Valsblaðið - 01.05.2013, Page 44
44 Valsblaðið 2013
Framtíðarfólk
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Þegar ég er að spila stóran leik, klukkan
er að renna út og liðið mitt er yfir.
Hvaða setningu notarðu oftast: „Þetta
er svo skömmustulegt.“
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig: Þegar amma mín sagði :
„Þú ert uppáhalds barnabarnið mitt!“
Fyrirmynd þín í körfubolta: Helena
Sverrisdóttir.
Draumur um atvinnumennsku í
körfubolta: Ég hugsa að ég fari nú ekki
í atvinnumennsku. Mig langar helst að
komast í góðan háskóla erlendis og geta
spilað körfubolta samtímis.
Landsliðsdraumar þínir: Mig langar
einhvern daginn að verða lykilleikmaður
í A-landsliðinu.
Besti söngvari: Ásgeir Trausti.
Besta hljómsveit: Retro Stefson.
Besta bíómynd: Just friends.
Besta lag: Mockingbird með Eminem.
Uppáhaldsvefsíðan: www.facebook.
com og www.karfan.is
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Manchester United.
Uppáhalds erlenda körfuboltafélagið:
LA Lakers.
Eftir hverju sérðu mest: Afar slök
frammistaða mín í úrslitaleik í bikarnum
í unglingaflokki árið 2012.
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Ágúst er snillingur. Hress og skemmtleg-
ur en á sama tíma er hann mjög strangur
og metnaðarfullur.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd-
ir þú gera: Banna harpix í Vodafone
höllinni, fólk myndi reyndar taka misvel
í það.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Ég vil sjá körfuboltann verða jafn
stóran og handboltann og fótboltann.
Fæðingardagur og ár: 9.júlí 1995.
Nám: Stunda nám við Verzlunarskóla Ís-
lands.
Kærasti: Rúnar Ingi.
Hvað ætlar þú að verða: Það þarf að fá
að koma í ljós. Er á viðskiptabraut núna í
skólanum og finnst það skemmtilegt.
Af hverju Valur? Flottur hópur að æfa
þar og góður þjálfari. Plús auðvitað frá-
bær aðstaða.
Uppeldisfélag í körfubolta: Breiðablik.
Hver er besti íþróttamaðurinn í fjöl-
skyldunni: Ætli ég verði ekki að segja
ég sjálf. Ég á yngri bróður sem er efni-
legur handboltaleikmaður, ætli hann taki
ekki fram úr mér einhvern daginn. Ég á
líka tvítugan frænda í Noregi sem er
landsliðsmaður í handbolta.
Stjörnuspá þín fyrir næsta ár: Vonandi
bara bjart og gott ár með velgengni í
körfubolta og skóla.
Af hverju körfubolti: Maður fylgdi
straumnum þegar maður var yngri og ég
æfði bæði körfubolta og fótbolta til 14
ára aldurs. Ég valdi körfuboltann þar
sem mér finnst það skemmtilegri íþrótt
og ég var betri í þeirri grein. Svo fannst
mér alltaf svo leiðinlegt á veturna í fót-
bolta. Það var ekki alltaf hægt að hafa
æfingarnar inni svo maður þurfti að fara
út og æfa í íslenska vetrarveðrinu. Það
var bara alls ekki fyrir mig.
Helstu afrek í öðrum íþróttagreinum:
Ég spilaði fótbolta þegar ég var yngri.
Vann gull á allavega einu Pæjumóti í
Vestmannaeyjum og ég var valin leikmað-
ur ársins árið 2007, þá var ég í 5. flokki.
Markmið fyrir þetta tímabil: Einn bik-
ar kominn í hús á þessu tímabili, um að
gera að fá fleiri. Fá eitt stykki ártal á
vegginn.
Besti stuðningsmaðurinn: Edwin sem
er kallaður í körfuboltaheiminum í dag
FunEddie.
Erfiðustu samherjarnir: Allar í liðinu
erfiðir samherjar. En ég tel Kristrúnu
vera besta leikmann liðsins.
Erfiðustu mótherjarnir: Þetta tímabilið
eru það held ég Keflavík og Haukar.
Snæfell og Grindavík eru líka með góð
lið.
Eftirminnilegasti þjálfarinn: Sævaldur
Bjarnason. Hann þjálfaði mig í Breiða-
blik og svo aðeins í Val. Snillingur.
Hvað einkennir góðan þjálfara: Hefur
aga á liðinu, setur upp fjölbreyttar og
góðar æfingar, strangur og getur sagt
leikmönnum sannleikann en þarf samt að
vera peppandi á sama tíma.
Mesta prakkarastrik: Finnst óhemju
fyndið að hella ísköldu vatni á liðsfélaga
mína þegar þeir búast ekki við því. En
svona utan körfunnar þá hef ég gaman að
því að vekja fólk á leiðinlegan hátt. Í það
kýs ég að nota vatn eða tannkrem.
Fyndnasta atvik: Þegar liðið var að tala
um að Óli Stef væri að fara að þjálfa
handboltaliðið og öllum fannst það frá-
bært. Þá spyr Elsa Rún: „Bíddu, hver er
Óli Stef ?“
Stærsta stundin: Þegar við unnum
Lengjubikarinn í september sl., það var
mitt fyrsta gull á körfuboltaferlinum. Svo
var það líka mjög stór stund þegar ég
fékk póst um að hafa verið valin í A-
landsliðið á síðasta tímabili.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki kvenna hjá Val: Margrét Ósk,
hún er skrýtin á góðan hátt og er ein af
mínum bestu vinkonum.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki karla hjá Val: Benedikt Blöndal.
Góður í körfubolta og í landsliðinu í
stærðfræði.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í
körfubolta hjá Val: Mjög flott starf en
það vantar mannskap, sérstaklega kvenna-
megin.
Fleygustu orð: „Rífðu þig upp!“
Mottó: Anything is possible if you have
the courage to make it happen.
Vil sjá körfuboltann
í Val jafn stóran
handbolta og fótbolta
Hallveig Jónsdóttir er 18 ára og leikur
körfubolta með meistaraflokki