Valsblaðið - 01.05.2013, Page 24
24 Valsblaðið 2013
alveg vaknaður og er einhvern veginn
fljótandi ennþá.
Hvaða setningu notarðu oftast:
„Mamma, hvað er í matinn?“
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig: Ég elska þig.
Fullkomið laugardagskvöld: Gott
kvöld í góðra vina hópi.
Fyrirmynd þín í handbolta: Mér finnst
Duvnjak skemmtilegur leikmaður og svo
er Bartlomiej Jaszka líka í smá upp-
áhaldi.
Draumur um atvinnumennsku í hand-
bolta: Það hefur náttúrulega verið draum-
urinn að komast í atvinnumennsku frá því
að maður byrjaði. Er það ekki draumur
allra að vinna við það sem þeir elska?
Landsliðsdraumar þínir: Það er svo
annar draumur að spila með landsliðinu
sem maður er búinn að horfa á með
aðdáunaraugum í sjónvarpinu. Það væri
frábært að ná þeim árangri og mikill
heiður.
Besti söngvari: Bubbi.
Besta hljómsveit: Band of horses er
ágæt.
Besta bíómynd: Lion King er svona
nostalgíu myndin en annars er það
örugglega The Perks of being a Wallflo-
wer og svo er Drive líka fín.
Besta bók: To kill a mockingbird.
Besta lag: The Prayer – Kid Cudi.
Uppáhaldsvefsíðan: mbl.is
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Manchester United.
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Ástríðufullur og í þessu af fullum huga.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar-
enda: Fyrsta flokks, ekkert ábótavant
þar.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Verða meira en stórt á landsvísu.
Áfram hærra.
Fæðingardagur og ár: 3. mars 1993.
Nám: Ég er í lyfjafræði í HÍ.
Kærasta: Hildur Björnsdóttir.
Hvað ætlar þú að verða: Halda áfram
að vera handboltamaður og námsmaður
og hugsanlega enda sem lyfjafræðingur.
Af hverju Valur? Upphaflega byrjaði ég
í Val í fótbolta því það var í nágrenninu
en hætti svo fljótlega. Svo byrjaði ég í
handbolta í Val því Fúsi kom í skólann
og var að kynna handboltann og ég gat
ekki annað en prufað.
Uppeldisfélag í handbolta: Valur.
Hvernig hafa foreldrar þínir stutt þig í
handboltanum: Þau hafa verið frábær
og alltaf stutt mig þó árangurinn hafi
stundum staðið á sér. Þau mæta á alla
leiki og það þarf að vera eitthvað mikið
að gerast svo það klikki.
Af hverju handbolti: Ég var nú í fót-
bolta líka en ég valdi handboltann. Besta
skýring sem ég hef heyrt fyrir því að
velja handbolta yfir fótbolta er sennilega
það sem Heimir Ríkharðsson segir alltaf:
„Þegar lítið barn sér bolta hvað gerir það
við hann? Það sparkar í hann. Svo þegar
barnið eldist hvað gerir það þá við bolt-
ann? Það tekur boltann upp“.
Eftirminnilegast úr boltanum: Senni-
lega að spila á EM. Það var líka gaman
að spila í bikarúrslitum.
Ein setning eftir síðasta tímabil: Það
olli vonbrigðum.
Koma titlar í hús á tímabilinu: Já ég er
sannfærður um það.
Besti stuðningsmaðurinn: Það er svo
erfitt að pikka einn úr hópnum en stuðn-
ingurinn er búinn að vera frábær í vetur.
Mulningsvélin er svaka vítamínsprauta
og bekkjarfélagarnir standa alltaf fyrir
sínu og svo er það náttúrulega Konni
kóngur.
Erfiðustu samherjarnir: Gummi er hel-
víti öflugur og erfiður viðureignar.
Erfiðustu mótherjarnir: Ætli það sé
ekki bara maður sjálfur, er maður ekki
alltaf sjálfum sér verstur?
Eftirminnilegasti þjálfarinn: Heimir
Rík harðs enda búinn að þjálfa mig næst-
um hálfan „ferilinn“. Mun nú reyndar
seint gleyma Nonna (Jón Halldórsson) og
heraganum sem var í hávegum hafður.
Fyndnasta atvik: Það var frekar fyndið
þegar Valdimar Grímur tók aukakast, á
móti Stjörnunni í fyrra, þegar leiktíminn
var búinn. Þá gerði hann sér lítið fyrir og
smurði boltanum í skeytin og inn. Hann
ætlaði ekki einu sinni að trúa því sjálfur
og svipurinn sem kom á manninn var
eiginlega ótrúlegri en markið. Hann vissi
ekki hvert hann ætlaði og stóð furðu-
lostinn þangað til við tókum hann niður
og hrúguðum okkur ofan á hann. Þegar
hann stóð svo upp aftur var ennþá sami
svipur á honum.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki kvenna hjá Val: Jenný er frábær
markmaður sem hefur verið að standa sig
vel undanfarið.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki karla hjá Val: Frændurnir frá Ak-
ureyri hafa verið að vekja athygli á sér
undanfarið.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í
handbolta hjá Val: Mjög vel, það er
fullt af efnilegum leikmönnum og svo er
gaman að sjá hvað eru margir að æfa.
Hvaða áhrif hefur koma Ólafs Stef-
ánssonar á handboltann hjá Val: Hann
hefur svaka áhrif og er að virkja starfið
og vekja það aðeins til lífsins aftur, fá
aftur það sem Valur var. Það sést líka
bara hvað áhuginn á handboltanum jókst
með komu hans aftur í Val.
Fleygustu orð: Penninn er máttugri en
sverðið.
Mottó: Eigi fellur tré við fyrsta högg.
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Tíminn sem líður frá því að maður vakn-
ar á morgnana og þangað til maður fer á
fætur er alveg magnaður. Maður er ekki
Framtíðarfólk
Heimkoma Óla
Stefáns hefur
svaka góð áhrif
Bjartur Guðmundsson er tvítugur og
leikur handbolta með meistaraflokki
Ólafur Stefánsson að fara yfir kosti
Bjarts á leikmannakynningu í haust.