Valsblaðið - 01.05.2013, Side 49
Valsblaðið 2013 49
Valsfjölskyldan
eftir Guðna Olgeirsson
handbolta hjá Val til 16 ára aldurs og
hann valdi þá handboltann vegna þess að
honum fannst handboltinn skemmtilegri
og taldi meiri möguleika á að komast þar
áfram. Honum finnst mesti munurinn
vera fólginn í því að þar var miklu meiri
stöðugleiki í þjálfun, sömu þjálfararnir
árum saman en margir þjálfarar hafi ver-
ið í fótboltanum og margir utan félags.
„Það var enginn Óskar Bjarni í fótboltan-
um,“ segir Orri Freyr glaðlega.
Fjölskyldan telur að allir strákarnir
hafi verið heppnir með þjálfara í yngri
flokkunum. Óskar Bjarni er eini þjálfar-
inn sem hefur þjálfað alla strákana fyrst
Orra Frey þegar hann var 8 ára og þeir
telja hann sérstaklega góðan þjálfara,
skipulagður, vill að iðkendur nái árangri
og auk þess þekki hann alla í Val. Einnig
tíma en nú sé öldin önnur þar sem for-
eldrar taki yfirleitt mikinn þátt í foreldra-
starfi í tengslum við skóla og áhugamál
barna sinna.
Fluttu í Hlíðarnar 1994, samhent
fjölskylda
Hjónin Elfur Sif Sigurðardóttir og Gísli
H. Gunnlaugsson fluttu í Valshverfið fyr-
ir 20 árum með 6 ára son sinn, Orra Frey,
nánar tiltekið í Barmahlíðina. Þau mættu
fljótlega á Hlíðarenda til að skrá strákinn
í fótbolta og höfðu þá aldrei komið ná-
lægt félaginu og þekktu lítið til þess, en
það var ekki aftur snúið. Þau fluttu
tveimur árum síðar, 1996 í Reykjahlíð-
ina, og það eru ófáar stundirnar sem þau
hafa átt á Hlíðarenda. Þau segja það gríð-
arlegan kost að búa nálægt Valsheim-
ilinu.
Strákarnir þrír hafa allir gengið í Ís-
aksskóla og síðan í Hlíðaskóla og hafa
allir leikið fótbolta og handbolta hjá Val í
yngri flokkunum, með sömu kennara og
þjálfara að miklu leyti og eru mjög líkir
að flestu leyti. Fjölskyldan hefur gert
mjög margt saman og er greinilega mjög
samhent. Þau hafa í gegnum tíðina hreyft
sig saman, t.d. farið reglulega á skíði hér
á landi og erlendis, í hjólaferðir og sund
og slíkar samverustundir gefa þeim mik-
ið. Fjölskyldan er einnig öllum stundum
á Hlíðarenda.
Eftirminnilegir þjálfarar
Orri Freyr stundaði bæði fótbolta og
Vinstri: Tjörvi og
Ýmir með
viðurkenningar.
Miðja: Ýmir á
Shellmóti.
Hægri: Orri í leik.
Bræðurnir hafa
allir æft bæði hand
bolta og fótbolta í
yngri flokkunum hjá
Val og fjölskyldan
hefur farið á ótal
mót í gegnum tíðina
í báðum þessum
greinum og kynnst
fullt af skemmtilegu
fólki.
Að ofan: Orri var skráður ungur í Val.
Valsfjölskyldan öll saman komin í
nóvember 2013. Frá vinstri: Elfur Sif
Sigurðardóttir, Gísli H. Gunnarsson,
Tjörvi Týr Gíslason, Ýmir Örn Gíslason,
Orri Freyr Gíslason með soninn Bjarka
Frey eins árs og Eygló Björg
Helgadóttir.