Són - 01.01.2007, Side 12
RAGNAR INGI AÐALSTEINSSON12
setti því í þessum ritdómi fram þriðju kenninguna um þetta mál og
verður komið að henni hér á eftir.
Árið 1913 kom út bók eftir Albert Classen.12 Hún bar heitið On
Vowel alliteration in the Old Germanic Language. Í bók Classens kemur
fram viðamikil og vel rökstudd gagnrýni á kenninguna um raddglufu-
lokunina. Classen bendir á að engin rök séu fyrir því að þessi radd-
glufulokun hafi verið til í forngermönsku og það eina sem styðji
tilveru hennar sé að hún hafi verið nauðsynleg fyrir sérhljóðastuðlun-
ina. Þetta kallar Classen hringskýringu (circulus vitiosus) og bendir á
að kenningin sé „í þeirri heppilegu stöðu að það sé ekki mögulegt að
afsanna hana með þeim gögnum sem við höfum aðgang að.“13 En
jafnvel þó svo að við gerum ráð fyrir að raddglufulokunin hafi verið
til er það út af fyrir sig alls ekki næg skýring. Classen spyr sem svo,
líkt og Kock hafði gert áður, hvort umrædd raddglufulokun hafi verið
nægilega skýrt og aðgreinandi málhljóð til að gagnast til að greina á
milli jafngildisflokka.14
Classen15 vekur líka athygli á öðru atriði sem að hans mati mælir
eindregið gegn því að raddglufulokun hafi gegnt einhverju hlutverki
í stuðlasetningu í forngermönsku. Engin merki finnast nokkurs staðar
í rituðum textum, hvorki í elstu handritum né síðar, um neitt tákn í
stafrófinu sem hefði haft það hlutverk að sýna þessa lokun sem þó
skipti svo miklu máli í stuðluninni. Hann bendir á að við höfum að
vísu dæmi um þessa lokun í þýsku, svo dæmi sé tekið, og þar hafi hún
ekkert sérstakt tákn í stafrófinu. Hér ber hins vegar á það að líta, að
áliti Classens, að þar gegnir lokunin ekki neinu sérstöku hlutverki.
Afar ólíkegt sé að þetta hljóð hafi ekki haft neitt sérstakt tákn í fornu
ritmáli ef því var ætlað að greina á milli jafngildisflokka.16
12 Classen (1913).
13 The glottal-catch theory is in the happy position that it cannot, with our available
evidence, be disproved. Classen (1913:13). Þessi sama gagnrýni hafði áður komið
fram hjá Kauffmann 1897:12–13, sjá síðar.
14 Classen (1913:14).
15 Classen (1913:15).
16 Roman Jakobson (1963) ritaði grein sem hann kallaði On the so-called vowel allitera-
tion in Germanic verse (sjá síðar). Þar tekur hann undir sjónarmið Classens um að
röksemdafærslan fyrir raddglufulokunarkenningunni sé „circulus vitiosus“ og
segir kenninguna vera „ad hoc“ og með öllu gagnslausa til að skýra fyrirbærið.
Hann vitnar einnig í Kock og tekur undir efasemdir hans um tilveru nefndrar
raddglufulokunar í frumgermönsku. Jakobson (1963:88).