Valsblaðið - 01.05.2013, Page 108
108 Valsblaðið 2013
er ekki hægt að halda því fram að slíkt
eigi við um alla hópa, stráka og stelpur.“
Hvaða mælikvarða viltu nota um
árangur í íþróttastarfi með börnum og
unglingum?
„Það er mín skoðun að mælikvarðinn á
árangur í íþróttastarfi með börnum og
unglingum eigi ekki endilega að vera
miðaður út frá úrslitum heldur frekar
framförum og að iðkendum líði vel í
starfinu, fái að stunda íþróttir á sínum
forsendum og hafi gaman að. Það finnst
mér vera forsenda fyrir árangri í íþrótta-
starfi. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar
að það megi ekki taka út keppni hjá
börnum og unglingum, það er að mínu
viti mikill lærdómur fólginn í því að tak-
ast á við sigra jafnt sem töp. Starf okkar
þjálfaranna ætti að vera að búa til árang-
ursríkt umhverfi þar sem iðkendum eru
kennd mikilvæg gildi í lífinu sjálfu sem
endurspeglast svo í framkomu iðkenda
og hugsunarhætti. Ég myndi segja að það
væri mikilvægara fyrir þjálfarar að kenna
iðkendum sínum frekar leiðina að sigrin-
um í stað þess að einblína á það eitt að
sigra. Við sem vinnum hjá félaginu ætt-
um líka að leggja mikið kapp í það að ala
af okkur heilbrigða og flotta Valsara sem
eru tilbúnir að vinna fyrir félagið.“
við 29% þátttakenda sem aldrei hafa
leikið landsleik fyrir Ísland. Það verður
að teljast líklegra samkvæmt niðurstöð-
um þessarar rannsóknar að leikmaður
spilaði frekar fyrir landslið Íslands ef
hann varð einhvertímann Íslandsmeistari
á sínum knattspyrnuferli og þá er einnig
líklegra að leikmaður hafi komist í A-
landslið ef hann varð bæði Íslandsmeist-
ari í yngri flokkum og meistaraflokki.
Mér finnst nú samt sem áður mikilvægt
að það komi skýrt fram að þrátt fyrir að
líkurnar aukist á árangri ef viðkomandi
verður Íslandsmeistari á ferlinum þá er
það alls ekki algilt. Ég er þeirrar skoðun-
ar að árangursríkt umhverfi hafi meira
vægi en það eitt að lyfta Íslandsmeistara-
titli. Þrátt fyrir að niðurstöður þessara
rannsóknar sýni fram á þessa niðurstöður
sóknir sem ég skoðaði sýndu að ekki
komu fram fæðingardagsáhrif hjá afreks-
konum í íþróttum og styðja því niður-
stöður þessarar rannsóknar.“
Flestar landsliðakonur hafa orðið
Íslandsmeistarar með yngri
flokkum eða meistaraflokki
„Að lokum fannst mér áhugavert að
skoða hvort þátttakendur urðu Íslands-
meistarar í yngri flokkum. Ég spurði
þátttakendur hvort þeir hefðu orðið Ís-
landsmeistarar í yngri flokkum og skipti
því svo niður eftir aldursflokkum. Niður-
stöður leiddu í ljós marktækan mun á
milli hópa, en 72% þátttakenda sem léku
A-landsleik á tímabilinu 2007–2012 urðu
Íslandsmeistarar í yngri flokkum miðað
Hópmynd af 4. flokki kvenna í fótbolta
sem landaði Íslandsmeistaratitli A liða í
lok sumars en Margrét Magnúsdóttir
þjálfaði flokkinn ásamt Birki Erni.
Valsmenn – bestu óskir um gleðileg jól og farsælt nýtt ár
Nikulás Úlfar Másson
Ólafur G. Gústafsson
Ólafur Már Sigurðsson
Ólafur Rögnvaldsson
Pétur Magnús Sigurðsson
Pétur Sveinbjarnarson
Sigurður Guðmundsson
Smári Þórarinsson
Stefán B. Gunnarsson
Stefán Bergsson
Svala Þormóðsdóttir
Svanur M. Gestsson
Sveinn Sveinsson
Sævar Geir Gunnleifsson
Sævar Hjálmarsson
Viðar Elíasson
Þorsteinn Gunnar Einarsson
Þóra Alexía Guðmundsdóttir