Valsblaðið - 01.05.2013, Page 52

Valsblaðið - 01.05.2013, Page 52
52 Valsblaðið 2013 íslensk lið höfðu spilað á. Það var mjög auðvelt að afla sér upplýsinga um allt sem máli skipti og lítil óvissa fyrir okkur að fara í fyrstu handboltaferðina þangað. Partille Cup er mjög stórt mót og hundr- uð liða taka þátt í því. Þátttakendur koma víða að. Þar eru lið frá Norðurlöndunum áberandi en einnig eru lið frá mörgum Afríkulöndum, Asíu og Bandaríkjunum. Öll dagskráin var algjörlega niðurnegld áður en við lögðum af stað. Það er frem- ur einfalt að komast á Partille. Flogið er beint til Gautaborgar og síðan tekur við 40 mínútna rútuferð að skólanum þar sem við höldum til á meðan mótið stend- ur. Það er alltaf sami skólinn sem er und- irlagður af íslensku liðunum en einnig voru íslensk lið í annarri byggingu sem var deilt með liðum frá öðrum löndum. Hvert lið er með sína stofu en frammi á göngum eru sameiginlegir sófar og tölv- ur. Skammt frá er mötuneytið sem þjónar öllum mótsgestum. Þar var mjög mikið af hollum og góðum mat í boði. Greini- lega hugsað sem nauðsynleg næring fyrir íþróttafólk. Allir leikirnir fara fram á þremur stórum svæðum en á milli þeirra er skammur spölur. Öll skipulagning og allt utanumhald er til fyrirmyndar á Par- tille Cup. Þegar ekki var verið að keppa var mögulegt að skreppa í tívolí, þrisvar voru haldin böll auk þess sem opnun- arhátíðin og kveðjuhófið voru tilkomu- mikil. Einn af kostunum við að fara á Partille er samveran með öðrum hand- boltakrökkum frá Íslandi. Auðvitað kannast maður við marga handbolta- krakka í öðrum liðum eftir að hafa spilað gegn þeim af og til í mörg ár, en maður kynnist þeim miklu betur þegar við erum Nokkur hluti stelpnanna í þriðja flokki Vals í handbolta býr yfir ótrúlega mikilli reynslu af alþjóðlegum handboltamótum. En það eru Partille Cup í Gautaborg í Svíþjóð, Interamnia World Cup á Teramo (skammt frá Róm en Adríahafsmegin) á Ítalíu og Granollers Cup sem fer fram skammt utan við Barcelona á Spáni Blaðamaður Valsblaðsins mælti sér mót við fjórar þessara stelpna í þeim tilgangi að festa á blað upplýsingar um hand- boltamótin sem þær hafa keppt á. Til- gangurinn er sá að koma á framfæri við þá sem ráðgera keppnisferð á handbolta- mót í útlöndum nokkrum fróðleik ef það mætti verða til þess að létta þeim undir- búninginn. Þær Guðrún Lilja Gunnars- dóttir, Hulda Steinunn Þorsteinsdóttir, Sólveig Lóa Höskuldsdóttir og Vigdís Birna Þorsteinsdóttir gáfu sér tíma frá æfingum og námi til að fræða okkur um þau þrjú handboltamót sem þær hafa sótt. Stelpurnar segja að öll mótin séu á svipuðum tíma um mánaðamótin júní- júlí. Interamniamótið stóð í 7 eða 8 daga. Granollers Cup er álíka langt. Í öllum til- fellum þarf að taka með svefnpoka og vindsæng. En inni í pakkanum á öllum mótum eru 2–3 máltíðir á dag. Hand- boltaleikirnir eru frá því um kl. 8 eða 9 á morgnana og til 9 á kvöldin. Á Ítalíu og Spáni er tekið langt hádegishlé, sem heimamenn kalla „siesta“. Síðan er það tilviljun á hvaða tíma er leikið en þeir eru oftast 1 eða 2 á hverjum degi. Móta- fyrirkomulagið er svipað á öllum mótun- um. Fyrst er keppt í riðlum þar sem geta verið allt að 6 lið í riðli. En tvö lið kom- ast upp úr hverjum riðli og keppa með útsláttarfyrirkomulagi þar til eftir standa tvö lið sem fara í úrslitaleik mótsins í sínum flokki. Dregið er um röðun í riðla en reynt að koma í veg fyrir að mörg lið frá sama landi lendi í sama riðli. Stelp- urnar voru sammála um að Partille Cup væri sterkasta mótið þar sem öflug lið frá Norðurlöndunum væru fyrirferðarmikil en á Interamnia og Granollers væri mun meiri blöndun á sterkum og lakari liðum. Partille Cup í Svíþjóð Fyrsta mótið sem stelpurnar fóru á var Partille Cup. En hvers vegna var ákveðið að fara á Partille? Einfaldlega vegna þess að það var svo vel þekkt mót sem mörg eftir Sigurð Ásbjörnsson Víðförlu handbolta­ stelpurnar í 3. flokki Gistiaðstaðan hjá Vals- stelpunum á Spáni. Glæsileg opnunarhátíð á Granollersmótinu á Spáni.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.