Valsblaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 65
Valsblaðið 2013 65
Á árinu tóku nokkrir strákar flokksins
þátt í landsliðsverkefnum og voru þeir
félaginu til sóma.
Besti leikmaður 2. flokks karla var
valinn Ragnar Þór Gunnarsson og skor-
aði Ragnar 20 mörk fyrir flokkinn í sum-
ar í 19 leikjum
Mestu framfarir í 2. flokki karla fædd-
ur árið:
1996 Victor Páll Sigurðsson.
1995 Haukur Ásberg Hilmarsson
1994 Halldór Kristján Baldursson
Leikmaður leikmannanna var val-
inn Breki Bjarnason.
Ánægjulegu og jafnframt mjög skemmti
legu ári er lokið. Markmið flokksins náð
ist, sem var að að tryggja sig í Adeild
árið 2014 og fá að glíma við þá bestu. Ár
angurinn má þakka öflugu starfi í 2. flokki
og metnaðarfullum strákum með skýr
markmið að leiðarljósi um að verða leik
menn framtíðarinnar í meistaraflokki Vals.
2. flokkur kvenna
Þjálfarar
Þorleifur Óskarsson, Rakel Logadóttir og
Jóhann Hreiðarsson.
Sameinuðu liði með ÍR var telft fram
og varð liðið Faxaflóameistari. Sumarið
var brösótt en stelpurnar héldu sér þó
uppi í sínum riðli. Í bikarnum náðu stelp-
urnar í fjórðungsúrslit en töpuðu fyrir
liði Breiðabliks sem varð á endanum bik-
Meistaraflokkur Vals hefur aldrei skor-
að jafn mikið af mörkum á Íslandsmóti
og það gerði á nýliðnu keppnistímabili
eða 45 talsins, eins tapaði liðið einungis
5 leikjum sem er mikill viðsnúningur frá
árinu áður en þá töpuðust 12 leikir.
Fimmta sætið var hlutskiptið í ár og tap-
aði liðið einungis einum leik minna en
Íslandsmeistarar KR. Margir ungir leik-
menn fengu tækifæri og gaman frá því
að segja að tveir þeirra sem stigu sín
fyrstu spor með meistaraflokki Vals í
sumar skoruðu báðir í síðasta leik liðsins
á móti Víkingi Ólafsvík.
Þeir Sindri Sceving og Indriði Áki
Þorláksson fóru á reynslu til erlenda liða,
Kolbeinn Kárason var lánaður til Noregs
og Rúnar Már Sigurjónsson fór á lán til
Zwolle í Hollandi og var síðan seldur til
Sundsvall um mitt sumar.
Meistaraflokkur kvenna
Á 8. áratugnum náði kvennaknattspyrna
að skjóta rótum hjá Val og félagið hamp
aði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli í
kvennaknattspyrnu árið 1978. Barna og
unglingastarf hefur lengi verið öflugt í
kvennaknattspyrnu sem skilað hefur bæði
í fjölda iðkenda sem koma víðs vegar að
af höfuðborgarsvæðinu og árangur hefur
einnig yfirleitt verið góður.
Þjálfarar og starfsmenn
Helena Ólafsdóttir er aðalþjálfari Vals og
henni til aðstoðar voru Þorleifur Óskars-
son, Rajko Stanisic, Ragnheiður Á. Jóns-
dóttir og Valgeir Viðarsson.
Meistaraflokksráð kvenna
Benóný Valur Jakobsson, Davor Purusic,
Bára Bjarnadóttir, Skorri Aikman og Jón
Sigfús Sigurjónsson.
Árangur í mótum
Stelpurnar urðu Reykjavíkurmeistarar
með því að sigra í öllum sínum 6 leikjum
sannfærandi og var markatalan 34-0,
Elín Metta skoraði 14 mörk í mótinu og
varð markahæst. Í janúar sigruðu þær
svo Íslandsmótið innahúss. Úrslitaleikir
Lengjubikarsins voru haldnir í apríl og
léku Valur og Stjarnan til úrslita, leikur-
inn tapaðist 4-0. Íslandsmótið fór vel af
stað og var 7-0 sigur gegn Aftureldingu
staðreynd en í heildina var árangurinn
ágætur þar sem 12 leikir unnust, 3 jafn-
tefli og 3 töp. Markatalan var 53-20. Í
bikarkeppni komust stelpurnar í 8-liða
úrslit. Elín Metta fékk silfurskóinn í ár
og skoraði hún 17 mörk á Íslandsmótinu.
2. flokkur karla
Þjálfarar
Einar Ólafsson og Helgi Mikael Jónas-
son.
Í 2. flokki karla voru strákar fæddir
árin 1996, 1995 og 1994. Flestir iðkend-
ur flokksins voru á elsta árinu eða 11
talsins. Um 20 strákar voru samtals á
tveimur yngri árunum.
Gildi flokksins í sumar voru; Trú, þol-
inmæði og vinátta.
2. flokkur karla tók þátt í mörgum
verkefnum á árinu. Um sumarið var
ákveðið að vera með tvö lið í Íslands-
móti KSÍ A-lið og B-lið svo allir fengju
tækifæri til að spila fótbolta, þar sem æf-
ingahópurinn var fjölmennur.
Valur var með A-liðið í B-riðli Íslands-
mótsins og náði liðið að tryggja sér sigur
með 37 stig, sem fengust með 12 sigrum,
1 jafntefli og 5 töpum. Liðið spilar því í
A-riðli næsta sumar. B-liðið endaði í 3.-
4. sæti og stóð sig frábærlega, strákarnir
voru hársbreidd frá því að fara í úrslita-
leik B-liða. Liðið tapaði í umspili á KR
velli 4–3 með einstaklega súru marki frá
KR í uppbótartíma. Markmiðið með B-
liðinu er fyrst og fremst að skapa öllum
okkar leikmönnum verkefni yfir sumar-
tímann og spiluðu nokkrir strákar úr 3.
flokki með okkur í þessum leikjum.
Nokkrir strákar á 2. flokks aldri æfðu og
spiluðu með meistaraflokki karla á árinu.
Íslandsmeistarar í 2. flokki karla í knattspyrnu, B. deild 2013. Efri röð til vinsti: Einar
Ólafsson (þjálfari), Haukur Ásberg Hilmarsson, Marteinn Högni Elíasson, Jón Ívan
Rivine, Nikulás Snær Magnússon, Gunnar Partrik Sigurðsson, Tómas Aron Tómasson,
Darri Egilsson, Breki Bjarnason, Helgi Mikael Jónasson (þjálfari) Neðri röð til
vinstri: Halldór Kristján Baldursson, Ólafur Andri Þórarinsson, Jón Torfi Jónsson,
Dagur Sindrason, Baldvin Freyr Ásmundsson, Victor Pál Sigurðsson, Andri Sigurðsson
og Kolbeinn Ari Arnórsson.