Valsblaðið - 01.05.2013, Qupperneq 109
Valsblaðið 2013 109
og upphaflega var ætlunin, en reglur KSÍ
heimila leikmönnum aðeins að spila með
tveimur félögum í sama móti. Það hefði
ekki síður gert varamönnum A-liðs Vals
gott, sem fengu sumir stuttan leiktíma í
sumar, því þeir voru ekki löglegir í B-
liðs leikina, öfugt við varamenn A-liðs
Víkinga.
Þegar upp var staðið reyndist ólíkt
heilladrýgra að þeim þriðjungi leikmanna
sem ekki náði inn í A-liðs kjarnahópinn,
gafst tækifæri á að þroskast og taka fram-
förum á öðrum vígstöðvum í stað þess að
horfa á félaga sína leika heilt sumar.
Greinarhöfundur átti nokkurn þátt í undir-
búningi þessa verkefnis og er afar stoltur
yfir aðkomu sinni að því. Víkingum er
þakkað ánægjulegt, íþróttamannslegt sam-
starf sem vissulega reyndi nokkuð á radd-
böndin, en það er tilhlökkunarefni að
hrópa á ný: „Áfram Valur!“
Eftir Jón Gunnar Bergs
Þegar leið á sl. vetur varð ljóst að 3.
flokkur karla í knattspyrnu stóð frammi
fyrir gamalkunnu vandamáli. Flokkurinn
var skipaður ríflega 20 iðkendum, alltof
mörgum fyrir eitt 11 manna knattspyrnu-
lið, en alltof fáum til að hægt væri að
tefla fram tveimur liðum. Yrði aðeins eitt
lið skráð til keppni í Íslandsmóti var ljóst
að um þriðjungur iðkenda fengi lítil sem
engin tækifæri til þátttöku í alvöru kapp-
leikjum um sumarið. Með tvö lið skráð
til leiks yrðu sífelld vandræði að manna
seinna liðið og á brattann að sækja, líkt
og raunin varð fyrir tveimur árum hjá
þessum árgöngum í fjórða flokki.
Með þau meginmarkmið að leiðarljósi
að skapa iðkendum verkefni við hæfi,
þroska þá knattspyrnulega og lágmarka
brottfall leituðu aðstandendur flokksins
lausna ásamt þjálfaranum Jóhanni Hreið-
arssyni og starfsmönnum KSÍ. Eftir
nokkra yfirlegu varð niðurstaðan sú að
besta lausnin væri að skrá til keppni
sameiginlegt B-lið með öðru félagi.
Reglur KSÍ heimila hins vegar ekki
tveimur félögum að skrá sameiginlegt B-
lið eingöngu og því var ekki um annað
að ræða, ef þessi lausn átti að verða að
veruleika, en að iðkendur frá tveimur fé-
lögum kepptu undir nafni annars félags-
ins.
Hófst nú leit að öðru félagi með þriðja
flokk í svipaðri stöðu og við Valsmenn,
þ.e. ríflegan fjölda iðkenda en þó án þess
að ná að manna B-lið. Hugmyndin var
viðruð við nokkur félög og hjá Víkingum
fundum við Valsmenn strax þann íþrótta-
anda sem leitað var eftir. Ákveðið var að
leggja félagaríg strax til hliðar og
snemma árs 2013 var gerður ítarlegur
samningur um samstarf milli þriðja
flokks félaganna á komandi sumri. Aðal-
atriði samningsins fólst í því að Valur
skuldbatt sig til að senda inn félagaskipti
4–6 leikmanna í Víking fyrir fyrsta leik í
Íslandsmóti, en þar var m.a. einnig kveð-
ið á um búningamál, leiktíma leikmanna,
greiðslu æfingagjalda til Vals, æfingar
Valsmanna hjá Val, sameiginlegar æfing-
ar félaganna, sameiginlega stjórnun
þjálfara í leikjum o.fl.
Samningurinn tók aðeins til leikmanna
á yngra ári í Val og ríkti mikil samstaða
um hann meðal leikmanna, forráða-
manna þeirra og forystu Vals sem studdi
samstarfsverkefnið af einhug. Á vormán-
uðum valdi Jóhann þjálfari A-liðs hóp
flokksins fyrir sumarið og þegar upp var
staðið léku sjö leikmenn Í Víkingspeys-
unni yfir Valspeysunni sl. sumar. Strák-
arnir fengu átta erfiða leiki, m.a. á Voda-
fonevellinum (Valspeysur eingöngu), á
aðalvelli Þórs á Akureyri, á Ísafirði og í
Þorlákshöfn. Eftir síðasta leik var gengið
frá félagaskiptum þeirra allra aftur í Val
og er ekki nokkur vafi á að strákanir
mæta betur undirbúnir en ella til leiks í
þriðja flokki nk. sumar. Ekki veitir af,
því eftir glæsilegan sigur
A-liðs Vals í C-deild sl.
sumar leikur flokkurinn í
B-deild nk. sumar, m.a.
gegn Víkingum.
Heilt yfir var samstarfið
við Víking farsælt og til
eftirbreytni í viðlíka að-
stæðum. Reynslan af sam-
starfinu undirstrikaði líka
mikilvægi félagsskaparins
í hópíþróttum. Því miður
komust sameiginlegar æf-
ingar félaganna aldrei á
koppinn eins og til stóð og
bar liðið merki þess að
samhæfingu vantaði, þótt
sú staðreynd að strákarnir
fóru þessa vegferð sjö
saman gerði hana auðveld-
ari á allan hátt. Einnig
hefði sennilega verið æski-
legt að breyta hópnum lít-
illega um mitt sumar eins
ÁFRAM VÍKinGUR!
Helgi Þorsteinsson (t.v.), Arnar Geir
Geirsson (annar frá hægri) og
Víkingurinn Torfi Jökull Hauksson
(lengst til hægri) þjarma að Þórsaranum
Gylfa Kristjánssyni. Í baksýn glittir í
Róbert Snæ Ólafsson.
Árni Davíð Bergs markvörður Víkings (Vals) einbeittur
á svip í leik á aðalvelli Þórs í sumar, en Þórsarinn
Óðinn Freyr Heiðmarsson er ekki kátur. Á upp skeru
hátið knattspyrnudeildar Vals sl. haust fékk Árni Davíð
viðurkenningu flokkins fyrir mestar framfarir á árinu