Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 76
76 Valsblaðið 2013
æfingar og veit að fer vel í maga. Ég fæ
sæti aftast í troðfullri rútu og reima á mig
skóna. Ég er ákveðinn í að hlaupa á und-
ir 7 tímum, helst undir 6:30.
0 km – Landmannalaugar – Tími 0:00
Ég ræsi í fremsta ráshópi ásamt öðrum
Völsurum klukkan 9:00. Þeir eru reyndar
allir töluvert reyndari og fljótari hlaupar-
ar en ég, en til að við höldum hópinn
ræsi ég í sama ráshópi. Þessi fyrsti hluti
leiðarinnar er meira eða minna upp
brekku, en ég er léttur, tæplega 70 kíló
með farangri, og mér gengur ágætlega á
uppleiðinni. Ég veit samt að ég má ekki
fara of hratt, svo ég reyni að hafa hemil á
mér og njóta útsýnisins.
Eftir að hafa hlaupið u.þ.b. 6 km tek
ég fyrsta orkugel dagsins, samkvæmt
áætlun.
Þegar nær dregur Hrafntinnuskeri
versnar veðrið og færið þyngist, enda
yfir mikla snjóskafla að fara. Hér kemur
sér vel að ég er með legghlífar sem festar
eru við fjallahlaupsskóna og koma í veg
fyrir að þeir fyllist af snjó.
Þrátt fyrir slyddu og kulda verður mér
ekki tiltakanlega kalt á þessum fyrsta
hluta leiðarinnar, en það átti eftir að
breytast.
10 km – Hrafntinnusker – Tími 1:26
Ég kemst í Hrafntinnusker í nokkuð
Þann 13. júlí 2013 hlupu fjórir
vaskir hlauparar úr skokkhópi
Vals Laugavegshlaupið úr
Landmannalaugum í Þórsmörk,
við allerfiðar aðstæður og í
slæmu veðri og náðu allir að
ljúka hlaupinu sem er 55 km
Valur skokk náði 7. sæti í sveitakeppn-
inni af þeim 20 sveitum sem náðu að
ljúka keppni.
Þeir voru (nafn og lokatími):
Ólafur Björnsson, 6:28
Haraldur Haraldsson, 6:41
Gísli Vilberg Hjaltason, 6:46
Garðar Þ. Guðgeirsson, 7:01.
Lýsing á upplifun Garðars af hlaupinu
og undirbúningi þess fer hér á eftir.
Dagbók Laugavegshlaupara,
Garðars Þ. Guðgeirssonar
skokkhópi Vals
Undirbúningstímabilið
Febrúar
Tek ákvörðun um að leggja knatt spyrnu-
skóna á hilluna. Mæti í kjölfarið á mína
fyrstu hlaupaæfingu með skokkhópi
Vals.
Apríl
Skrái mig í bríaríi í Laugavegshlaupið,
rúmlega 55 km utanvegahlaup frá Land-
mannalaugum yfir í Þórsmörk. Greiði
fjörutíu og fimmþúsund króna þátttöku-
gjald, svo það verður erfitt að hætta við.
Maí-júlí
Formlegt undirbúningstímabil skokkhóps
Vals fyrir Laugavegshlaupið er u.þ.b.
tveir og hálfur mánuður, frá maí til júlí.
Ég æfi 4–5 sinnum í viku, ýmist með
öllum skokkhópi Vals, með hinum
Laugavegsförunum úr hópnum (sem eru
alls fjórir) eða einn. Einstaklingsæfing-
arnar reynast mér sérstaklega erfiðar, þó
einkum andlega.
Þegar hlaupaálagið er hvað mest eru
hlaupnir upp undir 100 km á viku, ýmist
á götum eða utanvega. Nokkur keppnis-
hlaup eru notuð til undirbúnings, t.a.m.
Grafningshlaupið, 25 km utanvegahlaup.
Esjan og Heiðmörk eru sérstaklega góð
til æfinga fyrir hlaup eins og Laugavegs-
hlaupið, enda auðvelt að finna þar tækni-
lega erfiða stíga og torfærur.
9. júlí
Ég sæki skráningargögn hlaupsins niður
í Laugardalshöll og skil farangurinn
minn eftir þar. Hann mun bíða eftir mér
við Bláfjallakvísl sem er við miðbik
hlaupsins.
12. júlí
Ég fæ far í þjónustumiðstöðina í Hraun-
eyjum þar sem ég á pantaða gistingu. Ég
ákvað að gista þar fremur en að vakna
klukkan 03:00 á hlaupadaginn og taka
rútuna. Það var góð ákvörðun.
Hlaupið
13. júlí klukkan 06:00
Ég vakna í Hrauneyjum um kl. 6 eftir að
hafa sofið fremur lítið. Athuga veður-
spána og tek lokaákvörðun um klæðnað
fyrir hlaupið.
Mistök: Ég ákveð að vera í stuttbux
um og léttum vindjakka, utan yfir all
þykka hlaupapeysu. Hefði átt að vera í
síðbuxum og regnjakka, enda veðurspáin
slæm.
Í morgunmat borða ég hafrakex og
drekk kókómjólk – morgunmatur sem ég
er búinn að borða fyrir nokkrar langar
Þetta geri ég sko ekki aftur!
Garðar kemur í mark í Þórsmörk, ánægður með afrekið.