Valsblaðið - 01.05.2013, Síða 87
Valsblaðið 2013 87
Fl PAN280+347_IS.eps
Painter70+Ff_P280_A4_IS.eps
Vigdís leikur nú sitt fjórða tímabil með
Val en hún skipti úr Fram vegna þess að
hún lék einnig fótbolta með Val og
fannst óþarflega flókið að vera í tveimur
félögum. Frábær aðstaða og mjög góðir
þjálfarar auðvelduðu líka þessa ákvörðun
að skipta um félag.
Hvers vegna handbolti, hefur þú æft
aðrar greinar? „Hafði æft líka fótbolta
þangað til í sumar, en valdi handboltann
vegna þess að ég hef meiri vilja og áhuga
til að ná langt þar og finnst hann líka
skemmtilegri.“
Hvernig gekk ykkur á þessu ári?
„Okkur gekk ekki alveg nógu vel á síð-
asta tímabili, komumst ekki upp úr 2.
deild og náðum heldur ekki langt í bik-
arnum. Flokkurinn fór á mót á Spáni í
sumar, Granollers Cup, en ég fór ekki
með. Mér finnst hópurinn vera mjög
góður. Erum með mikla breidd og náum
vel saman utan vallar líka.“
Hvernig eru þjálfarar þínir? „Þjálfar-
arnir mínir eru frábærir, gæti ekki fengið
betri þjálfara þótt víða væri leitað. Góður
þjálfari finnst mér vera sá sem gerir leik-
mann að betri leikmanni, gerir kröfur til
þeirra og lætur þá fara út fyrir þæginda-
ramman til að ná framförum.“
Segðu frá skemmtilegum atvikum úr
boltanum. „Utanlandsferðirnar eru alltaf
efst í huga en síðan er það líka þegar
þegar við vorum á Ítalíu og Lea gamli
markmaðurinn okkar og Kalli Erlings
voru fengin til að dæma í fegurðarsam-
keppni í mótinu og Lea var kynnt sem
besta handboltakona Íslands, en þá héldu
þau að hún væri fararstjórinn okkar,
Hrabba.“
Hverjar eru fyrirmyndir þínar í hand-
boltanum? „Þær eru nokkrar, en þær
sem standa upp úr eru Hrafnhildur Skúla
og Anna Úrsúla.“
Hvað þarf til að ná langt í handbolta
eða íþróttum almennt? „Þarft í fyrsta
lagi að hafa viljann til að ná langt, líka
mikið keppnisskap og síðan skapar æf-
ingin auðvitað meistarann. Helsta sem ég
þarf að bæta núna er t.d. skot og styrkur.
En auðvitað er alltaf hægt að bæta allt.“
Hverjir eru þínir framtíðardraumar í
handbolta og lífinu almennt? „Draum-
urinn er að vera fastamaður í A-landslið-
inu og komast út í atvinnumennskuna,
t.d. í Danmörku, Noregi eða Svíþjóð, og
að lokum bara lifa góðu og hamingju-
sömu lífi. Eftir 10 ár verð ég byrjunar-
liðsmanneskja í A-landsliðinu og búin að
fara út að spila, hvort sem ég væri þar
ennþá eða ekki.“
Hvaða hvatningu og stuðning hefur þú
Mikilvægt að
fara út fyrir
þægindarammann
til að ná framförum
Vigdís Birna Þorsteinsdóttir er 17 ára
og leikur handbolta með 3. flokki
fengið frá foreldrum þínum? „Hef
fengið mikinn stuðning frá foreldrum
mínum í sambandi við handboltann eða
íþróttir yfir höfuð. Mér finnst stuðningur
foreldra mjög mikilvægur, þau eiga klár-
lega hluta í árangrinum.“
Hvernig er aðstaðan á Hlíðarenda til
að æfa handbolta? „Valur er með eina
af bestu aðstöðunum á landinu til að æfa
handbolta svo ég get ekki verið annað en
sátt. Það eina sem Hlíðarenda vantar er
gervigrashöll að mínu mati.“
Hver eru þín einkunnarorð (mottó)?
„Þú uppskerð eins og þú sáir.“
Hver stofnaði Val og hvenær? „Séra
Friðrik, 11. maí 1911.“