“
Alexander hefur æft handbolta í 4 ár.
Hann æfir bæði með 3. og 4. flokki og er
auk þess aðstoðarþjálfari hjá 7. flokki
karla. Hann valdi Val þar sem eldri
systkini hans voru í fótbolta í Val og fjöl-
skyldan býr í Valshverfinu.
Hvers vegna handbolti, hefur þú æft
aðrar greinar? „Félagi minn dró mig á
æfingu og mér fannst það svo gaman að
ég hélt áfram. Ég hef æft fótbolta og
prufað mig áfram í nokkrum öðrum
íþróttum.“
Hvernig gekk ykkur á þessu ári?
„Okkur gekk ekki nógu vel á síðasta
tímabili. Við kepptum bara á Íslands-
mótinu. Hópurinn er góður og skemmti-
legur og við erum allir góðir vinir.“
Hvernig eru þjálfarar þínir? „Mér
finnst þjálfararnir mínir góðir og það
sem einkennir góðan þjálfara er að vera
hvetjandi en þeir mega samt vera strangir
inn á milli.“
Segðu frá skemmtilegum atvikum úr
boltanum. „Það var alltaf jafn gaman í
keppnisferðum þegar Maggi pabbi Egils
las fyrir okkur Gúmmí-Tarzan með til-
þrifum fyrir svefninn, þá hló maður
endalaust. Hver veit nema að það gerist
aftur. Annað atvik er úr keppnisferð til
Akureyrar „við strákarnir vorum í elt-
ingaleik og ég hljóp á rafmagnshurð og
brákaðist á tánni. Í fótboltanum fór ég í
ófáar keppnisferðirnar til Eyja og til
Akur eyrar og það sem ég man aðallega
úr þeim ferðum eru ferðirnar með Herj-
ólfi frá Þorlákshöfn og svo allar Brynju-
ísferðirnar fyrir norðan.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í hand-
boltanum? „Hef ekki leitt hugann endi-
lega að því hver mín fyrirmynd er í
handboltanum en ég held að það sé Óli
Stef.“
Hvað þarf til að ná langt í handbolta
eða íþróttum almennt? „Til að ná langt
í handbolta þarf maður hugarfarið í það
og alltaf að vilja bæta sig. Eins að vera
jákvæður og taka vel á móti hrósi og
leiðbeiningum. Svo þarf að huga vel að
mataræðinu. Það sem ég þarf helst að
bæta hjá mér er mataræðið og horfa vel á
það sem markmaðurinn gerir.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
handbolta og lífinu almennt? „Mínir
framtíðardraumar í handboltanum eru að
komast út að spila. Mig langar að verða
atvinnumaður í handbolta annaðhvort í
Þýskalandi eða Danmörku.“
Hver er frægasti Valsarinn í fjölskyld-
Mér finnst starfið
í yngri flokkunum
til fyrirmyndar
Alexander Jón Másson er 15 ára og
leikur handbolta með 3. og 4. flokki
Valsmenn – bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár
Viðar Elísson
endurskoðandiFjárfestingarfélagið Akureyrin ehf.