Valsblaðið - 01.05.2013, Side 23
Valsblaðið 2013 23
Starfið er margt
Og þeir þurfa að vera snöggir að hugsa,
enda oftar en ekki nánast enginn tími til
þess.“
Ef þú skoðar sjálfan þig á gagnrýnin
hátt, hversu stór hluti af árangri þín-
um voru hæfileikar til samanburðar
við hugarfar?
,,Viljinn skipti rosalega miklu máli. Ég
var ágætur tæknilega en mig skorti styrk
og snerpu. Það þarf að rækta leikskiln-
inginn, kraftinn, tæknina og síðan hugar-
farið. Í mínu tilviki var hugarfarið í lagi,
okkur gekk vel sem lið og ég lenti sjald-
an í verulegu basli. En því miður kom
leikskilningurinn mjög seint til sögunnar.
Við þjálfarar hjá Val eigum að miðla af
reynslu okkar og þekkingu til hvers ann-
ars og jafnvel til annarra meistaraflokka.
Ég gæti vel hugsað mér að taka ein-
hverjar æfingar fyrir fótboltamenn og sé
fyrir mér að þjálfarar í Val vinni miklu
betur saman. Við áttum nýlega mjög
gagnlegan fund um hvað mætti betur
fara. Það væri gaman að sjá af hverju
körfuboltamaður hefur mestan stökk-
kraft, ef það er raunin, af hverju fótbolta-
maður er fljótastur og svo framvegis
þannig að við getum lært hvert af öðru.
Hvaða æfingar þurfum við að gera til að
öðlast stökkkraft og svo framvegis?
Það sem börnin eiga að gera er að
treysta þjálfaranum sínum, gera það sem
hann segir og síðan nokkrar aukaæfingar.
En það er á ábyrgð félagsins að sjá til
þess að þjálfararnir séu frábærir.
Auðvitað er freistandi fyrir mig að
gefa meira af mér til yngri flokkanna en
mér finnst ég fyrst þurfa að sanna að ég
geti gert eitthvað fyrir meistaraflokkinn,
svo ég öðlist rétt til að deila reynslu
minni til yngri iðkenda. Það væri óheppi-
legt fyrir mig að vasast í öllum flokkum
með einhverja kenningu sem ég hefði í
raun ekki sannreynt annars staðar.
Félagslega tel ég að Valur sé á réttri
leið. Fjöldi fólks er á bak við tjöldin í
sjálfboðavinnu, mér þykir gaman að sjá
ungu ,,mulningsvélina“ á leikjum og
hafa hátt. Ég fór á mitt fyrsta herrakvöld
um daginn og naut þess í botn og mér
sýnist félagsstarfið blómstra á breiðum
grunni. Við höfum því engu að kvíða og
eigum að halda áfram að vinna á þeim
flotta grunni sem er til staðar.“
Félagarnir Guðjón Valur Sigurðsson og
Ólafur Stefánsson fallast í faðma að
leikslokum, en þeir hafa saman staðið
vaktina í landsliðinu um langa hríð.
Guðjón Valur er enn að og á góða
möguleika að ná markameti Óla með
sama áframhaldi.
Ólafur Stefánsson hefur nú snúið aftur
að Hlíðaranda sem þjálfari meistara
flokks karla í handbolta og þar leggur
hann sitt lóð á vogarskálarnar að byggja
upp handbolta á Íslandi, af hliðar
línunni, í nýju og spennandi hlutverki.