Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 48
48 Valsblaðið 2013
Gísli H. Gunnlaugsson eiga þrjá stráka,
Orra Frey 25 ára, Ými Örn 16 ára og
Tjörva Tý 13 ára, sem allir hafa leikið
handbolta og fótbolta með Val og spila
þeir núna allir með félaginu.
Blaðamaður Valsblaðsins heimsótti
fjölskylduna eitt kvöld í byrjun nóvem-
ber til að fá innsýn í þátttöku þeirra í
félagsstarfinu og tengingu við Val. Fjöl-
skyldan tók brosandi á móti blaðamanni
og eftir að hafa skoðað ýmsar Valsmynd-
ir af fjölskyldunni settumst við öll niður í
stofunni til að spjalla og það er greinilegt
að fjölskyldan er mjög samhent og hafa
öll ánægju af því að ræða um Val og
starfið þar.
Elfur Sif er uppalin á Akranesi og lék
þar handbolta á yngri árum og æfði þar
einnig fótbolta um tíma, „svo hætti ég
bara að æfa íþróttir um 16 ára aldur því
flestar jafnöldrur mínar voru hættar svo
sá ég auðvitað eftir því að hafa hætt
svona ung en svona var þetta bara,“ segir
hún. Gísli bjó fyrstu 9 árin í Safamýrinni
og æfði handbolta með Fram en fluttist
svo í Breiðholtið og var þar eitthvað í
yngri flokkunum í fótbolta. Þau muna
ekki til þess að foreldrar þeirra hafi mætt
á leiki með þeim eða tekið þátt í for-
eldrastarfi, það hafi ekki tíðkast á þeim
Hjónin Elfur Sif Sigurðardóttir
og Gísli H. Gunnlaugsson fluttu í
Hlíðarnar fyrir tæpum 20 árum
og hafa síðan tekið virkan þátt
í foreldra- og félagsstarfi hjá
Val í tengslum við íþróttaiðkun
þriggja drengja sinna, Orra
Freys, Ýmis Arnar og Tjörva
Týs sem allir hafa spilað
fótbolta og handbolta í Val
Í öllum íþróttafélögum er mikill fjöldi
sjálfboðaliða sem leggur sitt af mörkum
til félagsins með ýmsum hætti, m.a. með
starfi í foreldraráðum, fjáröflunum, farar-
stjórn, aðstoð við mót, framkvæmd
heimaleikja og setu í stjórnum og nefnd-
um á vegum viðkomandi félags. Sjálf-
boðaliðar koma oft úr hópi foreldra
ungra iðkenda eða eiga rætur í félaginu
sem iðkendur eða leikmenn frá fyrri tíð.
Sjálfboðaliðar eru ómissandi hverju
íþróttafélagi og eru hluti af mannauði
eða félagsauði þess. Hjá Val eru fjöl-
margir sjálfboðaliðar sem sumir hverjir
starfa árum og áratugum saman hjá fé-
laginu og eignast þar góða vini og félaga.
Stundum tekur öll fjölskyldan virkan þátt
í starfinu, sérstaklega þegar börnin eru
virkir iðkendur hjá félaginu.
Fjölskyldan í Reykjahlíð 12 er gott
dæmi um Valsfjölskyldu sem árum sam-
an hefur verið viðloðandi félagsstarfið
með margvíslegum hætti og er enn á
fullu. Hjónin Elfur Sif Sigurðardóttir og
Við skulum bara verða Valsarar
Fyrsti leikur Orra í fótbolta á 6 ára
afmælisdaginn 1994.