Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 31
Valsblaðið 2013 31
Starfið er margt
ods og Valsmenn kláruðu deildakeppnina
án erlends leikmanns. Áfallið var nokkuð
og eftir lokaumferðina var ljóst að Hauk-
ar komust yfir okkur og fóru beint upp í
efstu deild og Valur þurfti því að fara í
fjögurra liða úrslit um eitt laust sæti í
efstu deild. Við lékum fyrst gegn Þór frá
Akureyri. Alíslenskir Valssveinar léku
vel í fyrsta leik og unnu, en Þór jafnaði
svo metin í öðrum leik á Akureyri og því
þurfti að leika oddaleik að Hlíðarenda.
Valsliðið lék stórvel í þessum leik og
vann öruggan sigur. Woods var kominn
aftur í keppnistreyju eftir skjótan bata og
Kristín Ólafsdóttir. Liðið fór í æfingaferð
til Danmerkur síðsumars og í september
vann liðið fyrirtækjabikarkeppni KKÍ
þegar Valur lagði lið Hauka í úrslitaleik.
Góður titill kom að Hlíðarenda.
Kvennaliðið Vals tók annað árið í röð
þátt í átaki Krabbameinsfélagsins, Bleiku
slaufunni, með því að leika í bleikum
búningum í októbermánuði 2013. Þetta
frábæra framtak er í senn holl áminning
um mikilvægi íþrótta sem forvarnar og
styður hugsjónir Vals um heilbrigði og
samfélagslega þátttöku.
Meistaraflokkur karla í efstu deild
á ný
Karlaliðið lék í fyrstu deild eftir að hafa
fallið úr deild þeirra bestu árið áður. Lið-
ið fékk góðan liðsstyrk vandaðra leik-
manna þegar þeir Rúnar Ingi Erlingsson
og Atli Hreinsson bættust í hópinn og þá
var nýr erlendur leikmaður í liðinu, Chris
Woods. Liðið lék mjög vel fyrra hluta
mótsins og var efst lengst af og í kjör-
stöðu að fara beint upp í efstu deild þeg-
ar skammt var til loka móts. Þegar fimm
umferðir voru eftir fótbrotnaði Chris Wo-
Meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik 2013. Lengjubikarmeistarar. Fremri röð frá vinstri: María Björnsdóttir, Þórunn
Bjarnadóttir fyrirliði, Hallveig Jónsdóttir, Margrét Ósk Einarsdóttir, Rut Konráðsdóttir og Ragnheiður Benónisdóttir. Aftari röð
frá vinstri: Signý Hermasdóttir, Lilja Sigmarsdóttir, Hafdís Helgadóttir aðstoðarþjálfari, Ágúst Björgvinsson þjálfari, Jaleesa
Butler, Ragna Margrét Brynjarsdóttir varafyrirliði, Sara Dilja Sigurðardóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir varafyrirliði, Einar
Sigurjónsson sjúkraþjálfari, Unnur Lára Ásgeirsdóttir, Guðbjörg Sverrirsdóttir, Elsa Rún Karlsdóttir, Sóllilja Bjarnadóttir og
Rannveig Björnsdóttir. Ljósm. Guðlaugur Ottesen Karlsson.
Þórunn Bjarnadóttir fyrirliði
meitaraflokks kvenna í körfubolta
hampar Lengjubikarnum í haust.