Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 61
Valsblaðið 2013 61
Starfið er margt
fyrir neðan má sjá Íslands- og bikar-
meistaratitla félagsins í tíð núverandi
stjórnar.
Meistaraflokkur karla
Íslandsmeistarar, bikarmeistarar, Reykja-
víkurmeistarar, deildarbikarmeistarar, Ís-
landsmeistarar innanhúss, Evrópukeppni,
Canela Cup meistarar, Atlantic bikarinn.
Meistaraflokkur kvenna
Íslandsmeistarar, bikarmeistarar, Reykja-
víkurmeistarar, deildarbikarmeistarar, Ís-
landsmeistarar innanhúss, Evrópukeppni
8-liða úrslit.
Heimaleikjanefnd
Starf heimaleikjanefndar var til sóma og
fékk Valur hæstu einkunn hjá eftirlits-
mönnum KSÍ fyrir störf sín og umgjörð.
Jón Höskuldsson formaður, Skúli
Edvards son, Þorsteinn Guðbjörnsson,
þor heldur trúðum við á verkefnið og
kvikuðum hvergi af leið.
Það er mikill ábyrgðarhluti að sitja í
stjórn knattspyrnudeildar Vals og margt
sem þarf að huga að. Mikill tími fer í
rekstur og tekjuöflun og er það orðið
áhyggjuefni hversu lítinn tíma stjórnar-
menn hafa til að sinna öðrum verkefnum.
Aðdáunarvert er að enn séu til menn og
konur sem fórna sínum tíma til stjórnar-
setu í Val en jafnhliða því er sorglegt að
sjá, heyra og verða vitni að hversu
óvægna gagnrýni stjórnarmenn og aðrir
sjálboðaliðar fá frá einstaklingum innan
félagsins. Nú er mál að linni og skora ég
á félagsmenn, foreldra og aðra að snúa
bökum saman styðja við starfsmenn,
þjálfara, leikmenn og stjórnarmenn og
gera starfið skemmtilegt, uppbyggilegt
og umfram allt jákvætt.
Fjárhagur
Rekstur knattspyrnudeildar hefur verið
erfiður síðustu ár og tap deildarinnar árið
2011 var gríðarlegt og ljóst að taka þyrfti
til í rekstrinum. Náðum við að bæta
reksturinn árið 2012 um 50%, fyrir árið
2013 erum við að gera vel og munum ná
ásættanlegri rekstrarniðurstöðu. Stjórn
knattspyrnudeildar lagði mikið á sig og
náði góðum árangri í fjáröflunum þrátt
fyrir erfitt árferði fyrirtækja, skorið var
niður í rekstri og hagrætt en stjórnin
reyndi að gera það þannig að ekki kæmi
það niður á árangri eða starfi.
Reynslumikil og sigursæl stjórn
Árið 1911 var knattspyrnan enn á
bernsku skeiði sem íþrótt á Íslandi.
Knattspyrnan barst hingað laust fyrir
aldamót, og eins og alls staðar hreif hún
hugi ungra manna. Árið 1908 var stofn
uð unglingadeild innan KFUM í Reykja
vík og var séra Friðrik Friðriksson leið
togi deildarinnar og naut óskoraðrar
virðingar.
Á þessum tíma fæddist hugmynd hjá
KFUM drengjunum að stofna knatt
spyrnufélag en nokkur slík félög höfðu
þá verið stofnuð í Reykjavík. Það var
síðan 11. maí 1911 sem haldinn var
fundur á lesstofu KFUM þar sem sex
piltar stofnuðu Fótboltafélag KFUM en
nafni félagsins var þegar sama ár breytt
í Val.
Valsmenn hafa átt í gegnum tíðina sig-
ursæla meistaraflokka í knattspyrnu. Hér
Hluti af forystumönnum
knattspyrnudeildar
Vals. Frá vinstri: E.
Börkur Edvardsson for
maður KND, Jón
Gretar Jónsson for
maður mfl.ráðs karla
og Sigurður K.Pálsson
formaður fjárhagsog
markaðsráðs.
Meistaraflokkur Vals í knattspyrnu sumarið 2013. Myndin er tekin í Ólafsvík eftir síðasta leikinn á Íslandsmótinu en liðið
endaði í 5. sæti deildarinnar. Efri röð frá vinstri: Ásgeir Þór Magnússon, Breki Bjarnason, Dragan Kazic, Halldór Eyþórsson
(liðsstjóri), Edvard Skúlason (liðsstjóri), Fjalar Þorgeirsson, Guðmundur Þór Júlíusson, Arnar Sveinn Geirsson, Ragnar Þór
Gunnarsson, Rajko Stanisic (þjálfari), Magnús Gylfason (þjálfari), Darri Sigþórsson, Valgeir Viðarsson (sjúkraþjálfari) og
Andri Sigurðsson. Neðri röð frá vinstri: Sigurður Egill Lárusson, Magnús Már Lúðvíksson, Kristinn Freyr Sigurðsson, Andri
Fannar Stefánsson, Haukur Hilmarsson og Jónas Tór Næs.