Valsblaðið - 01.05.2013, Page 106
106 Valsblaðið 2013
eftir Guðna Olgeirsson
framhjá þeim tíma sem Elísabet Gunn-
arsdóttir þjálfaði bæði yngri flokka og
meistaraflokk kvenna hjá félaginu, en
Elísabet þjálfaði hana í nokkur ár á Hlíð-
arenda áður en hún fór til Svíþjóðar.
„Elísabet lagði að mínu mati grunninn að
því mikla og góða kvennastarfi sem hef-
ur verið unnið á undanförum árum. Ég er
einnig alveg viss um að fyrir yngri leik-
menn félagsins hefur það verið ómetan-
legt að alast upp með frábærar fyrir-
myndir í meistaraflokki kvenna sem hafa
gjarnan gefið mikið af sér til yngri
flokka. Ákveðinn stöðugleiki hefur verið
í þjálfaramálum kvennamegin og þar
hafa stelpur á síðustu árum farið upp í
meistaraflokk án þess að hafa haft marga
þjálfara í gegnum yngri flokka starfið.“
Hvers vegna ákvaðst þú að rannsaka
íslenskar knattspyrnukonur í
lokaritgerð þinnni í íþróttafræðum við
Háskólann í Reykjavík?
„Ég æfði fótbolta frá 6 ára aldri og hef
alltaf haft mikinn áhuga á íþróttinni. Eft-
ir að hafa æft með Fylki þangað til í 3.
flokki skipti ég yfir í Val. Ég var hluti af
Valsliðinu árin 2006–2009 sem vann
nánast allt sem hægt var að vinna á þeim
tíma. Á þeim tíma æfði ég með bestu
knattspyrnukonum landsins sem voru
svo uppistaðan í kvennalandsliðinu sem
hefur náð frábærum árangri á síðustu
árum. Þessi ár voru að sjálfsögðu mjög
lærdómsrík þar sem hugsunarháttur allra
þeirra sem komu að hópnum var til fyrir-
myndar. Þarna gat ég fylgst með því
hvernig framúrskarandi þjálfarar og leik-
menn æfðu. Seinna meir var ég svo hluti
af liðum sem voru ekki jafn sigursæl, ég
var á þeim tíma vör við mikinn mun á
hugsunarhætti leikmanna. Eftir að ég
hætti sjálf að æfa fótbolta árið 2010 velti
ég því mikið fyrir mér af hverju mér
fannst þessi munur svona mikill og hver
er í rauninni ástæðan fyrir því að sumir
leikmenn ná meiri árangri en aðrir. Það
var aðallega vegna þeirra reynslu sem
mig langaði að tengja lokaverkefni mitt
við íslenskar knattspyrnukonur og hugar-
far.“
Margrét Magnúsdóttir byrjaði að æfa
knattspyrnu 6 ára, gekk til liðs við Val
í 3. flokki og var hluti af sigurælu
kvennaliði félagins tímabilin 2006–
2009. Hún hefur einnig mikla reynslu
af þjálfun yngri flokka hjá Val og
hefur þar náð frábærum árangri. Hún
er íþróttafræðingur frá Háskólanum í
Reykjavík og lokaritgerðin hennar er
samanburðarrannsókn á íslenskum
knattspyrnukonum sem léku í efstu
deild kvenna á árunum 2007–2012.
Blaðamaður Valsblaðsins lagði nokkrar
spurningar fyrir Margréti um eigin þjálf-
araferil, sigurhefðina í kvennaknatt-
spyrnu hjá Val og hvað einkenni góðan
þjálfara. Einnig var Margrét beðin að
greina frá helstu niðurstöðum í rannsókn
sinni á íslenskum knattspyrnukonum sem
tengdist lokaverkefni hennar í íþrótta-
fræðum við HR.
Góður þjálfari verður að ná til
iðkenda sinna
Margrét hefur þjálfað hjá Val í mörg ár
og hefur þjálfað mjög marga af yngri
iðkendum Vals með góðum árangri. Síð-
astliðið sumar náði hún frábærum ár-
angri ásamt Birki Erni með 4. flokk
kvenna sem varð í lok sumars Íslands-
meistari A liða eftir harða baráttu. Að-
spurð um hvað einkenni góðan þjálfara
þá hefur hún um það afar mótaðar hug-
myndir „Ég myndi segja að einkenni
góðs þjálfara í yngri flokkum væri eigin-
leiki hans að ná til iðkenda sinna, búa
yfir ákveðnum sannfæringarkrafti sem
hvetur iðkendur áfram, kveikir áhuga og
veitir leiðsögn bæði í þeirri íþróttagrein
sem viðkomandi þjálfar jafnt sem í lífinu
sjálfu. Ég tel einnig mikilvægt að þjálfari
haldi ákveðnum aga á hópnum sem hann
vinnur. Mér finnst líka mikilvægt að
þjálfari sýni starfi sínu áhuga og sé tilbú-
inn að leggja á sig meiri vinnu en krafist
er af honum miðað við hefbundinn æf-
ingatíma. Ég held að það sé ekki hægt að
horfa framhjá því að gott skipulag skiptir
miklu máli í starfi þjálfarans. Mér finnst
einkennandi fyrir góðan yngri flokka
þjálfara að hann er meðvitaður um stöðu
hópsins sem unnið er með sem og stöðu
einstaklinga innan hópsins.“
Hvernig vilt þú skýra út velgengni
yngri flokka Vals í kvennaknattspyrnu
á undanförnum árum?
Margrét segir að mjög erfitt sé að horfa
Leiðin að sigrinum
Mikilvægara fyrir þjálfarar að kenna iðkendum leiðina að
sigrinum í stað þess að einblína á það eitt að sigra
Stelpurnar í meistaraflokki
fagna einu af fjölmörgu
mörkum sumarins 2013.