Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 80
80 Valsblaðið 2013
sviðsframkoman ógleymanleg. Erfitt að
velja milli hans og Bono í U2 sem er
einnig frábær.
Besta hljómsveit: Hef í gegnum tíðina
hlustað einna mest á U2 og The Killers.
Besta bíómynd: Gleymi seint þegar ég
horfði á Shawshank Redemption með
pabba, ég var held ég ekki orðinn tíu ára
og hún hélt manni stjörfum. Annars af
svona tiltölulega nýlegum myndum
fannst mér Batman þrennan frá Nolan
mjög góð.
Besta bók: Fannst ævisagan hjá Steven
Gerrard góð lesning.
Besta lag: U2 – With or Without You.
Uppáhaldsvefsíðan: Fótbolti.net.
Uppáhaldsfélag í enska boltanum:
Liverpool
Nokkur orð um núverandi þjálfara:
Ákveðinn, metnaðarfullur og veit ná-
kvæmlega hvað hann vill.
Ef þú værir alvaldur í Val hvað mynd-
ir þú gera: Ég myndi reyna að hefja
byggingu á fótboltahúsi hvernig sem það
yrði framkvæmt og fjármagnað, það
myndi stökkbreyta aðstöðunni fyrir fót-
boltann.
Nokkur orð um aðstöðuna á Hlíðar-
enda: Aðstaðan fyrir handbolta og
körfubolta er frábær. Það er hins vegar
augljóst að vetraraðstaðan fyrir fótbolt-
ann í heild er búin að dragast aftur úr all-
flestum félögum á landinu því miður.
Sumaraðstaðan fyrir fótboltann er hins
vegar frábær og Vodafonevöllurinn einn
sá flottasti á landinu.
Hvernig viltu sjá Val þróast á næstu
árum: Ég væri til í að sjá 2–3 stráka í
minnsta lagi sem hafa gengið í gegnum
yngri flokkana skila sér árlega inn í
meistaraflokkinn og tel ég að innan fá-
einna ára geti það orðið að veruleika en
til þess að það gangi upp þarf að halda
vel á spilunum við þjálfun og umgjörð
þessara stráka.
Fæðingardagur og ár: 22. apríl 1991.
Nám: Stúdent frá MA og er að ljúka
íþróttafræði BSc við HR.
Kærasta: Hildur Mist Pálmarsdóttir.
Hvað ætlar þú að verða: Fótboltamað-
ur.
Af hverju Valur? Stórt og metnaðarfullt
félag.
Uppeldisfélag í fótbolta: KA Akureyri.
Frægur Valsari í fjölskyldunni: Nei
ekki svo gott.
Af hverju fótbolti: Eftir að pabbi ýtti
mér 5 ára á fyrstu æfinguna varð ekki
aftur snúið.
Besti stuðningsmaðurinn: Einsi Gunn
þúsundþjalasmiður.
Erfiðustu mótherjarnir: Síðan ég kom
í Val verð ég að segja að við höfum verið
sjálfum okkur verstir, það hefur ekki
skipt öllu máli við hverja við erum að
spila það sem hefur skipt mestu máli
hvernig frammistaðan okkar er. Ef við
náum okkar leik getum við unnið alla á
landinu.
Mesta prakkarastrik: Helsta sem mér
dettur í hug er að í æfingaferð á Spáni
klifraði ég með Herði Sveins yfir í her-
bergið hjá Sigurbirni Hreiðarssyni, þeim
toppmanni, og snerum rúminu hans við.
Semsagt tókum dýnina og létum hana
ofan á neðri hluta rúmsins sem lá þá öf-
ugur, dýnan hvíldi því á fjórum fótum
rúmbotnsins og Bjössi vaknaði í keng
enda dýnan búin að bogna niður í miðj-
unni. Hann hafði samt bara gaman að
þessu daginn eftir.
Fyndnasta atvik: Tengt fótboltanum þá
kemur strax upp í hugann færeyskt sms
skilaboð sem hinn mikli meistari Jónas
Næs fékk frá landa sínum Pól í keppnis-
ferð á Akureyri. Pól var þá fastur á kló-
settinu í nokkurs konar sjálfheldu, án
pappírs, og rútan farin af stað.
Stærsta stundin: Fyrsti yngri landsleik-
urinn var eftirminnilegur sem og fyrsti
meistaraflokksleikurinn.
Athyglisverðasti leikmaður í meistara-
flokki karla hjá Val: Nesta er ótrúlegt
eintak.
Hvernig líst þér á yngri flokkana í fót-
bolta hjá Val: Þekki það vel karlamegin,
þar eru margir efnilegir strákar sífellt að
bæta sig í öllum flokkunum og flokkarnir
að verða fjölmennari en áður svo það eru
mjög jákvæðir hlutir í gangi.
Fleygustu orð og mottó:. Eftir því sem
ég hugsa meira um það þá eru orð séra
Friðriks um að láta kappið ekki bera feg-
urðina ofurliði þá átta ég mig á því hvað
þau eiga oft vel við.
Við hvaða aðstæður líður þér best:
Líklega á hótel mömmu fyrir norðan,
alltaf gott að vera þar.
Skemmtilegustu gallarnir: Veit ekki
hvort það sé galli en kærastan hefur oft
spurt hvort ég fái aldrei nóg af fótbolta.
Þá er ég kannski nýbúinn að þjálfa og á
æfingu sjálfur og fer svo að horfa á fót-
bolta. Eðlilegt.
Hvað er það fallegasta sem hefur verið
sagt við þig: Erfitt að segja en það er t.d.
alltaf gaman (og fallegt) þegar manni er
hrósað fyrir góðan leik.
Fullkomið laugardagskvöld: Ætli það sé
ekki eitthvað rólegt í faðmi fjölskyldunn-
ar, elda góðan mat og hafa það náðugt.
Fyrirmynd þín í fótbolta: Steven Gerr-
ard, Xabi Alonso. Það voru góðir tímar
þegar þeir voru saman á miðjunni hjá
Liverpool. Fylgdist líka með gjörsam-
lega öllu sem Zidane gerði þegar ég var
yngri.
Draumur um atvinnumennsku í fót-
bolta: Ekki spurning að það er alltaf
draumamarkmiðið – aðalatriðið núna er
samt að gera vel hjá Val og svo sjá til
hverju það skilar mér og liðinu.
Hvað einkennir góðan þjálfara: Góð
þekking á leiknum, metnaður til að gera
leikmenn sína betri, sanngirni.
Besti söngvari: Arnar Sveinn í Vals-
idolinu á sínum tíma. Raddbeitingin og
Framtíðarfólk
Fleiri uppalda í
meistara flokkinn
Andri Fannar Stefánsson er 22ja ára og
leikur knattspyrnu með meistaraflokki