Valsblaðið - 01.05.2013, Page 66
66 Valsblaðið 2013
Starfið er margt
Einnig viljum við koma sérstöku þakk-
læti til sjúkraþjálfara Vals, Valgeirs Við-
arssonar en hann hyggur á nám erlendis
á næstunni.
Fyrir hönd stjórnar knattspurnu
deildar Vals afrekssvið
E. Börkur Edvardsson, formaður
Yfirlit yfir starf yngri flokka í
knattspyrnu
8. flokkur drengja / stúlkna
Þjálfarar: Rakel Logadóttir, Embla Ás-
geirsdóttir og Nína Kolbrún Gylfadóttir.
8. flokkur samanstóð af ungum leik-
skólakrökkum fæddum 2009 2008 og
2007. Um það bil 25 krakkar voru skráð-
ir og þegar mest var voru um 30 krakkar
á æfingu. Flokkurinn var blandaður báð-
um kynjum en þó reyndist erfitt að halda
þeim stelpum sem æfðu með flokknum
sökum þess hve fáar þær voru. En þess
má geta að fyrir næsta tímabil er búið að
stofna 8. flokk. stúlkna og verður frítt
fyrir þær að æfa fram að áramótum. 8.
flokkur æfði 2 sinnum í viku og fór á eitt
mót í sumar. Mótið sem varð fyrir valinu
var Vísmót Þróttar. Þrjú lið tóku þátt og
stóðu þau sig öll með stakri prýði og
fengu allir verðlaun að móti loknu.
7. fl. stúlkna
Þjálfari: Kristín Jónsdóttir. Í 7. flokki
kvenna æfðu í kringum 35 stelpur fyrir
jól og svo um 28 stelpur eftir jól og í
sumar. Flokkurinn æfði 3 sinnum í viku
af kappi og voru þær virkilega duglegar
og áhugasamar. Stúlkurnar spiluðu
armeistari. Gerður hefur verið samningur
um áframhald á samstarfi Vals og ÍR.
Besti leikmaður 2. flokks kvenna var
kosinn María Soffía Júlíusdóttir.
Efnilegust var valin Embla Ásgeirs-
dóttir.
Lokahóf
Glæsilegt lokahóf var að venju haldið,
voru veitt verðlaun til þeirra einstaklinga
sem sköruðu framúr að mati leikmanna,
þjálfara og stjórnar.
Haukur Páll Sigurðsson bestur að mati
samherja.
Magnús Már Lúðvíksson bestur að
mati stjórnar.
Indriði Áki Þorláksson efnilegastur.
Dóra María Lárusdóttir best að mati
samherja og stjórnar.
Elín Metta Jenssen efnilegust.
Horft til framtíðar – erum við
tilbúin í slaginn 2014?
Valur er eitt sigursælasta íþróttafélag
landsins og það sigursælasta þegar tekið
er tillit til Íslands og bikarmestaratitla í
meistaraflokki karla og kvenna í þremur
vinsælustu íþróttagreinunum, handknatt
leik, körfuknattleik og knattspyrnu. Á
undanförnum áratugum hefur félagið
einbeitt sér að starfi í þessum þremur
íþróttagreinum með öflugu starfi í þrem
ur deildum. Valur er félag með ríka hefð
fyrir aga, sigurvilja, dugnað og heil
brigði.
Þegar tímabilinu 2013 er nýlokið er
ekki úr vegi að hefja undirbúning næsta
tímabils, fara þarf í áætlunarvinnu, í leik-
mannamál, skipuleggja æfingar og finna
æfingarsvæði þar sem vetraraðstaðan að
Hlíðarenda er ekki ákjósanleg fyrir
knattspyrnufólk o.fl o.fl. Stjórn, þjálfar-
ar, leikmenn, starfsfólk, sjálfboðaliðar
nálgast þessi verkefni með bjartsýni að
leiðarljósi því við erum fyrir löngu búin
að átta okkur á því að svartsýni vinnur
engar orrustur. Lykillinn að góðum ár-
angri er ástríða, bjartsýni, jákvætt við-
horf, samkennd, samvinna, markmiða-
setning, skýr framtíðarsýn, fjárhagur,
undirbúningur, lausnamiðuð hugsun og
athafnir. Þessi orð verða höfð að leiðar-
ljósi í því mikla starfi sem bíður okkar
við undirbúning tímabilsins 2014.
Við bjóðum Eddu Garðarsdóttir og
Halldór (Donni) Sigurðsson velkomin til
starfa en þau taka við sem aðstoðarþjálf-
arar meistarflokka Vals.
Annar flokkur kvenna í knattspyrnu 2013, samstarf við ÍR (Valur/ÍR). Efri röð frá vinstri: Jói þjálfari, Rúna Oddsdóttir, Ragnhildur
Oddný Loftsdóttir, Ívana Anna Nikolic, Guðrún Ósk Tryggvadóttir, Selma Dögg Björgvinsdóttir, Eva Þóra Hartmannsdóttir, Margrét
Dögg Vigfúsardóttir, Soffía Rún Gunnarsdóttir. Neðri röð frá vinstri: María Soffía Júlíusdóttir, Erla Hrönn Gylfadóttir, Vaka Njáls
dóttir, Lísbet Sigurðardóttir, Sandra Dögg Bjarnadóttir, Nína Kolbrún Gylfadóttir, Málfríður Anna Eiríksdóttir, Embla Ásgeirsdóttir